Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Myrtu Bretar frægustu söngkonu Sýrlendinga? – Nýr hlaðvarpsþáttur Jóns Sigurðar birtist í kvöld

Myrtu Bretar frægustu söngkonu Sýrlendinga? – Nýr hlaðvarpsþáttur Jóns Sigurðar birtist í kvöld
Asmahan

Sumarið 1944 lætur söng­konan Asmahan lífið er bif­reið, sem hún var far­þegi í, var ekið útí Níl­ar­fljót í egyp­sku borg­inni Mansúra. Vinkona hennar sem einnig sat í bílnum lést sömu­leiðis en öku­mað­ur­inn lifði ósköpin af og komst þar að auki undan. Asmahan, sem er fræg­asta söng­kona sem Sýr­lend­ingar hafa alið, var á hátindi frægðar sinnar og til­beðin hvar­vetna sem arab­íska var töluð og jafn­vel víðar. Það var því ekki að undra að fjöl­miðlar, sem og almen­ingur, veltu því fyrir sér hverjir vildu koma henni fyrir katt­ar­nef en minnstar líkur bentu til þess að um slys hefði verið að ræða. Sú kenn­ing sem hæðst hefur flogið er sú að breska leyni­þjón­ustan hafi verið þar að verki en Asmahan var njósn­ari í síð­ari heim­styrj­öld­inni og átti í sam­starfi við Banda­menn sem fór útum þúfur. Bendir ýmis­legt til að hún hafi, meira að segja, reynt að snúa sér til andtæð­inga þeirra, Nasista, þegar henni þótti ljóst að Banda­menn ætl­uðu að svíkja sig. 

Þannig bar til að söng­konan til­heyrði trú­ar­hópi sem kall­aður er Drús og hafði hún, í krafti frægðar sinnar og ætt­ar­tengsla, mikil áhrif í þeim hópi. Þegar Nasistar gerðu víð­reist um Mið­aust­ur­lönd greip Charles de Gaulle hers­höfð­ini Frakka á það ráð að fá Asmahan til að sann­færa landa sína um að veita ekki við­nám er Banda­menn legðu þar undir sig lönd. Á móti lof­aði hann því að þegar búið yrði að stöðva fram­rás Þjóð­verja og búa vel í hag­inn þar í botni Mið­jarð­ar­hafs myndu þeir veita bæði Líbanon og Sýrlandi sjálf­stæði. En eitt­hvað stóð á efndum og voru landar hennar farnir að hafa orð á því að hún hefði látið plata sig. Asmahan fór þá áleiðis til Tyrk­lands, þar sem Þjóð­verjar voru fyrir á fleti, en var hand­tekin áður en hún náði á fund þeirra. Ekki er ljóst hvað henni stóð til en sumir hyggja að hún hafi haft í huga að leggj­ast á árar með Nasistum í hefnd­ar­skyni en það er þó ekki víst. Hins­vegar liggur ljóst fyrir að sam­stafið fór á versta veg. Asmahan komst hins­vegar aftur til Kæró í Egypta­landi þar sem hún tók upp þráð­inn þar sem frá var horfið á söng­ferl­inum. En það stóð ekki lengi því, einsog fyrr segir, lést hún áður en Heim­styrj­öld­inni lauk. 

Því hefur líka verið fleygt að menn hand­gengnir stór­stjörn­unni, söng­kon­unni egyp­sku Um Kúlþúm, hafi myrt hana til að losa þá egyp­sku við hat­ramma sam­keppni. Um Kúlþúm er lík­leg­ast fræg­asti arabi sem uppi hefur verið og er stundum sagt að ágæti hennar sé það eina sem allir Arabar geti verið sam­mála um. Ekkert hefur verið sannað í þessum efnum fremur en öðrum.

Enn aðrir láta að því liggja að fjöl­skyldan heima á Sýrlandi hafi haft horn í síðu hennar en hún lifði gjör­sam­lega á skjön við þær hefðir, siði og reglur sem þar ríktu. Þótti sumum þar heima að hún hefði flekkað orð­spor fjöl­skyld­unnar. Til dæmis reykti hún einsog strompur og drakk sitt viskí, átti ást­menn og vafði sumum þeirra um fingur sér. Svo hafði frændi hennar, Hassan að nafni, sann­fært hana eitt sinn um að láta söng­fer­ilin lönd og leið og gift­ast sér, koma til Sýrlands og sinna börnum og búi. Lét hún þetta eftir honum en sam­búð­inni lauk eftir mikið drama þar sem Asmahan reyndi að svifta sig lífi. 

Hvað sem öllum kenn­ingum líður, má víst vera að Asmahan var ein­stök kona, langt á undan sinni sam­tíð og að lögin sem hún gerði fræg munu lík­leg­ast hljóma svo lengi sem arab­íska er sungin.

Um þetta áhuga­verða mál er rætt í nýjasta hlað­varps­þætt­inum Rúntað með Rucio sem hægt er að hlusta á hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við