Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hannes: „Ég ætlaði að sitja inni fyrir þetta, það hefði verið forvitnilegt að sitja í fangelsi“

Hannes: „Ég ætlaði að sitja inni fyrir þetta, það hefði verið forvitnilegt að sitja í fangelsi“
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son.

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son háskóla­pró­fessor er nýjasti gest­ur­inn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar og kapp­inn fer út um víðan völl í þætt­inum; segir meðal ann­ars frá því þegar stinga átti honum í stein­inn:

„Ein­stak­ling­ur­inn má sín oft lít­ils gegn afli rík­is­ins og þess vegna verðum við að standa vörð um frelsi ein­stak­lings­ins. Ég kynnt­ist þessu af eigin raun þegar ég var dæmdur fyrir að reka ólög­lega útvarps­stöð sem ungur maður til að mót­mæla einka­rekstri rík­is­ins á ljós­vaka­miðlum. Ég hef reyndar alltaf verið stoltur af þeim dómi,“ segir Hannes og heldur áfram:

„Ég rak útvarps­stöð­ina Frjálst Útvarp árið 1984, en var svo dæmdur 1986. Við færðum stöð­ina til dag frá degi, en svo náði lög­reglan að finna út hvar hún væri og kom og lok­aði stöð­inni á end­anum. Ég var dæmdur til að borga sekt, en 14 daga fang­elsi til vara. Ég skrif­aði dóms­mála­ráðu­neyt­inu að ég myndi ekki borga sekt­ina og ætl­aði að sitja inni fyrir þetta. Það hefði verið for­vitni­legt að sitja inni í fang­elsi, en það var ein­hver sem greiddi sekt­ina fyrir mig, sem ég veit ekki enn hver er.“

Hannes ræðir einnig um hat­urs­orð­ræðu, en hann er áþví að fólk ætti að stíga var­lega til jarðar í þeim efnum:

„Auðvitað verðum við að koma í veg fyrir það að ákveðnir hópar verði fyrir aðkasti. Ég get ekki rekið veit­inga­stað og bannað Kín­verjum að koma þar inn. Það er bara rangt. Mér finnst eðli­legt að ákveðnir hlutir séu ekki leyfðir, eins og sví­virð­ingar um ákveðna hópa og annað í þeim dúr,“ segir hann og heldur áfram:

„Það hefur verið gengið miklu lengra á und­an­förnum árum, eins og til dæmis í Kóvid 19 og einnig í tengslum við kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum; þar í landi hafa stóru sam­fé­lags­miðl­arnir farið út í rit­skoðun og ákveða hvað er frétt­næmt og hvað ekki. Við hljótum að þurfa að setja spurn­inga­merki við það. Þó að við eigum að sjálf­sögðu að sporna við hat­urs­orð­ræðu á ákveðna hópa og banna stoppa sví­virð­ingar, getum við ekki farið út í það sem var kallað ,,Hugs­a­na­glæpur” í sögum Orwell. Það að ein­hver sé með ólíka skoðun en þú þýðir ekki að það sé sak­næmt. Lausnin hlýtur að vera sú að frelsið njóti á end­anum vafans og að við höfum meira frelsi en minna.“

Hannes heldur áfram að grafa gull upp úr end­ur­minn­ing­unum; ræðir það þegar mót­mæl­endur veitt­ust að honum árið 2009:

„Þetta ger­ist í ágúst 2009 þegar ég átti erindi niður í bæ, þar sem var mót­mæla­fundur vegna Icesave samn­ing­anna. Þar kemur frétta­kona auga á mig og biður mig að koma í við­tal til að útskýra af hverju ég var á móti Icesave samn­ing­unum. Við förum að Dóm­kirkj­unni, en þar var gerður aðsúgur að mér og byrjað að kasta í mig alls kyns hlutum. Á end­anum slapp ég inn í Alþing­is­húsið, en það var ein­kenni­legt að verða fyrir þessu í okkar ann­ars ofbeld­is­lausa landi. Svo átti ég að fara í mynda­töku fyrir for­síðu­við­tal hjá Grapevine og er á leið­inni þangað þegar sím­inn hringir. Þá var það minn gamli vinur Davíð Oddsson, sem hafði séð hvað ég var grátt leik­inn í sjón­varps­frétt­unum. Hann sagði mér að hann og Kjartan Gunn­ars­son hefðu séð þetta og vildu bæta mér dag­inn upp með því að bjóða mér út að borða. Þetta kvöld sátum við þrír á sama borði og 18 árum fyrr þegar Davíð hafði myndað sína fyrstu rík­is­stjórn.“

Hannes er afar áhuga­verður við­mæl­andi og hægt er að nálg­ast þátt­inn hans Sölva Tryggva með Hannesi í heild sinni á vef­síðu Sölva.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina