Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Guðbjörn dó næstum í snjóskafli: „Þolmörk gagnvart bíldruslum í vegkantinum geta verið ótrúleg“

Guðbjörn dó næstum í snjóskafli: „Þolmörk gagnvart bíldruslum í vegkantinum geta verið ótrúleg“

„Á þessum erf­iðu stöðum mynd­ast strax snjó­skaflar sem ekki eru stórir eða langir. Í einum slíkum dó ég næstum í hræði­legu bílslysi fyrir nokkrum árum, sem ég hef enn ekki jafnað mig á. Ég er því í grunn­inn sam­mála „eðli­legum lok­unum“ en verð að segja að mikið vantar upp á að snjó­ruðn­ingur hafi verið góður á liðnum árum.“

Þetta segir Guðbjörn Guð­björns­son, yfir­toll­vörður og óperu­söngv­ari, á Facebook en þar gagn­rýnir hann hvernig staðið hefur verið að snjó­ruðn­ingi sem og við­brögðum við hinni miklu snjó­komum und­an­farna daga.

„Ég ek Reykja­nes­braut­ina nær dag­lega og á sumrin er ég mikið á ferð­inni úti á landi þegar ég er að vinna sem leið­sögu­maður. Ég bjó lengi í Þýska­landi og Sviss og þekki því einnig ágæt­lega hvernig umferðin gengur þar fyrir sig. Alls­staðar getur mikið óveður leitt til þess að erfitt getur reynst að ryðja akst­ursleiðir,“ segir Guðbjörn.

Hann segir þó sumt greina löndin frá hvor öðru. „Það sem ég tek hins vegar eftir hér á landi, er að þol­mörk vega­gerð­ar­innar og lög­reglu gagn­vart bíldruslum, sem eru bil­aðar í veg­kant­inum geta verið ótrú­leg. Maður er jafn­vel að horfa upp á bil­aðan bíl dögum saman áður en hann er sóttur. Það sama má sjá núna að fólk er stopp en bíll­inn er ekki fjar­lægður.

Á sumrin má sjá að ferða­menn – aðal­lega erlendir – stöðva bíl­ana þar sem þeir vilja. Annað sem maður tekur eftir er að margir bílar eru illa búnir til vetr­ar­akst­urs. Áróður ákveð­inna stjórn­mála­afla gegn öllu sem talist getur til bóta fyrir ein­hvern sem er að ferða á Íslandi – sem er við heim­skauta­baug­inn – er mjög áber­andi,“ segir Guðbjörn.

Hann tekur undir með þeim sem segja hring­torgin við Leifs­stöð vanda­mál. „Það er hár­rétt að vanda­málin við að kom­ast að og frá Kefla­vík­ur­flug­velli eru hring­torgin rétt hjá Flug­stöð­inni. Þetta vanda­mál er búið að vera til staðar í nokkur ár. Þó er rétt að minn­ast á nokkra staði á braut­inni sjálfri þar sem snjór safnar upp í hverjum skafrenn­ingi og ætti því ekki að koma á óvart,“ segir Guðbjörn.

Hann þekkir þetta á eigin skinni, því líkt og fyrr segir, lenti hann í slæmu bílslysi við þessar aðstæður. „Á þessum erf­iðu stöðum mynd­ast strax snjó­skaflar sem ekki eru stórir eða langir. Í einum slíkum dó ég næstum í hræði­legu bílslysi fyrir nokkrum árum, sem ég hef enn ekki jafnað mig á. Ég er því í grunn­inn sam­mála „eðli­legum lok­unum“ en verð að segja að mikið vantar upp á að snjó­ruðn­ingur hafi verið góður á liðnum árum. For­dæma­lausar aðstæður skap­ast oft á Íslandi vegna legu lands­ins og nátt­úru­afl­anna og við­brögð við þeim þarf að skipu­leggja og síðan bregð­ast við en ekki leggja hendur í skaut.“

Annar þekktur söngv­ari, Bergþór Pálsson, tekur undir með honum í athuga­semd og skrifar: „Sammála Guðbjörn, en stundum þurfum við að læra núvit­und, anda inn í aðstæður. Það er svo mikil heift í sam­fé­lag­inu að það skelfir mig. I gær var flugi að miklu leyti aflýst í Banda­ríkj­unum út af snjó­komu, það ger­ist á bestu bæjum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við