Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Brynjar með völvuspá fyrir 2023: „Einhver aðstoðarmaður ráðherra mun skandalísera á árinu“

Brynjar með völvuspá fyrir 2023: „Einhver aðstoðarmaður ráðherra mun skandalísera á árinu“
Mynd / Skjáskot af Facebook.

Brynjar Níelsson steig fram á Facebook í dag með völvu­spá sem hann sagð­ist hafa fengið í hend­urnar frá eldri konu. Í „spánni“ dregur hann vinstri­menn sundur og saman í háði.

Brynjar Níelsson, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og núver­andi aðstoða­maður Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra, skrif­aði færslu á Facebook fyrir stundu þar sem hann seg­ist sækja nám­skeið hjá Karli Th. Birg­is­syni um „list­ina að halda kjafti“ eins og hann orðar það. Þá kemur hann fram með völvu­spá þar sem hann lætur vinstri­menn fá það óþvegið og má segja að allt það sem Brynjar hefur verið gagn­rýndur fyrir í gegnum tíð­ina, skíni vel í gegnum alla spánna en sitt sýn­ist sjálf­sagt hverjum. Hér er færslan í heild sinni:

„Gleðileg jól, kæru fés­bók­ar­vinir. Ég hef haft til­tölu­lega hljótt um mig á fés­bók­inni und­an­farið. Ástæðan er sú að ég sæki nám­skeið hjá Karli Th. Birg­is­syni um list­ina að kunna að þegja eða halda kjafti eins og hann orðar það. Þetta er nám­skeið sem er ætlað öðrum en vinstri mönnum og er fjár­magnað af Sam­fylk­ing­unni og Pírötum með pen­ingum úr rík­is­sjóði. Þá hafa vinstri flokk­arnir boðið upp á nám­skeið hvernig mis­fara á með skattfé en láta það líta út sem mann­gæsku. En þar sem ég er að læra list­ina að þegja ætla ég á næst­unni að birta texta eftir aðra og byrja á völvu­spá fyrir næsta ár sem gömul kona úr vest­urbæ sendi mér og bað mig um að koma á fram­færi. Hún er svona orð­rétt:

“Mikið mun ger­ast í heimi fjöl­miðla á nýju ári. Stundin og Kjarninn munu sam­ein­ast til að efla rann­sókn­ar­blaða­mennsku, ekki síst til að upp­lýsa um kenni­tölu­flakk í íslensku sam­fé­lagi. Blaða­menn munu verð­launa hvern annan á árinu sem aldrei fyrr fyrir að upp­lýsa um spill­ingu og brot án þess að nokkuð upp­lýs­ist frekar en áður. Nokkur ólga mun verða innan fjöl­miðla­heims­ins sem mun brjót­ast út í miklum mót­mælum yfir aðför stjórn­valda gegn þeim, einkum vegna þess að ætl­ast er til að það gildi sömu lög og reglur um þá og aðra og svo yfir því að dregið verður úr fjár­streymni til þeirra úr vasa skatt­greið­enda. Það endar með stórum úti­fundi á Aust­ur­velli þar sem lista­menn á launa­skrá rík­is­ins koma fram og Kristinn Hrafns­son verður með uppi­stand ásamt Stefáni Ingvari Vig­fús­syni. Þá mun fram­kvæmda­stjóri Transparency International flytja erindi á fund­inum um mun­inn á góðri spill­ingu og vondri spill­ingu.

Í heimi stjórn­mála munu ráð­herrar kepp­ast við að greiða bætur úr rík­is­sjóði. Mér sýn­ist dóms­mála­ráð­herra ætla að greiða afkom­endum Agnesar og Friðriks í beinan legg töl­verða fjár­hæð enda það mál hvílt mjög á lands­mönnum, ekki síst Hún­vetn­ingum, en dóms­mála­ráð­herra var einu sinni sauð­fjár­bóndi á Bark­ar­stöðum í Hún­vatns­sýslu og á þar sterkar rætur. Þá mun barna­mála­ráð­herra leggja til að ung­börnum sem látin voru sofa úti í barna­vagni hjá dag­mömmum, oft grát­andi, verði greiddar bætur. Einnig börnum sem voru á árum áður í beisli bundin við girð­ing­una í garð­inum, og munu það vera nán­ast allir lands­menn sem komnir eru yfir sex­tugt.

Það verða tals­verðar breyt­ingar á þing­inu. Einhver Pírati mun flytja til Írans, jafn­vel fleiri en einn, ásamt mörgum fem­inistum, sem telja staða kvenna sé betri þar en hér á landi, bæði hvað varðar borg­ar­leg rétt­indi og klæða­burð. Þá mun Pírati, sem hefur verið áber­andi á alþjóð­legum vett­vangi, en eng­inn hlustar á, halda nám­skeið um póli­tíska ábyrgð og hvernig sú ábyrgð teng­ist siða­reglum eða ekki. Einhver hringlandi verður á ráð­herra­lið­inu og mér sýn­ist að þeir verði látnir taka pok­ann sinn sem eitt­hvert gagn hafa gert. Einhver aðstoð­ar­maður ráð­herra mun skandalísera á árinu og verður lát­inn fara. Sé ekki alveg hver það er en hann er karl­kyns og hefur ekki útlitið með sér.

Ástandið í Reykja­vík­ur­borg mun batna mikið þegar líður á árið. Það mun hætta að snjóa í sumar þegar þjón­ustu­hand­bæk­urnar verða loks­ins upp­færðar eftir þrot­lausa vinnu margra starfs­hópa. Jafn­framt mun draga úr lofts­lagskvíða meiri­hlut­ans í borg­inni og orðið ham­fara­hlýnun mun heyr­ast sjaldnar. Ég sé að borgin ætlar að taka á fjár­hags­vand­anum með því að syngja á fundum borg­ar­stjórnar og halda geð­sjúkum heima hjá sér. Þess á milli ætlar meiri­hlut­inn í borg­inni að skála í kampa­víni saman á Kjar­vals­stofu til að fagna því hversu æðis­leg þau eru.

Mik­il­væg­ustu rík­is­fyr­ir­tækin, ÁTVR og RÚV, munu eiga erfitt upp­dráttar á nýju ári. Á end­anum nennir eng­inn að hlusta á sama fólkið í Vikunni hjá Gísla Marteini upp­hefja sjálfan sig og tala illa um aðra og enda­lausar fréttir frá frétta­stof­unni um ham­fara­hlýnun, kynsegin fólk og mann­vonsku sem fylgir hval­veiðum. Þá mun RÚV afleggja allar siða­reglur um starfs­menn sína sem og aðrar reglur enda almanna­út­varp í almanna­eigu. Enn erf­ið­ara verður árið fyrir ÁTVR. Lands­menn eru komnir á þann stað að vilja kaupa áfengi ann­ars staðar en í versl­unum ÁTVR eins og þeir vildu á sínum tíma kaupa mjólk­ur­vörur í öðrum búðum en mjólk­ur­búðum. Mér sýn­ist samt ÁTVR lifa árið af og jafn­vel lengur ef fram­sókn­ar­menn í öllum flokkum verða svona margir áfram.”

Svona mörg voru orð völv­unnar. Hún hefur reynst sann­spá í gegnum tíð­ina. Hefur til að mynda spáð jarð­hrær­ingum og eld­gosum á Íslandi, sem hefur heldur betur reynst rétt. Ekki á hvers manns færi að sjá það fyrir. Ég sleppti að vísu úr spánni því sem gæti verið móðg­andi fyrir ein­hverja. Það er nefni­lega kennt á nám­skeið­inu um list­ina að þegja að rit­stýra og þagga niður allt óþægi­legt. Það er kennt í kafl­anum um hat­urs­orð­ræðu en það hug­tak var fundið upp á gamla Þjóð­vilj­anum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina