Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sara er meistaranemi í hugvíkkandi efnum: ,,Mesta bylting geðlæknisfræðinnar í 50 ár”

Sara er meistaranemi í hugvíkkandi efnum: ,,Mesta bylting geðlæknisfræðinnar í 50 ár”
Sara María Mynd: gedhjalp.is

Sara María Júl­í­us­dóttir er fyrsti Íslend­ing­ur­inn í masters­námi í hug­víkk­andi efnum. Sara, sem er nýjasti gest­ur­inn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar segir lands­lagið á Íslandi hafa gjör­breyst und­an­farin ár. Nú sé mikið af bæði lög­gæslu­fólki og heil­brigð­is­fólki orðið mjög opið eftir að hafa séð það sem er að ger­ast:

,,Hreint MDMA í réttum skömmtum ýtir undir sam­kennd hjá fólki, en svæfir árás­ar­gjarna hlut­ann í heil­anum. Það er bara ein­föld stað­reynd að ef fólk væri á réttum skömmtum af MDMA í mið­bænum um helgar í stað­inn fyrir áfengi, þá væru ekki hnífs­stungur eða lík­ams­árásir. Ég full­yrði það. Auðvitað er það við­kvæm umræða að tala um skað­semi áfengis af því að við notum það svo mörg og það er svo inn­gróið í sam­fé­lagið. En ef við horfum á það sem er að ger­ast í mið­bænum um helgar hljótum við að geta verið sam­mála um að það sé ekki eðli­legt. Óorðið sem var komið á hug­víkk­andi efni í langan tíma var ekki síst af því að fólk var að nota þessi efni á djamm­inu ofan í áfengi, amfetamín, kókaín og svefn­leysi. Það mun auð­vitað ekki enda vel. Ég finn það á sam­tölum mínum við bæði þing­menn, heil­brigð­is­starfs­fólk og fleiri að það er vit­und­ar­vakn­ing í gangi.”

Sara seg­ist sann­færð um að hug­víkk­andi efni séu mesta bylt­ing geð­lækn­is­fræð­innar í ára­tugi:

,,Ég á mér þann draum að sam­fé­lagið eigi alvöru sam­tal um þessi efni, að þetta hætti að vera tabú og að fag­fólk komi meira að þessu á næstu árunum. Það er gríð­ar­lega mikið af venju­legu fólki að prófa hug­víkk­andi efni núna, af því að fólk er komið á enda­stöð með aðrar lausnir. Það hefur í raun orðið spreng­ing og veld­is­vöxtur í þessu að und­an­förnu. Það eru að dreifast út um allt Ísland jákvæðar reynslu­sögur frá venju­legu fólki og ég er sann­færð um að það sé að gjör­breyta lands­lag­inu. Það er gríð­ar­lega stór hópur af fólki á Íslandi í mik­illi van­líðan og ef fólk finnur lausn á sinni van­líðan getur ekki verið rétt að banna það. Það hefur verið mikið af röngum upp­hróp­unum um þessi efni und­an­farna ára­tugi, allt frá því að Richard Nixon hóf ,,the war on drugs”. Munurinn á þessum efnum ann­ars vegar og fíkni­efnum hins vegar er að hug­víkk­andi efni færa mann nær sjálfum sér og láta mann mæta sjálfum sér á meðan fíkni­efnin hjálpa manni að flýja sjálfan sig. Nú eru rann­sókn­irnar sem sýna fram á virkni þess­arra efna við þung­lyndi, kvíða, áfallastreitu og fleiri hlutum taldar í þús­undum og það er ekki lengur hægt að loka aug­unum. Þetta er mesta bylt­ing í geð­lækn­is­fræð­inni í 50 ár,” segir Sara, sem tekur þó fram að hug­víkk­andi efni séu ekki töfra­lausn og sér­lega mik­il­vægt sé að nota efnin undir réttri hand­leiðslu og í réttum aðstæðum:

,,Þessi efni eru mis­notuð, ofnotuð og notuð í röngum til­gangi og eins og með allt annað er þetta ekki hættu­laust. Einmitt þess vegna er svo mik­il­vægt að fag­að­ilar komi að þessu og að hægt sé að koma því við að fólk noti þessi efni undir réttri hand­leiðslu í réttu umhverfi. Ég sé ekki rökin fyrir því að fólk muni nota þessi efni meira eða á óábyrg­ari hátt ef þau verða lög­leidd, heldur þvert á móti.”

Núna í byrjun jan­úar eru margir af helstu sér­fræð­ingum heims í hug­víkk­andi efnum að koma til Íslands á ráð­stefnu sem Sara stendur fyrir, sem haldin verður í Hörpunni 12. og 13. jan­úar. Sara seg­ist vilja að ráð­stefnan stuðli að alvöru sam­tali í sam­fé­lag­inu og að ráða­menn og fag­fólk muni von­andi láta sjá sig:

,,Ég bind miklar vonir við að sjá bæði ráð­herra, þing­menn, lög­regl­una og heil­brigð­is­starfs­fólk á þessa ráð­stefnu. Það geti svo von­andi orðið upp­hafið að alvöru sam­tali í sam­fé­lag­inu og kannski fyrsta skrefið í lög­leið­ingu. Það er ekki hægt lengur að horfa á bann sem ein­hverja heild­ar­lausn og láta eins og það sé ekki búið að rann­saka þessi efni. Þegar fólk seg­ist vilja sjá rann­sóknir er hægt að benda á að rann­sókn­irnar núna skipta tugum þús­unda og það er búið að gera meira en 10 þús­und rann­sóknir bara á psílosí­ben, virka efn­inu í sveppum. Ég er að vinna að því að tengja saman fyr­ir­les­ar­ana á ráð­stefn­unni og yfir­völd á Íslandi, til þess að það geti átt sér stað heild­stætt sam­tal. Ég trúi því að Ísland geti orðið leið­andi í rann­sóknum á hug­víkk­andi efnum og veit og finn að það er ákveðin bylt­ing að eiga sér stað hér á landi.”

https://www.youtube.com/watch?v=P5Ep0dk9DfQ&t=5s

Þáttinn með Söru og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina