Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ráðherrarnir sem sögðu af sér – Lygar, lögbrot og skattsvik

Ráðherrarnir sem sögðu af sér – Lygar, lögbrot og skattsvik

Frá því að íslenska lýð­veldið var stofnað hafa frekar fáir ráð­herrar sagt af sér í emb­ætti. Raunar eru þeir ekki nema sex tals­ins sem sögðu ýmist af sér eftir harða gagn­rýni eða eftir hörð mót­mæli. Flestir þeirra hrökkl­uð­ust úr starfi í hrun­inu eða eftir það og næstum allir vegna þess að þeir neydd­ust til þess. Mannlíf fer hér yfir afsagnir íslenskra ráð­herra.Fyrsti ráð­herr­ann til að segja af sér var Albert Guð­munds­son, þáver­andi iðn­að­ar­ráð­herra, og það gerði hann vegna hneyksl­is­mála tengdum Haf­skips­mál­inu árið 1987. Hann hafði þáð greiðslur frá fyr­ir­tæk­inu sem hann taldi ekki fram til skatts. Albert var gagn­rýndur harð­lega um nokk­urt skeið áður en hann sagði af sér 24. mars 1987. Hann varð þá fyrsti ráð­herra í lýð­veld­is­sög­unni til að segja af sér ráð­herra­dómi.Skömmu eftir afsögn sína til­kynnti Albert um þing­fram­boð undir merkjum Borg­ara­flokks­ins og vann stærsta kosn­inga­sigur nýs fram­boðs. Það met varð ekki jafnað fyrr en í síð­ustu þing­kosn­ingum. Albert varð sendi­herra í París áður en kjör­tíma­bilið var úti.

Sumir eiga aft­ur­kvæmt

Guð­mundur Árni Stef­áns­son sagði af sér sem heil­brigð­is­ráð­herra. Hann hafði þá sætt mik­illi gagn­rýni vegna emb­ætt­is­færslu sinnar í starfi vegna emb­ætt­is­loka trygg­inga­yf­ir­læknis. Guð­mundur Árni sat á þingi fram á þessa öld en varð sendi­herra þegar hann hætti á þingi.

Guð­mundur Árni Stef­áns­son er snú­inn aftur í pólítík­ina.

Guð­mundur Árni sagði af sér ráð­herra­emb­ætt­inu í nóv­em­ber 1994. Hann var harð­lega gagn­rýndur fyrir póli­tískar ákvarð­anir sem leiddu til þess að hann sagði af sér emb­ætti. „Já, ég hefði getað gert hlut­ina betur. En ég var sá fyrsti sem tók ábyrgð á gerðum mínum. Þetta var erf­iður tími en ég átta mig á því að ég gerði rétt; póli­tík snýst ekki bara um eigið egó heldur líka hina stóru mynd,” sagði Guð­mundur Árni um afsögn sína.

Guð­mundur Árni tók síð­ast virkan þátt í póli­tík árið 2005 en á árinu sigr­aði hann með yfir­burðum í flokksvali Sam­fyk­ing­ar­innar um að leiða flokk­inn í Hafn­ar­firði í kom­andi sveita­stjórn­ar­kosn­ingum. Síðar var hann svo kjör­inn nýr vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar eftir að engin mót­fram­boð bár­ust á lands­fundi flokks­ins.

Björgvin G. Sig­urðs­son var við­skipta­ráð­herra þegar banka­kerfið íslenska hrundi á haust­dögum 2008. Hann sagði af sér undir lok jan­úar 2009, degi áður en rík­is­stjórnin sprakk. Honum hafði verið haldið utan við hring­iðuna þegar rætt var um aðgerðir til að bjarga Glitni þrátt fyrir að vera ráð­herra banka­mála.

Björgvin sagð­ist hafa viljað segja af sér strax við hrunið en verið tal­inn á að halda áfram til að við­halda þeim stöð­ug­leika í stjórn lands­ins sem hægt væri. Á loka­degi í emb­ætti rak Björgvin stjórn og for­stjóra Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og baðst svo lausnar.

Lekamálið og Wintris

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir.

Næsti ráð­herra sem þving­ast til að segja af sér á Íslandi er Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, inn­an­rík­is­ráð­herra í stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar. Þetta ger­ist í því ­máli ­sem kall­ast „Leka­mál­ið“ og sagði hún af sér í nóv­em­ber árið 2014. Þá varð ráðu­neyti hennar upp­víst að ólög­legum leka á upp­lýs­ingum um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos til Morg­un­blaðs­ins.

Aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu, Gísli Freyr Val­dórs­son, neit­aði í fyrstu en ját­aði síðan að hafa lekið upp­lýs­ing­unum (neit­aði fyrst) um Tony Omos og Hanna Birna sjálf sagði einnig ósatt í mál­inu. Eftir mikla umfjöllun fjöl­miðla sagði hún loks­ins af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra, þann 21. nóv­em­ber 2014.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son.

Fimmti ráð­herr­ann í stjórn­mála­sögu lýð­veld­is­ins til að segja ó­vilj­ug­ur af sér er svo Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, vorið 2016. Hann varð þá fyrsti for­sæt­is­ráð­herra lands­ins til að segja af sér vegna hneyksl­is­mála eftir upp­ljóstr­anir í Panama­skjöl­unum um félagið Wintris. Sig­mundur sagði af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra eftir að hafa verið afhjúp­aður sem ósann­inda­maður í Kast­ljós­þætti. Þar þrætti Sig­mundur fyrir Wintris-félagið og gekk út úr við­tali.

Sig­mundur braut í ­sjálfu ­sér­ ekki lög, en hann sagði ósatt. Eftir Kast­ljós­þátt­inn héldu þús­undir mót­mæl­enda á Aust­ur­völl en Sig­mundur Davíð hugð­ist í fyrstu sitja sem fast­ast. Á end­anum hrökkl­að­ist á hann þó úr emb­ætti, fyrst ætl­aði hann að víkja tíma­bundið en dró það svo til baka. 

Sig­mundur Davíð gekk síðar úr Fram­sókn­ar­flokknum og stofn­aði Mið­flokk­inn sem setti Íslands­met í fylgi nýs flokks, fékk sömu pró­sentu og Borg­ara­flokkur Alberts 30 árum áður.

Braut lög

Sigríður Á. Andersen.

Sigríður Andersen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, varð svo sjötti ráð­herr­ann sem sagði af sér í emb­ætti, eftir að hafa sætt harðri gagn­rýni fyrir störf sín. Þegar kom að því að skipa fyrstu dóm­ar­ana í Lands­rétti, nýju milli­dóms­stigi, vék hún frá mati nefndar sem meta átti hæfni umsækj­enda. Þetta sætti mik­illi gagn­rýni og harð­vít­ugar deilur voru um málið á Alþingi. Umsækj­end­urnir fjórir sem Sigríður til­nefndi ekki þrátt fyrir að þeir væru metnir meðal fimmtán hæf­ustu unnu allir dóms­mál gegn rík­inu.

Sigríður stóð samt af sér van­traust­s­til­lögu á þingi. Þegar dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu var birtur sagð­ist Sigríður enga ástæðu hafa til að segja af sér. Rétt rúmum sól­ar­hring síðar til­kynnti Sigríður að hún stigi til hliðar.

Aðrar afsagnir íslenskra ráð­herra en fjallað er um hér að ofan: 

1923 sagði Magnús Jónsson af sér emb­ætti fjár­mála­ráð­herra eftir að hafa verið gagn­rýndur á Alþingi.

1932 sagði Magnús Guð­munds­son dóms­mála­ráð­herra af sér eftir að Hermann Jónasson hafði dæmt hann sekan um l-gbrot, Hæsti­réttur sýkn­aði Magnús og tók hann þá aftur við emb­ætti.

Þá má nefna að ráð­herrar hafa sagt af sér af öðrum ástæðu, t.d. heilsu­fars­á­stæðum: Halldór Ásgríms­son, Geir H. Haarde og Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir. Þar að auki hafa nokkrir ráð­herrar sagt af sér af öðrum ástæðum. Til að mynda Ögmundur Jónasson sem hætti sem heil­brigð­is­ráð­herra vegna óánægju með stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í Icesave og Björn Bjarna­son hætti sem mennta­mála­ráð­herra til að leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina