Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hættulegar breytingar á Suðurlandsvegi: „Á sekúndubroti tókst mér að stinga mér út af veginum“

Hættulegar breytingar á Suðurlandsvegi: „Á sekúndubroti tókst mér að stinga mér út af veginum“
Mynd/ waldorfskolinn.is Myndin er sam­sett

Tilkoma nýs vegar við Lög­bergs­brekku hefur legið þungt á skóla­sam­fé­lag­inu í Waldorfskólanum í Lækj­ar­botnum. Nýr vegur var opn­aður á föstu­dag­inn. Breyt­ingin sem um ræðir hindrar vinstri beygju í átt til borg­ar­innar frá afleggjar­anum að Lækj­ar­botnum. Skóla­yf­ir­völd og starfs­fólk skól­ans hefur kvartað yfir að yfir­völd hafi ekki form­lega til­kynnt breyt­ing­una. Þá sé breyt­ingin illa merkt og minnstu mátti muna að um stór­slys hafi orðið en að minnsta kosti sjö bílar tóku vinstri beygju á móti umferð.

Myndin sýnir nýja veg­inn í Lög­bergs­brekku Mynd/ skjá­skot vega­gerdin.is

Skítaredding

For­svars­menn skól­ans kærðu skipu­lags­breyt­ingu Kópa­vogs­bæjar í vor og voru fram­kvæmdir stöðv­aðar um tíma. Þá segir Dagný Helga Ísleifs­dóttir, starfs­maður og for­eldri við Waldorfskólann í sam­tali við Mannlíf: „Gerður var hlið­ar­vegur sem ein­hver skíta­redd­ing af því að það gleymd­ist að gera ráð fyrir aðgengi að skól­anum þegar veg­ur­inn var hann­aður. Við erum að tala um skóla sem er búinn að vera stað­settur þarna á sama stað í rúm 30 ár! Það er ekki enn komið á hreint hverjir eiga að þjón­usta þennan hlið­ar­veg sem skól­inn og íbúar svæð­is­ins eiga að nota, ekki er heldur búið að mal­bika en það er samt búið að opna hann!“ 

Þá segir hún jafn­framt að um helg­ina hafi ábú­endur á svæð­inu verið inn­lyksa þar sem hlið­ar­veg­ur­inn hafi ekki verið ruddur og að ekki sé vitað hver eigi að þjón­usta hann.

12 kíló­metrum lengri leið

Hin nýja breyt­ing hefur í för með sér tólf kíló­metra leng­ingu fyrir börn og starfs­fólk á leið til borg­ar­innar frá Lækj­ar­botnum. Bif­reið­arnar þurfa nú að beygja til hægri upp Lög­bergs­brekku og snúa bílum sínum á plani Litlu-Kaffi­stof­unnar til að halda til borg­ar­innar.

Stórslysahætta

Minnstu mátti muna að um stór­slys hafi orðið á föstu­dag­inn síð­ast­lið­inn þegar Björk Bjarna­dóttir, kenn­ari og for­eldri við skól­ann var á leið heim eftir dag­inn. Björk tók vinstri beygju frá afleggjar­anum í átt að borg­inni en merk­ingar Vega­gerð­ar­innar voru ill­sjá­an­legar í myrkr­inu og veð­urofs­anum sem gekk yfir landið. Hún deildi reynslu sinni í fés­bók­ar­færslu:

„Eftir að hafa beygt frá Waldorfskólanum í Lækj­ar­botnum í átt­ina að Reykja­vík í myrkr­inu áðan átt­aði ég mig allt í einu á því að ég var að keyra á móti umferð!. Á sek­úndu­broti tókst mér að stinga mér út af veg­inum, niður í djúpa holu og aftur upp á veg­inn sem liggur til Reykja­víkur. Á sek­úndu­brot­inu hugs­aði ég líka út í það að taka u beygju og botna bíl­inn upp brekk­una, en það var ekki hægt! Svo margir bílar að koma á móti mér. Sem sagt það var eitt­hvað skilti þarna sem sést ekki í myrkr­inu en búið er að breyta veg­inum þannig að akreinin er tvö­föld til Hvera­gerðis og skól­inn á að taka annan veg sem ég hef aldrei séð! #Vega­gerðin og

#Kópa­vogs­bær þið megið girða ykkur í brók og fara að koma fram við skól­ann og íbúa svæð­is­ins af virð­ingu og með skiln­ingi. Ég er enn með hjartað úti á kinn og veit ekki hvaða verndar andar vaka yfir mér, en þeim og mínum fljóta huga þakka ég lífs­björg­ina. Þarna hefði getað orði svo svaka­legt slys…ég vil ekki hugsa það lengra. Ég hringdi svo í Lög­regl­una þar var mér tjáð að ég væri nr 2 sem hefði til­kynnt vanda­mál þarna! Nú skyldi hringt í Vega­gerð­ina og mál­inu reddað.“

Dagný Helga Ísleifs­dóttir, segir að lög­reglu hafa verið til­kynnt um málið: „Lög­reglan var ekki par sátt með þessi vinnu­brögð, en þetta er mjög lýsandi fyrir virð­ing­ar­leysið sem Kópa­vogs­bær og Vega­gerðin hafa sýnt skól­anum í skipu­lagn­ingu og fram­kvæmd á þessum veg­ar­kafla. Við erum orðin lang­þreytt á þessu virð­ing­ar­leysi sem börn­unum okkar er sýnt af hálfu Kópa­vogs­bæjar og Vega­gerð­ar­innar.Við erum búin að vera að berj­ast fyrir því að það sé hlustað á okkur og að það sé tekið til­lit til þess að þetta sé leik­skóli, grunn­skóli og vinnu­staður fjölda fólks en við komumst ekki í gegn.“

Rúmlega 80 börn sækja grunn­skól­ann, 20 börn eru í leik­skól­anum, kenn­arar og annað starfs­fólk telja um 30 manns, þar eru 3 kenn­ara­bú­staðir sem í búa um það bil 10 manns.

Svör Vegagerðarinnar

Mannlíf hafði sam­band við Vega­gerð­ina og ræddi við Gísla Gíslason verk­efna­stjóra.

Honum hafði ekki borist til fregna um þau atvik sem áttu sér stað á föstu­dag­inn síð­ast­lið­inn og imprar á að öfl­ugar merk­ingar hafi verið settar upp við vega­mótin sem útskýrðu að vinstri beygja væri bönnuð. Aðspurður hvort sam­tal hafi ekki átt sér stað á milli lög­reglu og Vega­gerð­ar­innar gat Gísli ekki svarað því og bendir á að þeir öku­menn sem lentu í vand­ræðum hafi ekki fylgt umferð­a­reglum. Hann segir að breyt­ing­arnar hafi verið gerðar eftir klukkan 15.30 á föstu­dag­inn, eftir sam­tal við skól­ann: „Við vorum beðnir um að gera það ekki fyrr því þá væru flestir farnir úr skól­anum,“ og tekur jafn­framt fram að hann viti ekki betur en að merk­ing­arnar hafi verið komnar upp áður en opn­unin hafi átt sér stað.

Inntur eftir því hvort gleymst hafi verið að gera ráð fyrir aðkomu að Lækj­ar­botnum svarar hann svo ekki vera en tvö­földun á Suð­ur­lands­vegi hafi verið gerð í þágu umferð­ar­ör­yggis og betra flæðis: „Við þessa tvö­földun var tekin af vinstri beygja frá Waldorfskóla til Reykja­víkur, til vest­urs. Er sú beygja raun­veru­lega alveg stór­hættu­leg beygja, þar sem menn þvera þarna tvær akreinar sem eru í austur,“ þá útskýrir hann aðstæður uppi á hábrekkunni svo að sjón­línur öku­manna séu mjög slæmar og þakka megi fyrir að ekki hafi orðið alvar­leg slys á þessum til­tekna stað. „En við tökum af þessa beygju en sam­hliða byggjum við alveg sér­stakan hlið­ar­veg fyrir Waldorfsskóla. Hlið­ar­veg sem liggur raun­veru­lega með Suð­ur­lands­veg­inum að sunn­an­verðu og öku­menn þar með farið að Waldorfskóla og frá,“. Hlið­ar­veg­ur­inn teng­ist við Geirland sem er stað­sett fyrir neðan Lög­bergs­brekk­una. Þá útskýrir hann að veg­ur­inn sé opinn þeim sem að skól­ann sæki en bendir jafn­framt á að aðkoma frá Reykja­vík sé óbreytt og að hægt sé að aka upp Lög­bergs­brekk­una og taka hægri beygju. Gísli vill því meina að fram­kvæmdin hafi verið bót að aðgengi fyrir skól­ann.

Fyrsta áfanga fram­kvæmd­ar­innar er lokið en fólgst hann í að fara Suð­ur­lands­veg­inn frá Foss­völlum niður að Lög­bergs­brekku og gera hlið­ar­veg­inn sem tengir Waldorfskólann við Geirland. Annar áfangi er í fram­kvæmd­ar­leyf­is­ferli en fellst hann í að klára Geir­lands­vega­mótin.

Aðspurður svarar Gísli að hlið­ar­veg­ur­inn verði klæddur með bundnu slit­lagi: „Okkur tókst ekki að klára það fyrir vet­ur­inn, en það verður gert um leið og veður leyfir,“.

Hver sér um að þjón­usta veg­inn?

Samkvæmt Gísla er hlið­ar­veg­ur­inn svo­kall­aður hér­aðs­vegur sem þýðir að Vega­gerðin á veg­inn og við­hald því í höndum hennar, en að vetr­ar­þjón­ustan sé í höndum við­eig­andi sveit­ar­fé­lags eða land­eig­anda sem er í þessu til­viki Kópa­vogs­bær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina