Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ekki hættur að hrauna yfir Gísla Martein: „Hvenær hefur þessi maður verið talinn listamaður?“

Ekki hættur að hrauna yfir Gísla Martein: „Hvenær hefur þessi maður verið talinn listamaður?“
Gísli Marteinn þátta­stjór­andi og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi fékk boðskort

Fyrr í dag ætl­aði allt að verða vit­laust á Alþingi þegar Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði Gísla Marteini Bald­urs­syni til synd­anna í ræðupúlti. Ásmundur sagði Gísla og gesti hans í Vikunni á RÚV dóna með póli­tíska slag­síðu. Aðrir þing­menn brugð­ust illa við þessu og voru fluttar margar ræður, Gísla til varnar.

Það virð­ist þó ekki hafa mildað skoðun Ásmundar ef marka má stöðu­færslu sem hann birti nú síð­degis á Facebook. Á Alþingi var haft orð á því að Ásmundur væri að gera til­raun til að þagga niður list­ræna tján­ingu Gísla Marteins. Því svarar Ásmundur:

„Er Gísli Marteinn lista­maður?

Í dag var ég hund­skammaður í þing­inu fyrir að ræða um land­lægan dóna­skap dag­skrár­gerð­ar­manns­ins Gísla Marteins. Því var jafn­vel haldið fram af for­manni Við­reisnar og þing­mönnum að ég hefði reynt að þagga niður í list­rænnni, já listræanni tján­ingu dag­skrár­gerð­ar­manns­ins. ÉG spyr. Hvenær hefur þessi maður verið tal­inn lista­maður? Aldrei mér vit­andi. Ég var líka skammaður fyrir að dag­skrár­gerð­ar­mað­ur­inn gæti ekki svarað fyrir sig úr púlti Alþingis,“ segir Ásmundur.

„Hvað hefur fólk mátt þola af hans hálfu árum saman þar sem það er sakað um upp­lognar sakir, atvinnu­níð og róg. Enginn af þeim hefur fengið tæki­færi til að svara fyrir sig. Yfir­burð­ar­staða hans í skjóli Rík­is­út­varps­ins er mis­notkun af verstu gerð.“

Hann lætur svo ræð­una umdeildu sem hann flutti fyrr í dag fylgja með:

„Hér kemur þessi við­kvæma ræða sem á erindi við alla þjóð­ina

Vl. for­seti; Mis­notkun, óskamm­feilni og dóna­skapur er orð­inn við­tekin venja dag­krár­gerð­ar­manns­ins Gísla Marteins og gesta hans í Rík­is­reknum fjöl­miðli.

Þar er engu eyrt og þeir sem verða fyrir nið­ur­læg­ingu og rudda skap dag­skrár­gerð­ar­manns­ins hafa engin tæki­færi til að svara fyrir sig eða bera hendur fyrir höfuð sér. Þess vegna tala ég hér.

Nýlega var ráð­ist á for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar í jóla­daga­tali barn­anna á RÚV.

Þátta­gerð­ar­kona, gestur í þætti GM ræddi ára­móta­heit að léki vonda konu á árinu. Hún lýsti því að hafa fengið það upp­fyllt þegar hún fékk að leika for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar í jóla­daga­tali barn­anna á RÚV. Hvers eiga börn og for­stöðu­menn að gjalda af hendi Rík­is­fjöl­mið­ils­ins.

Gísli Marteinn, sem fannst þetta greini­lega algjör snilld, lýsti þessu þannig að þarna væri verið að blanda saman list og póli­tík.

Vl. for­seti; Þarna var ráð­ist með grófum hætti að starfs­heiðri rík­is­starfs­manns sem vinnur emb­ætt­is­störf sín sam­kvæmt þeim lögum og reglum sem við setjum og um það gilda.

Það er ekki aðeins á Rík­is­út­varp­inu sem uppi veður fólk sem mis­notar og mistúlkar.

Hér á Alþingi við­ur­kenna píratar brot á trún­að­ar­reglum Alþings. Það er úti­lokað annað vl. for­seti en að siða­nefnd Alþingis taka fyrir trún­að­ar­brot þing­manna og snu­pri fyrir gróft brot á trún­að­ar­reglum Alþingis.

Við erum þjóð­kjörin og getum ekki orðið upp­vís að því að brjóta trúnað gagn­vart gestum okkar, sam­starfs­fólki – gagn­vart þjóð­inni.

Vl. for­seti; Það er orð­inn lítil þol­in­mæði í sam­fé­lag­inu fyrir því að dag­skrár­gerð­ar­fólk á rík­is­fjöl­miðli og þing­menn kosnir af þjóð­inni mis­fari með stöðu sína og vald á jafn grófan hátt og hér hefur gerst.

Það er krafa okkar að Rík­is­út­varpið rétti af póli­tíska slag­síðu og fari að þeim lögum og reglum sem um starf­sem­ina gilda“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina