Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Lenya er orðlaus yfir viðbrögðunum:„Verum góð við hvort annað því við vitum aldrei hvað er í gangi“

Lenya er orðlaus yfir viðbrögðunum:„Verum góð við hvort annað því við vitum aldrei hvað er í gangi“
Lenya Rún Taha Ka­rim. Mynd/skjá­skot. Stúd­enta­blaðið.

Lenya Rún Taha Karim er orð­laus yfir góðu við­brögð­unum sem hún hefur fengið eftir að við­tal við hana birt­ist á Rúv á fimmtu­dag­inn. Þar opn­aði hún sig um átröskun sem hún glímir við.

Í langri þakk­ar­færslu á Facebook seg­ist Lenya Rún, vara­þing­maður Pírata og háskóla­nemi, vera orð­laus yfir þeim góðu við­brögðum sem hún hefur fengið eftir að hún opn­aði sig í við­tali sem birt­ist á Rúv í fyrra­dag, um átröskun sína og inn­lögn á Kleppi. Segir hún í færsl­unni að það sé alltaf áhætta að opna sig um geð­ræn vanda­mál en vonar að þetta geti hjálpað til við að útrýma for­dómum gagn­vart geð­rösk­unum. Vonast hún einnig til að þetta hvetji fólk í sam­bæri­legri stöðu til að sækja sér hjálp, „án þess að skamm­ast sín“.

Sjá einnig: Lenya Rún vara­þing­maður var lögð inn á Klepp viku eftir Silfrið: „Ég tek brjál­æðiskast“

Þá talar hún einnig til aðstand­enda fólks með átröskun og seg­ist finna til með þeim og segir stuðn­ing­inn algjör­lega ómissandi.

Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Ég er orð­laus yfir góðu við­brögð­unum sem ég hef fengið við við­tal­inu á fimmtu­dag­inn. Það er alltaf smá áhætta að opna sig um geð­ræn vanda­mál en ég vona inni­lega að þetta geti hjálpað til í átak­inu við að útrýma for­dómum gagn­vart geð­rösk­unum og hvatt fólk í sam­bæri­legri stöðu til að leita hjálpar án þess að skamm­ast sín.

Til aðstand­enda sem hafa leitað til mín: Ég finn til með ykkur og get ímyndað mér að það sé vont að horfa upp á mann­eskju sem þú elskar vera að neita sér um það eina sem hún þarf til að halda sér á lífi. Reiðisköstin sem eru tekin og hegð­un­ar­vand­inn er ekki per­sónu­legt gagn­vart ykkur, heldur er þetta heil­inn að slökkva á heila­stöðv­unum sem sjá um til­finn­ingar til að spara ork­una í eitt­hvað annað. Stuðn­ingur aðstand­enda til okkar sem glíma við þessi veik­indi er gjör­sam­lega ómiss­an­legur, verið til staðar eins og þið eruð búin að vera að gera Til fólks sem hefur leitað til mín vegna þess að þau glíma við átröskun sjálf: Ég hvet ykkur ein­dregið til að leita upp á heilsu­gæslu­stöð þar sem næstu skref verða tekin. Hvort sem það eru tímar hjá sál­fræð­ingi eða eft­ir­fylgni innan heilsu­gæsl­unnar eða með­ferð hjá átrösk­un­arteymi Land­spít­al­ans. Inngrip á fyrri stigum sjúk­dóms­ins er ótrú­lega mik­il­vægt, mín helsta eft­ir­sjá er að ég byrj­aði ekki í með­ferð af alvöru fyrr, hvort sem það hafi verið 10 árum fyrr eða 1 viku fyrr. Það er hægt að afstýra svo mörgu slæmu með því að leita sér hjálpar sem fyrst. Það er engin skömm í því að vilja vera við góða heilsu, það er sjálf­sagður hlutur.Að lokum vil ég bara taka fram að það eru fáir sem ég þekki sem hafa aldrei glímt við and­leg vanda­mál. Verum góð við hvort annað því við vitum aldrei hvað er í gangi á bak­við tjöldin og sýnum stuðn­ing þegar fólkið í kringum okkur er að ströggla, það þarf á hjálp að halda, ekki for­dómum eða dóm­hörku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina