Jewells brá heldur betur í brún í verslunarferð sinni í október síðastliðnum. Hún var stödd í einni af verslunum Krónunnar þegar hún gekk fram á tvífara matreiðslumeistarans Gordon Ramsay sem gaf henni og öðrum viðskiptavinum Krónunnar að smakka grænkera-kjúklingakebab. Eins og Jewells ritar við myndskeiðið sem hún birti: „Hann er óhugnanlega líkur Gordon Ramsay“.
Jewells heldur úti allthingsIceland samfélagsmiðlinum TikTok. Þar kynnir hún Ísland og sýnir myndskeið um og frá Íslandi, auk þess er hún áhugamanneskja um grænkerafæði. Jewells hefur búið á Íslandi frá 2016 en hún er aðflutt frá New York, í Bandaríkjunum.































Athugasemdir