Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Illugi spyr: „Hve lengi munu stjórnmálamenn halda áfram að þjóna undir rassgatið á ruddanum?“

Illugi spyr: „Hve lengi munu stjórnmálamenn halda áfram að þjóna undir rassgatið á ruddanum?“
Illugi Jök­uls­son.

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son segir í grein sinni á Stund­inni að „það var svo­lítið merki­legur – eða alt­ént lýsandi – kafli í Silfrinu í Rík­is­sjón­varp­inu um dag­inn. Þar var Íslands­banka­salan meðal ann­ars til umræðu og þátt­tak­endur höfðu mis­sterkar skoð­anir á því hvort og hversu illa hefði tek­ist til við söl­una.“

Bætir við:

„En svo sagði Halla Gunn­ars­dóttir allt í einu eitt­hvað á þá leið að þau ættu ekki endi­lega bara að ræða fram­gangs­máta, verk­lags­reglur og aðferðir við banka­söl­una. Stað­reyndin væri sú að yfir­gnæf­andi meiri­hluti lands­manna hefði í skoð­ana­könn­unum lýst sig algjör­lega á móti sölu rík­is­bank­anna yfir­leitt. Eða á þeim hlutum sem ríkið á enn þá í bönk­unum.

Engin við­brögð Og hún gaf til kynna að umræðu­efnið ætti ekki endi­lega að vera hvernig ætti að selja bank­ana, heldur væri full ástæða til að ræða hvort ætti að gera það.“

Hann bendir á að „við­brögðin við þessum orðum Höllu voru athygl­is­verð. Því þau voru engin. Aðrir þátt­tak­endur horfðu undr­andi á hana, hristu nán­ast haus­inn – og héldu svo áfram að ræða verk­lags­reglur við banka­sölu. Því AUÐVITAÐ ætti að selja bank­ana. Um það væri póli­tískt sam­komu­lag. Og þegar orða­lagið „póli­tískt sam­komu­lag“ heyr­ist, þá veit maður hvað til síns friðar heyrir. Því þá er átt við sam­komu­lag þing­flokk­anna á Alþingi.“

Illugi segir ein­fald­lega:

„Blásum á það! Því skipti engu máli þótt 80 pró­sent kjós­enda hafi lýst sig and­víg sölu á hlut rík­is­ins í bönk­unum. Við blásum á það! – virt­ist fólk við Silf­ur­borðið hugsa við orð Höllu. Það sem flokk­arnir vilja, það gildir! Þetta er hund­leið­in­legt ein­kenni á íslenskum stjórn­málum.“

Illugi segir að „vissu­lega eiga stjórn­mála­flokkar ekki að hlaupa eftir til­fallandi skoð­ana­könn­unum. En sú fyr­ir­litn­ing sem sýnd er skoð­unum hjá valda­flokk­unum á þingi og í rík­is­stjórn – og meðal furðu margra áhrifa­manna utan þings – hún er hrein­lega til vansa. Í ára­tug hefur meiri­hluti aðspurðra í hverri skoð­ana­könnun eftir aðra lýst sig fylgj­andi því að drög stjórn­laga­ráðs frá 2011 verði grund­völlur nýrrar stjórn­ar­skrár. Því um málið verður að ríkja „sátt“.

Í því til­felli og svo sorg­lega mörgum öðrum, þá þýðir orðið „sátt“ að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verði að vera sáttur við málið. Sem hann verður aldrei, því nýja stjórn­ar­skráin gengur í ber­högg við vilja ríka fólks­ins sem hefur kastað eign sinni á Sjálf­stæð­is­flokk­inn.“

Hann nefnir að „krafa flokks­eig­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins um „sátt“ í stjórn­ar­skrár­mál­inu, sem alltof margir vel mein­andi stjórn­mála­menn í öðrum flokkum taka undir, hefur nú leitt til þess að þeir sem berj­ast fyrir því að vilji almenn­ings nái fram að ganga, þeir eru næstum komnir með ímynd kver­úlanta gagg­andi for­gævens úti í horni – meðan alvöru fólk talar um alvöru mál. Eins og fólkið sem horfði furðu lostið á Höllu Gunn­ars­dóttur af því hún vog­aði sér að hreyfa vilja almenn­ings. Með þessu var Halla kirfi­lega sett út á jað­ar­inn í þætt­inum!“

Illugi segir að „í raun­inni eru skoð­anir Sjálf­stæð­is­flokks­ins – og sér í lagi for­yst­unnar – nán­ast jað­ar­skoð­anir í sam­fé­lag­inu. Flokk­ur­inn nýtur um 22–23 pró­senta fylgis en hefur alltof lengi fengið að ráða alltof miklu. Sama er til dæmis upp á ten­ingnum í Evr­ópu­sam­bands­málum. Í langan tíma hefur meiri­hluti fólks í skoð­ana­könn­unum lýst vilja til að ganga í Evr­ópu­sam­bandið ef góðir samn­ingar næð­ust (sem er reyndar næsta víst). En í stað þess að flokk­arnir sam­ein­ist um að gera þjóð­inni kleift að takast á við þessa spurn­ingu með því að hefja alvöru umræðu og sækja síðan um, þá hafa aðrir flokkar látið sér lynda að málið „sé ekki á dag­skrá“ af því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn (eða rétt­ara sagt hin þrönga flokks­for­ysta) er á móti mál­inu. Málið er ekki á dag­skrá af því að „sátt“ mun ekki nást um það. „Sátt“ Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“

Að end­ingu segir Illugi að að sé „örlít­ill hluti auð­manna á Íslandi sem hefur hag af því að landið sé utan Evr­ópu­sam­bands­ins – þótt sjálfir njóti þeir allra kosta sam­bands­ins. En þessi örlitli hluti ræður við að langt virð­ist í að það verði útkljáð – úr því meira að segja jafn­að­ar­manna­flokk­ur­inn hefur sett það neð­ar­lega á for­gangs­lista sinn – og ástæðan sú að freki kall­inn vill ekki heyra á málið minnst og þá er best að vera ekki að „trufla umræð­una“.

Eins og Halla gerði í Silfrinu.

En hve lengi ætlum við að dekra við freka kall­inn? Hve lengi ætlum við að láta tudd­ann í skóla­stof­unni ráða? Tala lágt og kurt­eis­lega, næstum hvísla, vekja ekki máls á neinu sem honum er illa við? Því hann gæti orðið reiður. Hve lengi munu stjórn­mála­menn, sem vilja láta taka sig hátíð­lega sem þjóna almenn­ings, halda áfram að þjóna undir rass­gatið á rudd­anum svo hann verði ekki fúll?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina