Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hrefnu-Konni fór á fund með móðguðum Davíð Oddssyni: „Hann tók í einn köggul á löngutöng á mér“

Hrefnu-Konni fór á fund með móðguðum Davíð Oddssyni: „Hann tók í einn köggul á löngutöng á mér“

Konráð Egg­erts­son eða Hrefnu-Konni eins og hann er oft kall­aður, var nýlega í við­tali við Reyni Trausta­son. Hér er brot úr því en Konráð er með ein­dæmum skemmti­legur sagna­maður.

Enginn Davíð

„Það var þannig að Davíð Oddsson var for­sæt­is­ráð­herra og við báðum um fund með honum. Ég var for­maður í félag­inu í tutt­ugu ár, í Félagi hrefnu­veiði­manna. Og jújú, við mætum á fund­inn allir, bæði að norðan og austan og héðan og þaðan. Við mætum sem sagt upp í stjórn­ar­ráð og setj­umst þar niður. Og tím­inn líður og ekki kemur Davíð og svo er klukkan komin langt yfir tím­ann og aldrei kemur Davíð. Við spyrjum hvernig standi á þessu og þá segir síma­stúlkan, voða almenni­lega stúlka bless­unin, hún segir „Ég bara veit ekki, skil þetta ekki, þetta hefur aldrei gerst áður.“. Og tím­inn líður og svo kallar maður ofan af lofti, aðstoð­ar­maður Davíðs. Við spjöllum við hann en ákveðum að sitja bara þangað til Davíð kemur en það var ekki sam­þykkt. Þannig að við förum út í bíl og kveikjum á útvarp­inu og þá var Davíð á Stöð 2 eða ein­hvern and­skot­ann að tippa á eitt­hvað, þetta var áður en hann fór í fýlu við Jón Ólafsson. Þannig að við fórum allir heim, Davíð kom aldrei.“

En þar með líkur ekki frá­sögn Hrefnu-Konna af Davíð Oddssyni því dag­inn eftir fékk hann sím­tal.

Ástæðan

„Daginn eftir fæ ég sím­tal frá aðstoða­manni Davíðs. Hann segir mér af hverju hann hafi ekki mætt. Það var vegna þess að ég hafði sagt í útvarp­inu nokkrum dögum áður, það var nú ósköp mein­laust, ég sagði „Ég trúi því ekki að for­sæt­is­ráð­herr­ann viti ekki um hvað hann er að tala.“. Það var ekk­ert annað. Svo ég segi Matta frá þessu, Matta Bjarna, hann var ráð­herra á þessum tíma. Og hann segir „Svona gera ekki menn! Ég kem á öðrum fundi.“. Svo er ég lát­inn vita hvenær við eigum að mæta. Þegar ég kem inn í stjórn­ar­ráðið sitja þar þrír eða fjórir menn, svaka­lega vel klæddir, mér er svo minnistætt hvað þeir voru vel klæddir. Þeir voru í svörtum fötum í hvítri skyrtu með bindi. Þá eru þetta menn að bíða eftir Davíð. Svo opn­ast hurðin. Okkur er bent á að koma inn. Með okkur var lög­fræð­ingur okkar sem hafði verið lög­fræð­ingur hjá okkur í mörg ár. Mér fannst að hann ætti að hafa orðið fyrir okkur. Svo labba ég síð­astur inn. Hann tók í einn köggul á löngu­töng á mér en heils­aði öllum hinum með handa­bandi.“

Og þá hófst fund­ur­inn.

Fundurinn

„Og svo förum við inn og hann segir „Jæja, hver er í for­svari fyrir ykkur og hvað vantar ykkur? Það bíða hér fjórir menn hér frammi og ég hef engan tíma til að tala við ykkur.“. Og við horfum hver á annan og vitum bara ekki hvar við erum staddir. Og ég hélt að lög­fræð­ing­ur­inn okkar ætli að byrja en svo var ekki. Þá segi ég „Davíð, hvar er kon­íakskaraflan?“. Nú héldu strák­arnir að ég væri orð­inn end­an­lega vit­laus, það fatt­aði þetta eng­inn. Þá brosir Davíð. Djöfull var hann fljótur að fatta þetta. Ég var nýbú­inn að lesa bók­ina Nokkrir dagar án Guðnýjar sem hann skrif­aði. Og hló mikið og las hana meira að segja upp­hátt fyrir kon­una. Mikil og skemmi­leg bók.“

Konni sagði Reyni frá einni frá­sögn úr bók Davíðs þar sem kon­íakskaraflan kemur við sögu. Og hélt svo áfram með sög­una af fund­inum með for­sæt­is­ráð­herr­anum móðg­aða.

„Og þetta var nóg. Þarna vorum við allt í einu komnir með allt ann­ann mann í fangið. Hann fór að segja brand­ara og skellti sér á læri og hló. Við hlóum líka, enda þorðum við ekki öðru. En hann var skemmti­legur hel­vítis karl­inn. Og hann segir okkur sem sagt brand­ara og svona og þá skiptu menn­irnir sem biðu fram engu máli! Ég man nú ekki hvað við vorum að biðja um á fund­inum en hann tók vel í það en svo segir ég við hann „En Davíð, ert þú sjálfur, per­sónu­lega á móti hval­veiðum?“. Þá segir hann „Já“ og ég spyr af hverju það sé. „Það skal ég segja þér. Sko, Helmut Kohl, hann er vinur minn og hann er á móti hval­veiðum. Og svo er hann eins og búr­hvalur í útliti.“. Og svo hló hann og hló og við allir líka, alveg eins og hálf­vitar. Þegar ég fór út þá tók hann svona fast í hönd­ina á mér og hristi.“

Hægt er að hlusta á þetta bráð­skemmti­lega við­tal í heild sinni hér og hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina