Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Grimmilegustu, ófyrirleitnustu og síðustu fjöldamorð Íslandssögunnar – Brytjuðu Baskana niður

Grimmilegustu, ófyrirleitnustu og síðustu fjöldamorð Íslandssögunnar – Brytjuðu Baskana niður

Það var árið 1615 sem Íslend­ingar myrtu 31 baskneskan hval­veiði­mann á Vest­fjörðum, og hefur atburð­ur­inn lengst af hefur verið kall­aður Spán­verja­vígin, en í seinni tíð Baska­vígin.

Fjöldamorðin virð­ist ekki vera á meðal þekkt­ustu atburða Íslands. Ekki frekar en sagan af Axlar-Birni, alræmdasta fjöldamorð­ingja Íslands­sög­unnar. Svo virð­ist sem Íslend­ingar vilji ekki fjalla mikið um atburði er gætu varpað skugga á sögu Íslands. Hetju­frá­sagnir og sögur af rétt­látri hefnd virð­ast eiga upp pall­borðið hjá okkur, en ekki atburðir líkt og Baska­vígin og morð­æði Axlar-Bjarnar. Hafa slíkar frá­sagnir afar lítið ratað í kennslu­bækur í gegnum tíð­ina.

Sumarið 1615 komu hingað til lands rúm­lega 80 baskneskir hval­veiði­menn á þremur skipum og stund­uðu hval­veiðar í kringum Vest­firði. Þegar þeir ætl­uðu að halda til síns heima um haustið brotn­uðu skipin í óveðri, þrír menn fór­ust en 83 skip­verjar urðu stranda­glópar á Íslandi. Það er, á þessum tíma, spurn­ing hvernig eigi að fram­fleyta þeim hópi í þessu umhverfi og þar sem fólk rétt skrimti sjálft.

En áður en örlögin grimmi­legu litu dags­ins ljós skiptu Bask­arnir liði og fór hluti þeirra m.a. í Ísa­fjarð­ar­djúp. Þar lentu þeir í minni­háttar átökum við inn­fædda. Í kjöl­farið voru Bask­arnir allir dæmdir til dauða sam­kvæmt lögum sem þá voru í gildi um að útlend­ingar mættu ekki hafa hér vet­ur­setu. Þeir voru eltir uppi og stór hluti þeirra drep­inn. Talið er að hinir hafi kom­ist um borð í erlent skip og náð að yfir­gefa landið en ekk­ert er vitað um afdrif þeirra.

Bask­arnir voru búnir að sigla hér á slóðum áður; þeir settu upp stórar hval­veiði­stöðvar á Nýfundna­landi strax á sext­ándu öld; eng­inn stóðst þeim snún­ing í við­skiptum með þær afurðir á Evr­ópu­mark­aði.

Hval­veiðar voru ábata­söm atvinnu­grein en einnig við­sjár­verð; ekki heiglum hent að starfa við hana.

Bask­arnir fóru að venja komur sínar á Íslands­mið snemma á 17. öld. Sumarið 1615 komu þrjú hval­veiði­skip að landi vestur á Ströndum.

Skip­stjór­arnir þrír, Martín de Villafranca, Pedro de Aguirre og Esteban de Tellería stigu á land ásamt áhöfnum sínum og römbuðu mitt inn í ólg­andi kviku afar flók­ins stjórn­ar­fars; gerði það mót­tök­urnar óblíð­ari en efni stóðu til.

Stjórn lands­ins var und­ir­okuð af danska kóng­inum; lituð spill­ingu inn­lendrar yfir­stéttar. Átök innan íslensku þjóð­kirkj­unnar, milli kaþ­ólskrar trúar og hinnar lúth­ersku, settu strik í reiknig­inn. Almenn­ingur lifði við kröpp kjör og hafði áður lent í ljótum rimmum við sjó­ræn­ingja var skilj­an­lega ótta­sleg­inn í garð útlend­inga eftir þá reynslu.

Gráan sum­ar­dag á Ströndum tók hópur heima­manna með séra Jón Grímsson og Jón lærða Guð­munds­son í broddi fylk­ingar á móti langt að komnum Böskunum.

Jón lærði vildi bjóða gest­ina vel­komna en séra Jón var tor­trygg­inn og her­skár í þeirra garð. Bask­arnir báru fyrir sig veiði­leyfi sem Ari í Ögri hafði upp­á­skrifað og selt þeim dýru verði og með því fengu þeir að slá upp vinnu­búðum; þeir veiddu og verk­uðu hvali yfir allt sum­arið og versl­uðu með ýmsan varn­ing við Íslend­inga.

Kom á dag­inn að veiði­leyfið sem Ari ávís­aði var veitt án leyfis danskra yfir­valda; þannig að í raun var sjálfur Ari að breiða yfir eigin spill­ingu og glæpi þegar hann safn­aði liði um haustið, og reyndi að drepa alla Baskana.

Voru að lokum 31 baskneskir sjó­menn myrtur hér á landi – höggnir eða skotnir.

Margir voru þving­aðir í her Ara og hótað sektum eða öðru verra ef þeir reyndu að skor­ast undan ægi­valdi hans.

Færð og óveður vörn­uðu því að Ari næði til eft­ir­lif­andi aðkomu­mann­anna og vant­aði þó ekki að hann reyndi. Þeir sem komust undan stund­uðu sjó­inn og drógu björg í bú með marg­vís­legum öðrum hætti. Bask­arnir voru iðnir og auðg­uðu umtals­vert bæði mann­líf og efna­hag á Vest­fjörðum þetta hálfa ár sem þeir neydd­ust til að þrauka þar í útlegð, sorg, skömm og frost­hörkum.

Þegar fyrsta enska fiski­skipið sást að vori hertóku þeir það til að sigla heim en síðan hefur ekk­ert spurst til þeirra. Jón lærði var harmi sleg­inn yfir þessum voða­verkum og skrif­aði um þau en fékk bágt fyrir og var sendur í ævi­langa útlegð.

Heim­ildir:

(https://www.ruv.is/frett/sidasta-fjoldamordid-a-islandi)

(https://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/09/15/aestur_mugur_myrti_baskana_2/)

(https://klapptre.is/2016/11/27/morgunbladid-um-baskavigin-oll-kurl-koma-til-grafar)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina