Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hvítasunnudagur á Hallveigarstíg: „Á næsta augnabliki heyrði ég skothvell og drengurinn datt niður“

Hvítasunnudagur á Hallveigarstíg: „Á næsta augnabliki heyrði ég skothvell og drengurinn datt niður“

Það er hvíta­sunnu­dagur. Tveir drengir leika sér við varð­stöð Banda­ríkja­hers við Hall­veig­ar­stíg og annar þeirra fer upp í bíl á vegum hers­ins og startar bílnum. Hermaður sem hafði haft afskipti af þeim rétt áður, rekur dreng­inn út úr bílnum og dreng­ur­inn hlýðir. Her­mað­ur­inn gengur upp að drengnum og leggur byssu­hlaup við gagn­auga hans. Og tekur í gikk­inn. Lífvana dreng­ur­inn dettur í jörð­ina. Þessi hvíta­sunnu­dagur er orð­inn kol­svartur. Þetta var árið 1942.

Í blað­inu Íslend­ingur er atvik­inu svo lýst:

Á hvíta­sunnu­dag kl. 11 árdegis gerð­ist sá óheyri­legi atburður í Reykja­vík, að amer­ískur her­maður skaut 12 ára dreng til bana, er var að leik með öðrum dreng nálægt varð­stöðvum her­manns­ins. Þetta furðu­lega glæpa­verk gerði hvíta­sunnu­há­tíð­ina að sorg­ar­degi í Reykja­vík og ann­ars­staðar, er fregnin spurð­ist. Dreng­ur­inn hét Jón Hinrik Bene­dikts­son og átti heima aö Ing­ólfs­stræti 21 í Reykja­vík. Her­mað­ur­inn og yfir­menn hans voru óðar hand­teknir, en her­stjórn og sendi­herra Banda­ríkj­anna lýstu yfir harmi sínum yfir þessum atburði. Málið er enn ekki upp­lýst að fullu, en frek­ari upp­lýs­ingar hljóta að varða gefnar mjög bráð­lega.

Frásagnir vitna

Í Morg­un­blað­inu var fjallað ítar­lega um málið en meðal þess sem fram kom þar voru frá­sagnir nokk­urra vitna.

Ein frá­sögnin kemur frá leik­bróður Jóns, Guðmundi.

„Fyrir hádegi í dag hitti jeg leik­bróðir minn, Jón Hinrik Bene­dikts­son. Hann ætl­aði að kaupa sjer filmu í mynda­vjel og fór jeg með honum í Lyfja­búð­irnar Ingólfs Apótek, Reykja­víkur Apótek og Lauga­vegs­apó­tek, en hvergi var filmu að fá. Þegar við komum úr Lauga­vegs Apóteki gengum við suður Berg­staða­stræti óg niður Hall­veig­ar­stíg, fram­hjá her­stöð­inni, sem er þar norð­an­megin göt­unnar. Við stopp­uðum móts við her­mann, sem stóð á verði á Hall­veig­ar­stígnum, móts við her­búð­irnar. Svo kom her­maður og festi upp aug­lýs­ingu í varð­manns­skýlið. Við Jón fórum að skýl­inu og lásum aug­lýs­ing­una. Svo gengum við niður með girð­ing­unni, niður að Ing­ólfs­stræti. Jeg var með skamm­byssu, tálg­aða úr trje. Jón kippti af mjer byss­unni og henti henni yfir girð­ing­una inn á milli her­búð­anna. Jón stökk svo aftur upp á móts við varð­mann­inn og jeg sagði honum að ná í byss­una.

Um sama leyti tók her­maður byss­una og kastaði henni út fyrir girð­ing­una og greip hana þá lít­ill strákur, sem var þar fyrir utan. Jón hljóp inn um hliðið á girð­ing­unni, fram­hjá varð­mann­inum. Varð­mað­ur­inn kall­aði þá til hans og, að mjer skild­ist, skip­aði honum að koma út og hlýddi Jón því strax. Jeg var með dolk í slíðri, sem var fest í streng­inn á bux­unum mínum og tók jeg nú dolk­inn og fór að kasta honum í ljósa­staur, sem stendur skamt frá stað þeim, sem varð­mað­ur­inn stóð á og var jeg að reyna að láta odd­inn sting­ast í staur­inn. Jeg lán­aði svo Jóni dolk­inn og hann gerði það sama og jeg, kastaði honum í staur­inn og reyndi að láta odd­inn sting­ast í trjeð. Þar næst fór Jón upp í lít­inn bíl, sem stóð við girð­ing­una, rjett hjá varð­mann­inum. Jón fiktaði við stýrið á bif­reið­inni, en gerði ekki annað. Varð­mað­ur­inn kom þá út úr skýl­inu og kall­aði til Jóns og fór Jón þá niður úr bílnum.

Þá vildi jeg fara heim, en Jón sagði að við skyldum bíða til kl. 12, því þá mundu her­menn­irnir gefa okkur epli, það væri hátíð­is­dagur hjá þeim í dag. Jeg var til með að bíða. Við stóðum svo þarna á göt­unni og töl­uðum eitt­hvað saman. Svo fór Jón aftur upp í sama bíl­inn og áður og fór þá að ,starta’ bílnum. Varð­mað­ur­inn kom þá aftur út úr byrg­inu, gekk að bílnum og skip­aði honum út úr bílnum, að því er mjer skild­ist. Jón hlýddi því strax og fór út úr bílnum. Jón fór svo upp að girð­ing­unni bak við bíl­inn og jeg kom þangað til hans. Varð­mað­ur­inn var með stóra byssu, jeg heyrði og sá að hann spenti byss­una upp. Þá var hann götu­megin við bíl­inn. Svo gekk hann að Jóni og beindi byssu­hlaup­inu að höfð­inu á honum, svo reið skotið af, Jón fjell í göt­una og jeg sá að blóð rann úr vitum hans. Varð­mað­ur­inn gekk svo í burtu án þess að hreyfa neitt við Jóni, en jeg hljóp í burtu niður á Ing­ólfs­stræti og svo skemstu leið heim til mín.“

Gunn­laugur Magn­ús­son skrif­stofu­maður var eitt af vitn­unum.

„Jeg bý á fyrstu hæð húss­ins Hall­veig­ar­stíg 2, og er þar her­bergi mitt austan megin við for­stofu­inn­gang­inn og snýr her­berg­is­glugg­inn út að Hall­veig­ar­stígnum. Í morgun, þegar jeg var að klæða mig, varð mjer litið út um her­berg­is­glugg­ann og sá þá her­menn standa við end­ann á bif­reið, sem stóð rjett fyrir vestan varð­manns­skýlið. Her­mað­ur­inn beindi byssu að dreng, sem stóð þar fyrir framan hann upp við girð­ing­una. Á næsta augna­bliki heyrði jeg skot­hvell og dreng­ur­inn datt niður í göt­una og lenti með höf­uðið ofan í litlum vatns­polli, sem var þar á göt­unni á milli girð­ing­ar­innar og bíls­ins. Her­mað­ur­inn gekk svo í burtu og inn í her­búð­irnar, en nokkrir her­menn komu út í girð­ing­ar­hliðið og einn her­maður gekk að drengnum með teppi og breiddi yfir hann. Alveg rjett á eftir komu tveir her­menn með börur og báru dreng­inn inn í her­búð­irnar. Jeg heyrði ekki nema einn skot­hvell.“

Sendi­herra Banda­ríkj­anna á Íslandi á stríðs­ár­unum hét Lincoln MacVeagh en hann sendi yfir­lýs­ingu á alla helstu fjöl­miðla lands­ins þar sem hann harm­aði atburð­inn.

„Það hefir fengið mjög á alla sanna Banda­ríkja­menn við frjett­irnar um hinn sorg­lega atburð. Við erum hjer á íslandi sem vinir íslands til að gera gott en ekki ilt og við óskum að hjálpa land­inu á allan mögu­legan hátt. Við lítum á það sem heiður fyrir okkur að dvelja hjer, og okkur er það sjer­stakur harmur að við skulum vera valdir að sorg hjer á landi. Verið er að rann­saka þetta mál, en það er hægt að segja það strax, að það er sjer­stak­lega hræði­legt í augum Banda­ríkja­manna sem elska börn, að dreng­ur­inn skuli hafa verið skot­inn til bana. Hin harmi lostna fjöl­skylda og allir sorg­mæddir Islend­ingar mega vera vissir um, að ótelj­andi Banda­ríkja­menn syrgja með þeim af heilum hug.“

Neitaði sök

Málið vakti skilj­an­lega mik­inn óhug á Íslandi enda ekki á hverjum degi sem morð var framið á land­inu, hvað þá á barni. Her­mað­ur­inn sagði skotið hafa verið slysa­skot en hann fór fyrir her­rétt í Banda­ríkj­unum. Alþýðu­blaðið sagði svo frá úrskurð­inum í mál­inu:

Mál litla drengs­ins, Jóns Bene­dikts­sonar, sem skot­inn var til bana af amer­íkskum her­manni síð­ast­lið­inn hvíta­sunnu­dags­morgun: Her­mað­ur­inn reynd­ist sjúkur af brjál­semi. Var hann sendur í geð­veikra­hæli í Banda­ríkj­unum.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst 7. jan­úar 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina