Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Auður hefur fengið nóg af ósanngjarnri gagnrýni: „Jaðrar við að vera ærumeiðingar“

Auður hefur fengið nóg af ósanngjarnri gagnrýni: „Jaðrar við að vera ærumeiðingar“
Auður Jóns­dóttir Mynd: Kazuma Takigawa

„Þegar ég var 24 ára var ég grey. Ég var nýskilin við mann sem var um 20 árum eldri en ég, búinn að missa ein­hverjar tennur og á góðri leið með að drekka sig í hel. Hann lést ein­hverjum árum síðar. Mér fannst ég ekki eiga neitt betra skilið. Ég vann í frysti­húsi og á öldr­un­ar­heim­ili fyrir vestan meðan við vorum saman, nema síð­asta miss­erið fyrir sunnan, þá vann ég sem þjón­ustu­full­trúi á Stöð 2, vann fyrir okkur báðum, og var byrjuð að skrifa sögu á ferm­ing­ar­rit­vél­ina mína, búin að hnoða saman ein­hverjum síðum.“ Svo byrjar langur og öfl­ugur pist­ill Auðar Jóns­dóttur rit­höf­unds sem hún birti í dag á Facebook.

Í pistl­inum talar hún um að hafa fengið að heyra það frá því að hún var 24 ára gömul að hún fái aðeins útgefið eftir sig bækur vegna þess að afi hennar var Halldór Kiljan Laxness. Þá segir hún frá enn einni gagn­rýn­inni á sig er hún gaf út bóka­blað fyrir Stundina en nýr höf­undur hafði kallað blaðið for­rétt­inda­blað vegna þess að hún væri barna­barn afa síns og Kamilla sem einnig skrif­aði í blaðið væri Ein­ars­dóttir Kára­sonar.

„Nýr höf­undur, sem hafði þá ekki ennþá fengið dóm, sem þó var þá þegar í vinnslu, gagn­rýndi mig þá fyrir að rit­stýra for­rétt­inda­blaði, þar sem ég væri barna­barn afa míns. Auk þess væri Kamilla, dóttir Einars Kára­sonar, væri að skrifa í það, en við værum kúlt­úr­börn, for­rétt­inda­börn. Með Kamillu veit ég að hún er þriggja barna sjálf­stæð móðir og starf­andi bóka­vörður sem byrj­aði að skrifa um fer­tugt þegar bóka­for­lag fór þess á leit við hana, en ástæðan var aldrei pabbi hennar, heldur það að hún hafði vakið mikla athygli fyrir að vera óvenju fynd­inn penni á twitter. En það hefur lengi tíðkast að skap­andi útgef­endur pikki í fólk sem þeim finnst snið­ugt að hvetja til að skrifa bók. Útgef­andi hennar hafði reyndar gert það í þó nokkur skipti, pikkað í ólík­leg­asta fólk.“

Auður tal­aði einnig um Eirík Örn Norðdahl sem hafi fyrir nokkrum árum gert grín að henni fyrir að skrifa of mikið um með­virkni. Hún mætti honum í Lestinni á Rás 1 til að svara fyrir gagn­rýni nýja rit­höf­und­ar­ins á bóka­blaðið sem hún rit­stýrði.

„En í þessu bloggi, og í útvarps­við­tali í Lestinni, þar sem ég mætti Eiríki Erni, útmál­aði hann okkur Kamillu sem ein­hvers konar Bjarna Ben bóka­menn­ing­ar­innar, eins og eina ástæðan fyrir skrifum okkar væri ætt­erni okkar. Skyndi­lega sat ég, kona sem verður fimm­tug á næsta ár, að svara and­móð fyrir hvernig ég fékk fyrsta útgáfu­samn­ing­inn minn fyrir fjórð­ungi úr öld síðan.

Til að styrkja mál­flutn­ing sinn mál­aði hann unga höf­und­inn sem hafði bloggað um okkur upp sem fíkni­efna­neyt­anda á leigu­mark­aði sem ætti erfitt upp­dráttar. Í ljós kom að konan er öfl­ugur for­rit­ari með rekstur við að aðstoða fyr­ir­tæki með texta­gerð, búin að vera edrú lengi og kærasta eins kröft­ug­asta rit­höf­undar þjóð­ar­innar. Auk þess var hún þá búin að fá eins marga dóma og Ólafur Jóhann og búin að vera í Kiljunni, og útskrifuð úr rit­list við Háskóla Íslands. Í við­tal­inu kom þetta hins vegar út eins og ég, spillti nóbels­erf­ing­inn væri að ham­ast á brot­inni konu sem kæm­ist ekki að út af fólki eins og mér.Þess ber að geta að Eiríkur Örn gaf út bók 26 ára, auk þess að hafa ungur tekið sér pláss með bloggi, þrungnu gild­is­hlöðnu áliti á bók­menntum og kol­legum sínum, og raunar síðar með því að rit­stýra sjálfur menn­ing­ar­miðli, Starafugli, og hafa lengi til­heyrt fyr­ir­ferð­ar­mik­illi hreyf­ingu í bóka­líf­inu sem kall­að­ist Nýhil. Hann var þarna því að konan sem hafði gagn­rýnt mig treysti sér ekki til að mæta mér svo þetta yrði ekki per­sónu­legt, þannig að hann var mættur, gam­all vinur kærasta hennar, Steinars Braga. Hann yfir­heyrði mig í við­tal­inu eins og spilltan við­skipta­jöfur, já, eins og ég væri lodd­ar­inn og svindl­ar­inn sem ég hef alla ævi verið stöðugt að reyna að telja mér trú um að ég sé ekki, þó að ég skrifi og gefi út. Og jú, hafi gefið út bækur á níu tungu­málum og leik­rit og bíó­myndir verið byggðar á þeim.Nefni­lega: Konan sem fær útgefið af því að afi hennar hét Halldór Laxness. Ekki af því að hún getur skrifað. Konan sem fær útgefið út á karl­mann­inn, afa sinn. Menn­ing­ar­auð­magn hans. Feita Salka Valka með áskrift á til­nefn­ingar, eins og einn jafn­aldra karl­kyns kollegi minn upp­nefndi mig í bók þegar ég var tölu­vert yngri. Og spegl­aði þannig upp­lifun mína af sjálfri mér, eftir að hafa hlustað á þessa sömu plötu aftur og aftur og aftur, síðan ég var 24 ára. Að þykj­ast vera afi sinn! Að skrifa af því hún er svo upp­tekin af honum. Að nýta sér

ætt­ernið til að svindla á öðrum.“

Í loka­orðum sínum segir Auður að nóg sé komið af gagn­rýni á hana út frá ætt­erni hennar.

„Ég hef upp­lifað alls­konar umræður og gagn­rýni á 25 ára ferli. En þetta, með afa minn, það er komið nóg af því. Og það að hafa lesið í fjórum fjöl­miðlum fyrir jól að ég hafi haft umsjón með for­rétt­inda­blaði út af ætt­erni mínu jaðrar við að vera æru­meið­ingar.“

Hér fyrir neðan má lesa pistlinn í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina