Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Kæra Katrín: „Ég hlýt að vera óalandi óferjandi og gallað manneskjueintak“

Kæra Katrín: „Ég hlýt að vera óalandi óferjandi og gallað manneskjueintak“
Rósa Ólafía Ólafar­dóttir Mynd / aðsend

“Kæra Katrín. Kveikjan að bréfi þessu eru drög að frum­varpi þínu til laga sem hefur það að
mark­miði að setja heild­ar­lög um sann­girn­is­bætur til handa ein­stak­lingum sem
orðið hafa fyrir var­an­legum skaða vegna illrar með­ferðar eða ofbeldis sem þeir
hafa orðið fyrir vegna athafna eða athafna­leysis opin­berra aðila.
Ég skrifa þér fyrir hönd lít­illar stúlku sem hefur ekki þroska né getu til að tjá sig.
Hún var vistuð frá unga aldri fyrst á Elliða­hvammi síðan á Sil­unga­polli þessu
næst á Reykja­hlíð, Hlað­gerð­ar­koti og svo á einka­heim­ili.
Þegar ald­ur­inn tók að fær­ast yfir hana gerði hún sér grein fyrir að þessar
upp­eld­is­að­stæður voru ákaf­lega óvenju­legar svo ekki sé meira sagt.

Hún var nauð­unga­vistuð á barna­heim­ilum og fóst­ur­heim­ilum án þess að fá að
hitta fjöl­skyldu sína. Jú, heim­sóknir voru leyfðar en þessir staðir voru fyrir utan
bæinn og fátæk móður hennar var bíl­laus. Aðferð hennar til lifa af þessar
vist­anir var sú sama og ann­arra fanga, að láta sig dreyma um dag­inn sem hún
losn­aði úr vist­inni.

Það yrði of langt mál að fara hér út í þá með­ferð sem hún og önnur börn sem
vist­uð­ust á þessum stöðum hlutu. Meðferð sem mark­að­ist af þving­unum,
frels­is­svipt­ingu, stundum kyn­ferð­is­of­beldi, and­legu ofbeldi og ein­elti.
Sýnd­ar­eft­ir­litið sem átti sér stað af hálfu opin­berra yfir­valda fólst í heim­sóknum
og við­tölum við yfir­menn þess­ara stofn­ana. Við vorum aldrei spurð.
Mann­rétt­indi þeirra voru fótum troðin. Gen­far­sátt­mál­inn þver­brot­inn. En hvað
með það? Íslensk yfir­völd höfðu jú ekki und­ir­ritað hann.
Hún ólst upp við tíð­ar­anda þagn­ar­innar með kyn­slóð sem dæmdi og útskúf­aði
ein­stak­lingum og fjöl­skyldum sem stóðu hall­l­oka í sam­fé­lag­inu.
Sumir glíma við skömm vegna eigin mis­taka í líf­inu. Hún glímdi við skömm
vegna úrræða sem hún bar enga ábyrgð á.

Nú má ætla að stjórn­völd og upp­eld­is­að­ilar þessa tíma gætu gert sér grein fyrir
hvaða áhrif það hefur á börn að vera lokuð inni, fjarri for­eldrum og fjöl­skyldu,
árum saman. Alla vega voru komnar fram nokkuð áreið­an­legar umfjall­anir
sál­fræð­inga og geð­lækna um slíka með­ferð á börnum. En nei slík þekk­ing hafði
engin áhrif á gjörðir þess­ara með­ferð­ar­að­ila. Svo þessi litla stelpa dró
eft­ir­far­andi ályktun:

Ég hlýt að vera óalandi óferj­andi og gallað mann­eskju­ein­tak úr því að komið er
svona fram við mig.
Ef ein­hver hefði spurt hana um líðan sína og við­horfa til lífs­ins hefði hún
kannski geta tjáð sig um þessa auð­sýndu fyr­ir­litn­ingu og það virð­ing­ar­leysi fyrir
rétti hennar sem mann­eskju sem yfir­völd sýndu henni með þess­ari með­ferð. En
það spurði eng­inn. Hún átti mörg þján­ing­ar­systkin sem þurftu að þola sömu
með­ferð.

Í sam­ráðs­gátt stjórn­valda komu fram margar athuga­semdir við þetta frum­varp,
örfáir skrif­uðu undir með nafni en flestir þó án þess að láta nafns síns getið.
Hvers vegna skyldi fólk kjósa að skrifa ekki undir með nafni? Er ástæðan
kannski sú að þessir nafn­lausu ein­stak­linga eru enn svo djúpt mark­aðir af
skömm vegna vist­un­ar­innar að þeir kjósa að skrifa nafn­laust.

Kæra Katrín.
Ég vil nú víkja að þessum drögum að frum­varpi þínu til laga um
sann­girn­is­bætur. Þar ætlar þú að lækka hámarks­upp­hæð bóta til handa
ein­stak­lingum úr 6 millj­ónum niður í 3 millj­ónir. Hvað skyldi svo vera hægt að
gera fyrir 3 millj­ónir? Skyldu 6 millj­ónir eða 3 millj­ónir nægja fyrir með­ferð hjá
sál­fræð­ingi eða bæta upp skort á menntun eða skerta vinnu­getu vegna
ógreindrar áfallastreyturösk­unar, sem þró­ast hefur í krónískt þung­lyndi? Nú
eða árin sem fóru í brenni­vín og fíkni­efna­neyslu sem mörg okkar lifðu reyndar
ekki af?
Í frum­varps­drög­unum sem ég vísa í hér að framan segir orð­rétt: „þeim sem
urðu fyrir var­an­legum skaða”. Hvernig dettur þér í hug að bjóða mann­eskju
sem orðið hefur fyrir var­an­legum skaða slíka upp­hæð? Þessar upp­hæðir eru
hlægi­legar en ekki bara hlægi­legar heldur sýna þær algjöran skort á skiln­ingi á
þeirri mann­legu þján­ingu sem við urðum að þola á ábyrgð íslenskra stjórn­valda.
En upp­hæð­irnar sýna ekki bara skiln­ings­leysi heldur líka algjöran skort á
virð­ingu fyrir lífi ein­stak­linga sem ólust upp á ábyrgð íslenska rík­is­ins.
Nei, Kæra Katrín.
Í krafti emb­ættis þíns fetar þú í fót­spor fyrri stjórn­valda þessa lands sem leyfðu
að börn væru vistuð eins og fangar á barna­heim­ilum og einka­heim­ilum sem
virt­ust geta starfað án eft­ir­lits og laga.

Rósa Ólafía Ólafar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina