Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jón Sigurður syngur lag fyrir látna vinkonu: „Ekkert varðveitir minningu jafn vel og músík“

Jón Sigurður syngur lag fyrir látna vinkonu: „Ekkert varðveitir minningu jafn vel og músík“
Jón Sigurður og Matu

Flutn­ingur til­eink­aður fall­inni söngdrottn­ingu

Í hlað­varps­þætt­inum Rúntað á Rucio þessa vik­una leikur Jón Sigurður og syngur lag til­einkað vin­konu sinni, söng­kon­unni Matu, sem féll frá árið 2017 eftir bar­áttu við krabba­mein. Lagið heitir Samba em preludio og er ekki valdið af handa­hófi en þau Matu og Jón Sigurður voru vön að syngja það saman um ára­skeið. Það er eig­in­kona hans, Carmen Montoya Sanchez, sem syngur á móti honum að þessu sinni. 

„Ekkert varð­veitir minn­ingu jafn vel og músík,“ segir Jón Sigurður, „og þess vegna var það mér um megn að syngja þetta lag í nokkur ár, ég var meira að segja búinn að gleyma gít­ar­grip­unum, en lífið heldur áfram svo það er ekki úr vegi að reyna gera eitt­hvað fal­legt úr því sem áður var sárt.“ 

Matu, sem í raun hét fullu nafni Lúsía Gallego Ariza, bjó í bænum Almed­inilla á suður Spáni og söng fyrst um margra ára skeið í dúett með Paco Pulido. Síðan söng hún í hljóm­sveit­inni The Quiet Band frá árinu 2011 til dán­ar­dags árið 2017. Hún var jafn­víg á hina ólík­ustu tón­list, og söng jazz, rokk, pop, bossa nova sem og banda­ríska- og spænska þjóð­lagatón­list. „Rödd hennar var sér­lega fal­leg, mjúk og sæt, en gat líka verið römm og sterk,“ segir Jón Sigurður. „Hún var ein af þessum söng­konum sem maður heyrði í og sann­færð­ist um leið að ein­ungis fólk með fal­lega sál gæti sungið með þessum hætti. Það er kannski ekki hægt að koma almenni­lega orðum að þessu enda ekki heiglum hent að lýsa englum.“

Paco Pulido, sem söng með Matu allan hennar söng­feril, er jafnt tón­listar- og stjórn­mála­maður og var meðal ann­ars for­seti Cordóba-hér­aðs, sem telur um 800 þúsúnd íbúa, yfir tvö kjör­tíma­bil.

Lagið Samba em preludio er tví­söngur, og það samdi Baden Powell en hann var brasil­ískur gít­ar­snill­ingur sem ruddi, meðal ann­arra, leið­ina fyrir bossa nova tón­list­ar­stefn­una sem lá um víðan heim á sjö­unda ára­tug síð­astu aldar. Ljóðið við lagið orti Vinicius de Moraes en hann er oft nefndur guð­faðir þess­arar tón­list­ar­stefnu. Lagið og þessir skraut­legu höf­undar þess eru til umræðu í hlað­varps­þætt­inum Rúntað á Rucio á vef Mann­lífar en hann birt­ist í kvöld. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við