Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Líkið fannst í klefa siglingafræðings: „Um orsök slyssins verður ekkert sagt með vissu“

Líkið fannst í klefa siglingafræðings: „Um orsök slyssins verður ekkert sagt með vissu“

Þann 16. maí 1952 brot­lendi björg­un­ar­flug­vél af gerð­inni Grumman Albatross á Eyja­fjalla­jökli. Inn­an­borðs voru fjórir banda­rískir her­menn. Nokkrum dögum síðar fannst flakið en aðeins eitt lík. Var jafn­vel talið að ein­hverjir hefðu lifað brot­lend­ing­una af en heilum 14 árum síðar fund­ust lík hinna þriggja.

Alþýðu­blaðið fjall­aði um flaks­fund­inn á sínum tíma:

Ameríska björg­un­ar­flug­vélin fannst upp á Eyja­fjalla­jökli í gær.

Lík eins af áhöfn­inni fannst í flak­inu en ókunn­ugt er um afdrif hinna.

Neyð­ar­send­is­loft­nef, sem fannst, bendir þó til, að ein­hver hafi lifað flug­slysið af.

AMERÍSKA björg­un­ar­flug­vélin, sem týnd­ist á föstu­dag­inn, fannst skömmu eftir hádegi í gær all­hátt á Eyja­fjalla­jökli suð­vest­an­verðum. Hún var á kafi í snjó, mikið brotin og á hvolfi, og lík eins manns úr áhöfn hennar fannst í flak­inu. Hinir fjórir af áhöfn­inni voru ófundnir, er síð­ast frétt­ist í gærkveldi, og ókunn­ugt um afdrif þeirra.

Neyð­ar­send­is­loft­net sem fannst á sunnu­dag­inn norð­austan á jökl­inum bendir þó til þess að ein­hver eða ein­hverjir af áhöfn vél­ar­innar hafi komizt lífs af úr sjálfu flug­slys­inu, hvað sem síðar hefur hent. Slíkt loft­net höfðu flug­menni­mir með­ferðis og þykir engin önnur skýr­ing koma til greina en sú, að ein­hver af áhöfn­inni hafi eftir slysið náð að setja það upp til að koma skeytum til manna, en það síðan fokið og borizt með vind­inum norður á jökul, enda vind j áttin mjög í stefnu frá flakk inu á þann stað, þar sem loft netið fannst.

Stjórn leit­ar­innar hefur flug umferð­ar­stjórnin á Reykja­vík­ur­flug­velli, svo og stjórn flug­björg­un­ar­sveit­ar­innar, sem lagt hefur til mest­allan mann­afla, en auk þess hefur verið haft allt sam­ráð við Kefla­vík­ur­flug­völl. Milli þrjá­tíu og fjöru­tíu leit­ar­menn voru austur á Eyja­fjalla­jölki og við hann í gær og allt að því fimm flug­vélar tóku þátt í leit­inni og voru til aðstoðar, eftir að flakið fannst. Leit­ar­menn hafa tal­stöðvar, en sakir slæmra hlust­un­ar­skil­yrða voru fregnir að austan nokkuð á reiki í gær og dálítið óljósar.

ÓVEÐUR TAFÐI LEITINA

Leitin var í upp­hafi skipu­lögð þannig að tveir flokkar skyldu leggja á jökul­inn frá Stóru-Mörk, en einn frá Þor­valds­eyri. Flokk­ur­inn, sem fór að Þor­valds­eyri, átti að leita sunn­an­verðan jökul­inn, en hinir tveir norð­ur­hluta hans og hábung­una. Var leit hafin þegar á laug­ar­dags­nótt sakir stór­viðris og hríðar týfðu leit­ar­menn frá að hverfa. Síðdegis á laug­ar­dag­inn var lagt af stað á ný. Höfðu leit­ar­menn með sér við­leg­u­út­búnað og hugð­ust verða á jökl­inum, unz veðr­inu, slot­aði, en það var þá hið versta. Urðu leita­menn þá enn að snúa við og komu til byggða á sunnu­dags­morgun.

LOFTNETIÐ FINNST

Á sunnu­dag­inn var bætt við mönnum í leit­ina og allt búið undir víð­tæka leit. Fór þá flokkur manna inn með jöklirium norð­an­verðum og gekk þaðan á jökul­inn upp i 1200 metra hæð. Rákust þeir þar á jökl­inum á flug­dreka og víra­flækju, sem þeim þótti senni­legt, að væri úr flug­vél­inni. Þeir komu með drek­ann til byggða, en hann var sóttur ur austur í nótt og farið með hann suður á Kefla­vík­ur­flug­völl. Var þar stað­fest, að þetta væri loft­net frá neyð­arsendi, sem verið hafði í flug­vél­inni. Guð­mundur Jónasson bif­reiða­stjóri og menn með honum gengu á hájökul­inn í fyrr­inótt og fundu hjá Skerjum, sem er kletta­röðu.ll upp úr jökl­inum norð­vest­an­verðum, bréfsnuddur í snjónum. Þeir urðu ekki ann­ars vís­ari, ,og; komu til byggða kl. 8 í gær­morgun.

FLAKIÐ FINNST

Einn flokkur enn fór að leita á sunnu­dag­inn undir stjórn Árna Stef­áns­sonar bif­véla­virkja. Voru auk hans í flokknum þrír Íslend­ingar og tveir Banda­ríkja­menn. Hafði flokk­ur­inn skrið­bíl og lagði á jökul iriri frá Syðstu-Mörk. Þessir menn voru á ferð­inni alla nótt­ina, og um hádegi í gær fundu þeir suð­vestan til við hájÖkul­inn plötu, sem þeir töldu vera úr flug­vél­inni. Veður var þá enn slæmt, þoka niður í hlíðar og 6 stiga frost, en rof­aði þó til við og við. Rétt um það leyti. sem þeir fundu plöt­una. dimmdi, svo að ekki sási handa skil. Höfðu þeir sam­band við amer­íska flug­vél, sem sveim­aði þar yfir, og nokkru seinna, er þokan greidd­ist dálítið sundur, sást úr flug­vél­inni móta fyrir flaki hinnar týndu vélar í fönn­inni skammt frá leit­ar­mönnum. Fundu þeir flakið eftir til­vísun flug­manna. Það er í um það bil 1400—1500 metra ‘hæð yfir sjó, mikið brotið og á hvolfi.

LÍKIÐ í KLEFA SIGLINGAFRÆÐINGS.

Leit­ar­menn fóru síðan að rann­saka fíakið og grafa það upp, en það var komið á kaf í snjó. Gekk sú vinna erf­ið­lega. Komust þeir inn í stjórn­klefa, en hann var auður. í klefa sigl­inga­fræð­ins fundu þeir hins vegar eina líkið, sem vitað var að fundizt hafi. Talið var að lít­ils háttar spreng­ing hafi orðið í flug­vél­inni, en nán­ari fregnir af könn­un­inni á flak­inu höfðu ekki borizt í gærkveldi.

HJÁLPARLIÐ OG ÚTBÚNAÐUR

Varpað var niður úr amer­ískri flug­vél tii leit­ar­mann­anna skóflum og öðrum verk­færum, sem þeir þurftu að nota við að rann­saka flakið og grafa frá því, og tjaldi úr lít­illi íslenzkri flug­vél, sem Björn Blöndal og Lárus Ósk­ars­son voru með. Bjóst flokk­ur­inn um til að vera við flakið í nótt og halda áfram leit að mönn­unum. Þegar eftir að flakið var fundið, voru gerðar ráð­staf­anir til að senda liðsafla til aðstoðar þeim sex, er komnir voru að því. Voru sjö menn sendir af stað. og var farið á skrið­bílnum eitt­hvað á móti þeim, þótt ekki sé vitað, hvort hann hafi sótt þá. Var ekki vitað með vissu í gær­kvöldi, hvort hjálp­ar­liðið væri þá koni ið alla leið.

ÓKUNNUGT UM ORSÖK

Um orsök slyss­ins verður ekk­ert sagt með vissu. Flug­vélin mun af ein­hverjum ástæðum hafa flogið niður í jökul­inn. Stór­viðri var á og mikið nið­ur­streymi lofts yfir jökl­inum svo að flug­skil­yrði þar voru hin erf­ið­ustu. 

Eins og áður segir liðu heil 14 ár þar til lík hinna þriggja sem í flug­vél­inni voru, fund­ust eða árið 1966. Þjóð­vilj­inn skrif­aði um lík­fund­inn:

Lík banda­rískra flug­manna finn­ast á Eyja­fjalla­jökli

Flugvél þeirra fórst með 5 manna áhöfn árið 1952

Um helg­ina fund­ust lík þriggja banda­rískra flug­manna á Eyja­fjalla­jökli, en rúm 14 ár eru síðan flug­vél þeirra fórst á jökl­inum með fimm manna áhöfn. Fannst flug­vél­arflakið og lík eins flug­manns­ins á jökl­inum þrem dögum eftir slysið.

Sl. laug­ar­dag voru þeir Guðjón Gíslason og Kjartan Benja­míns­son við mæl­ingar þar sem fall­jök­ull­inn er norð­an­meg­inn í Eyja­fjalla­jökli og fundu þeir lík af tveim mönnum þar á jökl­inum. Þeir til­kynntu það strax sýslu­mann­inum í Rang­ár­valla­sýslu, og var Flug­björg­un­ar­sveitin í Reykja­vík kölluð á vett­vang. 25 manna hópur úr sveit­inni fór þangað austur í birt­ingu á sunnu­dag undir stjórn þeirra Sigurðar S. Waage og Magnúsar Þór­ar­ins­sonar. Björg­un­ar­sveitin var komin að jökl­inum œn hádeg­is­bilið og um sama leyti kom þangað þyrla frá her­námslið­inu á Kefla­vík­ur­velli. Þar voru einnig fyrir þeir Guðjón og Kjartan og vís­uðu á stað­inn þar sem líkin voru, um 200 metrum frá jök­ul­rönd­inni. Líkin lágu þar með nokk­urra metra milli­bili, og um 10 metra þar frá fannst þriðja líkið. Líkin voru að sjálf­sögðu óþekkj­an­leg, en hjá þeim fund­ust ýmsir munir áletraðir nöfnum, svo að eng­inn vafi er á að þetta eru lík banda­rísku flug­mann­anna sem fór­ust þarna á jökl­inum fyrir meira en 14 árum. Þetta var björg­un­ar­flug­vél frá banda­ríska hernum á Kefla­vík­ur­flug­velli með fimm manna áhöfn sem Jórst þarna í blind­hríð um vorið 1952. Flakið fannst á þriðja degi frá því er slysið­varð og rétt hjá því lík eins flug­manns­ins. Fleiri lík fund­ust ekki en ýmis ummerki bentu til þess aB hinir fjórir hefðu komizt lif­andi frá flug­vél­arflak­inu. Þrátt fyrir mikla leit fund­ust menn­irnir aldrei, en vorið 1964 fundu menn úr björg­un­ar­sveit­inni Ingólfi gift­ing­ar­hring og skó á svip­uðum slóðum og líkin fund­ust nú.

Flug­björg­un­ar­sveitin bar lík flug­mann­anna um borð í þyrl­una, sem flutti þá til Kefla­vík­ur­flug­vallar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina