Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Lalli sjúkraliði lýsir starfinu fyrir Svanhildi Hólm: „Ég hef séð limlest fólk engjast af kvölum“

Lalli sjúkraliði lýsir starfinu fyrir Svanhildi Hólm: „Ég hef séð limlest fólk engjast af kvölum“

„Okkur blöskr­aði bara hér um helg­ina þegar Svan­hildur var að tjá sig í Silfrinu. Við höfum bara verið að hlæja að þessu og spyrja yfir­menn­ina hvernig við getum fengið þessar 800.000 kall. Og það hrista allir haus­inn yfir þessu hér því þetta er ekki raun­veru­leik­inn.“

Þetta sagði Lárus Páll Birg­is­son sjúkra­liði á Land­spít­al­anum í sam­tali við Mannlíf og átti þá við Svan­hildi Hólm Vals­dóttur sem sagði til­gangs­laust að hækka laun hjúkr­un­ar­fræð­inga.

Lárus, eða Lalli sjúkra­liði eins og hann er oft kall­aður, sendi Mannlífi tölvu­póst þar sem hann lýsti því versta sem hann hafi upp­lifað þau 17 ár sem hann hefur unnið sem sjúkaliði á Land­spít­ala Íslands. Þá lét hann einnig fylgja fjóra launa­seðla sem sýna mán­að­ar­kaup hans fyrir 100 pró­sent vinnu, eftir 17 ára starf. „Svona eru launin ef ein­hver er í vafa um það hver er að segja satt,“ sagði Lalli og bætti við að launa­seðl­arnir séu frá fyrstu fjórum mán­uðum síð­asta árs því það sé síð­asta árið sem hann hefur verið í fullri vinnu. Segist hann vera á dag­deild þannig að það eru engar auka­vaktir í boði.

Ein og sjá má á launa­seðlum Lalla neðar í frétt­inni má sjá að hann hefur verið að fá milli 333.000 til 350.000 þús­und krónur fyrir 100 pró­sent vinnu sem sjúkra­liði við Land­spít­al­ann en hann seg­ist ekki kvarta, þrátt fyrir lág laun.

„Ég er ekk­ert að kvarta voða­lega mikið af því að ég á ekki neitt. Ég á ekki konu og börn, ég á ekki hús og bíl og ekki neitt. Sko, fyrir aum­ingja er þetta alveg fínt en ef þú ætlar að vera ein­hver gildur borg­ari í sam­fé­lag­inu og eiga heim­ili og eitt­hvað svo­leiðis þá virkar þetta ekki.“

Þess má geta að fram­færslu­við­mið ein­stak­lings án barns er 202.414 kr. sam­kvæmt Umboðs­manni skuld­ara og er það án húsa­leigu.

Hér fyrir neðan má lesa lýs­ingu Lalla á verstu augna­blikum vinnu hans á spít­al­anum:

„Ég heiti Lárus og starfa sem sjúkra­liði á Land­spít­al­anum. Frá því ég hóf störf hef ég fengið á mig alla þá vessa sem manns­lík­am­inn fram­leiðir, blóð, þvag, saur osfr. Ég hef stungið mig á óhreinum nálum og er dag­lega innan um allar pestir sem ganga. Það hefur verið hrækt á mig oftar en einu sinni og ég hef verið kýldur, skall­aður og kyrktur. Ég hef séð lim­lest fólk engj­ast af kvölum, skað­brennd börn og heila­slettur leka á gólfið. Verst eru þó hljóðin, þau sitja í manni lengur en það sem maður sér og lyktin, lyktin af rotn­andi holdi gleym­ist aldrei. Örvingl­aðir for­eldrar eftir barn­missi, sjálfs­víg og aðrir harm­leikir.

Þetta hef ég allt séð og þurft að takast á við með því að bæla það niður svo ég geti haldið áfram að vinna. Í hvert skipti deyr lít­ill hluti af hjart­anu og í dag er ég bless­una­lega kald­rifj­aður eins og sönnum fag­mönnum sæmir. Það þraukar eng­inn lengi þarna inni ef hann ætlar að taka svona hluti inn á sig til lengdar. Þetta er mann­skemm­andi hel­víti en trixið er að skemma réttu til­finn­ing­arnar svo hægt sé að halda áfram með næsta verk­efni.  Ekki gráta fyrr en þú ert kom­inn heim.

Allan tím­ann er maður svo með­vit­aður um að ef ég fokka ein­hverju upp þá ber ég ábyrgð.  Allt frá litlum hlutum til mann­dráps af gáleysi og ég verð sóttur til saka ef verk­lagið er ekki eftir bók­inni.  

Ég vildi bara sýna ykkur svart á hvítu hver 100% laun sjúkra­liða á Land­spít­al­anum eru eftir 17 ára starf á víg­vell­inum og læt nokkra launa­seðla fylgja með. Þið fjöl­miðlar hafið góð­fús­legt leyfi mitt til að birta þessar launa­upp­lýs­ingar ef þið teljið þetta skipta ein­hverju máli í umræð­unni um kjara­mál heil­brigð­is­starfs­fólks.“

Hér má svo sjá launa­seðl­ana en ef smellt er á mynd­irnar stækka þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina