Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jón Sigurður fjallar um Melínu Merkúrí í þætti kvöldsins: Endurfæðist þegar Bretar skila marmaranum

Jón Sigurður fjallar um Melínu Merkúrí í þætti kvöldsins: Endurfæðist þegar Bretar skila marmaranum
Melína Merkúrí

Einsog fram hefur komið í fréttum virð­ast við­ræður komnar á rek­spöl milli yfir­manna Breska Þjóð­minja­safns­ins, British Museum, og grískra yfir­valda varð­andi marm­araskúlp­t­úra þá sem Bretar tóku ófrjálsri hendi á Akrapól­is­hæð­inni í Aþenu fyrir rúmum tvö hund­ruð árum. Grikkir hafa verið ötulir við að núa beiðni sinni um nasir Breta um að end­ur­heimta minjar sínar en lík­leg­ast hefur engin gengið jafn hart fram í þeirri bar­áttu og Melína Merkúri en hún var menn­ing­ar­mála­ráð­herra Grikkja nán­ast allan tíunda ára­tug síð­ustu aldar og svo aftur árið 1993 og til dauða­dags, ári seinna. Þekktust er hún þó fyrir feril sinn sem leik­kona en hún lék til að mynda í mynd­inni Aldrei á sunnu­dögum, þar sem hún fór með hlut­verk grískrar gleði­konu, og þar söng hún lagið Börnin frá Pírea sem einnig náði heims­frægð. Málefni skúlp­t­úr­anna, sem áður prýddu Parþen­on­hofið og aðrar bygg­ingar á Akrapólís­hæð­inni, var svo mik­il­vægt í hennar huga að hún sagði að ef hún myndi ekki upp­lifa þá stund, er Bretar skil­uðu þeim, myndi hún end­ur­fæð­ast til að lifa þá dýrð­ar­stund. Ef til vill er sú stund að renna upp. Allavega hljóta margir að hugsa til hennar nú og þess fram­lags sem hún reiddi af hendi.

Deilan hófst árið 1801 þegar breskur jarl, Thomas Bruce að nafni, lét flytja marm­araskúlp­t­úrana og kvaðst þá hafa til þess papp­íra uppá vas­ann frá yfir­völdum sem þá voru Ott­om­ans­veldið. Eftir að deilan komst í hámæli var gerð ítar­lega leit í tyrk­neskum skjala­söfnum en leyf­is­veit­ingin, sem hann kvaðst hafa haft árrit­aða undir höndum, hefur aldrei kom­ist í leit­irnar. Flutn­ing­ur­inn gekk heldur betur brös­ug­lega en skipið sökk við strendur grísku eyj­unnar Kerkíra og tók það um þrjú ár að ná ger­semunum upp úr djúp­unum. Bresk yfir­völd keyptu þær svo árið 1816 og var kaup­verðið langt undir þeim kostn­aði sem jarl­inn þurfti að reiða fram til að koma þeim til Bret­lands. 

Málið varð strax umdeilt og sá er barð­ist hve harð­ast gegn þessu á sínum tíma var skáldið Lord Byron en hann taldi þetta hrein og bein skemmd­ar­verk. Melína var ekki síðri bar­áttu­mann­eskja í sinni ráð­herra­tíð og vakti það heims­at­hygli þegar hún kró­aði David Wilson, þjóð­minja­vörð Breta, af á ráð­stefnu í Lundúnum og spurði hann hiks­ta­laust, frammi fyrir fjölda fjöl­miðla­fólks, hvenær hann hygð­ist skila Elgin marar­anum, einsog skúlp­t­úrar þessir eru oft­ast nefndir. Síðan var tek­ist á og þótti þeim sið­prúð­ustu óljúft að sjá þetta hátt­setta fólk takast á einsog smá­krakkar á skóla­velli.

Lord Byron

Oft hafa átt sér stað þreif­ingar og síð­ast bauðst UNESCO, Menn­ing­ar­mála­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna, til að miðla málum en yfir­menn Breska Þjóð­minja­safns­ins voru ekki sáttir við það enda telja þeir stofn­un­ina draga taum Grikkja.

Þess má geta að minjar þessar eru verk sjálfs Feid­í­asar en hann er oft­ast nefndur merkasti mynd­höggv­ari forn­aldar.   

Í þætt­inum Rúntað með Rucio fjallar Jón Sigurður um merk­is­kon­una Melínu Merkúri og kemur þar meðal ann­ars inná deilu hennar við David Wilson. Þátt­ur­inn mun birt­ast upp úr klukkan 19:00 hér á mann­lif.is. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við