Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Berglind segir Auði til syndanna: „Þú getur rakið sorgarsögu þína þar til þú ert blá í framan“

Berglind segir Auði til syndanna: „Þú getur rakið sorgarsögu þína þar til þú ert blá í framan“
Auður Jóns­dóttir Mynd: Kazuma Takigawa

Rit­höf­und­ur­inn Berglind Ósk gefur ekk­ert eftir í rit­deilu sinni við rit­höf­und­inn Auði Jóns­dóttur og segir hana samt kúlt­úr­barn með gíf­ur­leg for­rétt­indi. Deil­urnar hófust þegar Berglind skrif­aði pistil þar sem hún gagn­rýndi sterka stöðu barna þjóð­þekktra lista­manna innan list­anna.

Auður brást við þeim pistli í gær með pistli sem hún birti á Facebook. Þar seg­ist hún hafa fengið upp í kok á því að vera sífellt tengd við afa sinn, Halldór Laxness. Hún sagði að líf sitt hafi ekki verið dans á rósum þrátt fyrir að vera barna­barn Nóbelskálds­ins.

Auður hefur fengið nóg af ósann­gjarnri gagn­rýni: „Jaðrar við að vera æru­meið­ingar“

Í dag birtir Berglind svar við þeim pistli og þar gefur hún ekk­ert eftir. Hann má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Kæra Auður, svo við erum ekki að fara að skrifa bók saman eftir allt?

Þú getur rakið sorg­ar­sögu þína þar til þú ert blá í framan og þóst vita eitt­hvað um líf mitt. Þú ert samt kúlt­úr­barn. Það skiptir engu máli hvort ég sé edrú eða ekki, hvort ég sé með rekstur (ég vinn sem fríl­ans­ari) eða sé ein­stæð móðir. Þú ert samt kúlt­úr­barn. Það skiptir ekki máli að þú og Kamilla séu ein­stæðar mæður. Þið eruð samt kúlt­úr­börn. Hver gaf þér ann­ars leyfi til að deila þinni útgáfu af mínu lífi með tæp­lega 5000 fylgj­endum á Facebook og er svo pikkað upp af fjöl­miðlum?

Það er þitt val að taka þessu svona per­sónu­lega, eins og ég hefði sagt að þú værir slæmur rit­höf­undur, ég hef aldrei sagt hvað mér finnst um það. Þú ert vin­sæll met­sölu­höf­undur með hrúgu af verð­launum og við­ur­kenn­ingum, af hverju stend­urðu bara ekki með þér og ferð ekki í kerfi þegar bók­mennta­blað sem þú rit­stýrir er gagn­rýnt.

Þú talar um æru­meið­ingar, var það kafli í bók­inni þinni um tján­ing­ar­frelsi? Að þegar ungur rit­höf­undur sem er að fóta sig í bók­mennta­heim­inum gagn­rýnir valda­fólk, séu það æru­meið­ingar? Nú skil ég betur af hverju rit­höf­undar þora ekki að gagn­rýna neitt í okkar geira – út af við­brögðum eins og þínum og hvernig þú notar „menn­ing­ar­auð­magn” þitt til að kæfa gagn­rýni.

Umræðan um kúlt­úr­börn er ekki per­sónu­leg her­ferð gegn þér eða öðrum kúlt­úr­börnum sem hafið baköpp í með­fæddu menn­ing­ar­auð­magni (btw, fólk eins og ég sem stend fyrir utan bók­mennta­el­ít­una vissi ekki fyrr en nýlega hvað þetta háfleyga orð þýðir. Eitt dæmi um gjá sem kúlt­ur­barn sér ekki. Fyrir ykkur sem skiljð þetta ekki, þá þýðir þetta það menn­ing­ar­lega ríki­dæmi og vald sem fólk hefur – og sem kúlt­úr­börn fæð­ast með og aðrir geta að ein­hverju leyti unnið sér inn – nú eða keypt sér, með því að kom­ast að í menn­ing­unni og öðl­ast virð­ingu). Heim­ur­inn vill ræða þetta, þótt þú virð­ist vera ófær um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina