Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir Dóru fara með rangt mál: „Aldrei áður séð ástæðu til að slíta samskiptum við leikstjóra“

Segir Dóru fara með rangt mál: „Aldrei áður séð ástæðu til að slíta samskiptum við leikstjóra“
Sigurjón Kjart­ans­son

Sigurjón Kjart­ans­son segir að slæm sam­skipti fram­leið­anda Skaups­ins og leik­stjóra þess hafa byrjað áður en í ljós kom um eign­ar­haldið á fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu.

Aðal­fram­leið­andi Ára­mótaskaups­ins, Sigurjón Kjart­ans­son skrif­aði langa færslu á Facebook í gær í kjöl­far fréttar Heim­ild­ar­innar um slæm sam­skipti milli fram­leið­anda Skaups­ins og Dóru Jóhanns­dóttur leik­stjóra þess.

Í frétt Heim­ild­ar­innar segir orð­rétt: Heim­ildin hefur bréf Dóru til RÚV undir höndum. Þar er því lýst hvernig frétt Stund­ar­innar um eign­ar­hald Krist­jáns Vil­helms­sonar, eig­anda Samherja, á fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu, S800, og tengslum þess við fast­eigna­fé­lagið Sigtún, sem á og reisti nýja mið­bæ­inn á Selfossi, hafi komið Dóru og fleirum í opna skjöldu. Ekki síst í ljósi þess sem á undan hafði gengið þar sem mikil áhersla hafði að sögn verið á að tökur á Skaupinu færu fram í Nýja-mið­bænum á Selfossi. Er þar birt brot úr bréfi Dóru til Rúv um málið: „Pressan að fara á Selfoss var mjög mikil frá fyrsta degi. Ekkert var hlustað á sí end­ur­teknar óskir leik­stjóra um að fara ekki þangað í tökur og finna frekar aðrar lausnir á spít­ala­rými til að missa ekki dýr­mætan töku­tíma í ferða­lög. Af ein­ungis 8 töku­dögum eru 2-3 tímar í óþarfa ferða­lög mjög dýr,“ en í bréf­inu er vísað til þess að starfs­menn fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins hafi svarað neit­unum hennar um að taka upp á Selfossi ávalt með þeim hætti að það væri ein­dreg­inn vilji Sig­ur­jóns Kjart­ans­sonar yfir­fram­leið­anda Skaups­ins.

Þetta allt segir Sigurjón ekki satt. Segist hann taka því nærri sér að að vera „brigslað um að segja ósatt frá“ í grein Heim­ild­ar­innar. Því hafi hann skrifað færsl­una, svo fólk fái „smá inn­sýn í þetta mál.“

„Mér er brigslað um að segja ósatt frá í grein sem hinn nýji mið­ill Heim­ildin setti frá sér í gær. Það tek ég nærri mér og vil þess­vegna leyfa ykkur að fá smá inn­sýn í þetta mál. Blaða­maður frá Stund­inni hafði sam­band við mig í des­em­ber og spurði mig útí hvernig stóð á því að við hefðum tekið upp á Selfossi og ég sagði honum skýr­ing­una á því; teknir voru tveir sketsar á Selfossi, annar á spít­al­anum og á hjúkr­un­ar­heim­il­inu og hinn í Leik­fé­lagi Selfoss. Hvorttveggja voru inni­tökur. Þetta kom til vegna þess að engin sjúkra­hús voru til reiðu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þá spurði hann hvort það hefðu verið ein­hverjar úti­tökur og ég sagði nei. Með því lauk sím­tal­inu og við kvödd­umst. Nokkrum dögum síðar var mér sagt að ég hefði „logið að blaða­manni Stund­ar­innar“ og þá var ég minntur á þetta eina skot sem tekið var upp fyrir utan rútu – á Selfossi – úti. Þessu hafði ég bara alveg gleymt og gekkst að sjálf­sögðu strax við því. Sú aðgerð leik­stjóra Skaups­ins að reyna að afmá Ölf­usár­brúnna útúr þessu eina skoti – á ein­hvern hátt útaf minni gleymsku – var hins­vegar ekki í mínum höndum og gerði ég ekki veður útaf því enda bar ég fullt traust til hennar. Ég stað­festi þetta svo í sím­tali sem ég átti við Heim­ild­ina, um dag­inn að mér hefði yfir­sést þetta og þótti miður.“

Sigurjón seg­ist því næst vilja koma inn á það sem haft var eftir honum í grein Heim­ild­ar­innar, um þátt hans í hand­ritateym­inu en hann seg­ist vissu­lega hafa skrifað minna en aðrir í teym­inu en að „teym­is­vinna snýst um fleira.“

„Ég vil líka koma inná annað sem haft er eftir mér í þess­ari grein þar sem því er haldið fram að fram­lag mitt hefði verið lítið þegar kom að hand­riti: Þegar ég segi að ég „geti ekki sagt að ég hafi lagt eitt­hvað minna af mörkum en aðrir“, þá á ég við að ég var einn af teym­inu og sem slíkur átti ég þátt í að leggja lín­urnar undir sterkri hand­leiðslu yfir­hand­rits­höf­undar og leik­stjóra. Hópvinna í höf­unda­her­bergi er dálítið eins og að vera í hljóm­sveit og í þess­ari hljóm­sveit mætti ég ekki á allar æfing­arnar og var meira uta­n­áliggj­andi heldur en hinir, enda hafði ég gefið það út við alla strax frá upp­hafi þegar ég var beð­inn um að vera líka partur af hand­ritsteym­inu. Ég vil því ekki að þetta mis­skilj­ist sem ósann­girni við félaga mína í hand­ritsteym­inu sem svo sann­ar­lega skil­uðu meira af skrif­uðu efni heldur en ég. En teym­is­vinna snýst um fleira.“

Segir Sigurjón í færsl­unni að í orðum Dóru um að hún hafi unnið með frá­bæru „crewi“ en að fram­leiðslan hafi valdið henni von­brigðum, felist mikil mót­sögn.

„Þegar leik­stjóri Skaups­ins talar um að hún hafi starfað með frá­bæru ‚crewi‘ en fram­leiðslan hafi valdið henni von­brigðum þá felst í því mikil mót­sögn – og þó ég hefði nefnt þetta við hana sér­stak­lega, þá virð­ist hún ekki gera sér grein fyrir að þetta frá­bæra ‚crew‘ sem hún vann með var hluti af þess­ari ‚ómögu­legu‘ fram­leiðslu. Og þó að tveir af fram­leið­end­unum hafi hætt beinum sam­skiptum við hana þá hættu þeir ekki sem fram­leið­endur og þó hún hafi ekki séð þá, þá voru þeir samt að vinna hörðum höndum að því að klára þetta Skaup. Þetta vissi leik­stjór­inn.“

Næst kemur Sigurjón inn á sam­skiptin við Dóru og tekur fram að fram­leið­end­urnir tveir sem um er rætt hafi sam­tals 50 ára reynslu af kvik­mynda­gerð og þeir hafi aldrei áður séð ástæðu til að slíta sam­skiptum við leik­stjóra. Segir hann að hin erf­iðu sam­skipti hafi byrjað „löngu áður“ en fréttin um eign­ar­haldið birt­ist.

„Ég vil líka taka fram að þessir tveir til­teknu fram­leið­endur hafa sam­tals 50 ára reynslu af kvik­mynda­gerð og aldrei hafa þeir áður séð ástæðu til að slíta sam­skiptum við leik­stjóra. Þessi erf­iðu sam­skipti þar á milli byrj­uðu löngu áður en þessi frétt um eign­ar­hald fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins birt­ist, þvert á það sem leik­stjóri heldur fram í grein­inni.“

Í loka­orðum sínum segir Sigurjón að Ára­mótaskaupið hafi aldrei verið í hættu, þrátt fyrir full­yrð­ingar um slíkt í grein Heim­ild­ar­innar.

„Að lokum: Sú full­yrð­ing í fyr­ir­sögnum um að Ára­mótaskaupið hafi á ein­hverjum tíma­punkti verið í hættu stenst enga skoðun og því ekki á neinn hátt sann­leik­anum sam­kvæmt. Ekki nema að það telj­ist hættu­legt að fara á Selfoss.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við