Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kjartan Magnússon: „Þessi atriði vill meirihlutinn ekki ræða þótt að þau séu ekki trúnaðarmál“

Kjartan Magnússon: „Þessi atriði vill meirihlutinn ekki ræða þótt að þau séu ekki trúnaðarmál“
Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn segir í sam­tali við Mannlíf að „meiri­hlut­inn leyfir loks umræðu um mál­efni Ljós­leið­ara Orku­veit­unnar í borg­ar­stjórn eftir að hafa bannað slíka umræðu á tveimur síð­ustu fundum, 20. des­em­ber og 3. jan­úar síð­ast­lið­inn.“

Hann segir að „ákvörðun meiri­hluta borg­ar­stjórnar um að neita mér og öðrum borg­ar­full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins um að ræða málið, var skýrt brot á ákvæðum 27. greinar sveit­ar­stjórn­ar­laga og 34. greinar sam­þykktar og stjórn Reykja­vík­ur­borgar.

Með því að aflétta umræddu umræðu­banni hélt ég að meiri­hlut­inn myndi nú loks veita borg­ar­stjórn upp­lýs­ingar um við­skiptin og ræða þá stefnu­breyt­ingu sem þau hafa í för með sér sem og áhrif þeirra á fjár­hag borg­ar­innar.

Annað hefur komið á dag­inn.“

Kjartan nefnir að „ræður borg­ar­stjóra og for­manns borg­ar­ráðs hafa verið inni­halds­litlar og að mestu leyti rök­stuðn­ingur fyrir því af hverju áfram skuli ríkja leynd um við­skipti Ljós­leið­ara OR og Sýnar og áhrif þeirra á fjár­hag borg­ar­innar. Afar mik­il­vægt er þó að ræða mál­efni Ljós­leið­ar­ans og Orku­veit­unnar, ekki síst skulda­stöðu fyr­ir­tækj­anna. Ljós­leið­ar­inn skuldar nú 14 millj­ónir króna.“

Með samn­ingnum segir Kjartan að þá „hækki skuld­irnar um að minnsta kosti þrjá millj­arða til við­bótar. Ljós­leið­ar­inn kaupir nú stofn­net Sýnar á 3 millj­arða króna. Í stað­inn skuld­bindur Sýn sig til að kaupa þjón­ustu af Ljós­leið­ar­anum í 12 ár. Svo virð­ist sem um sé að ræða svo­kall­aða skil­yrta sölu.“

Kjartan segir að „ef um slíkt er að ræða ætti að upp­lýsa borg­ar­full­trúa um það án und­an­bragða. Eitt af yfir­lýstum mark­miðum Sýnar með söl­unni er að styrkja efna­hag og lausa­fjár­stöðu sína. Við sölu er stofn­net Sýnar bók­fært á 564 millj­ónir króna. Sölu­hagn­aður Sýnar vegna kaupanna er því 2.436 millj­ónir króna og bók­fær­ist að fullu við afhend­ingu. Að auki er áætlað að við­skiptin hafi jákvæð áhrif á rekstr­ar­kostnað Sýnar um 100 millj­ónir króna á ári, nettó.

Einnig að árleg fjár­fest­ing­ar­þörf Sýnar lækki í kringum 120 millj­ónir króna yfir samn­ings­tím­ann. Búast má við að fjár­fest­ing­ar­þörf Ljós­leið­ar­ans hækki sem því nemur.“

Kjartan spyr:

„Á Orku­veita Reykja­víkur að stækka starf­svæði sitt, færa út kví­arnar í sam­keppn­is­rekstri og ráð­ast í áhættu­fjár­fest­ingar á lands­byggð­inni án und­an­geng­innar umræðu í borg­ar­stjórn?“

Hann segir að „þessi atriði vill meiri­hlut­inn ekki ræða hér í borg­ar­stjórn þrátt fyrir að þau séu í sjálfu sér ekki trún­að­ar­mál. Í eig­enda­stefnu Orku­veitu Reykja­víkur (4. kafla) er skýrt kveðið á um að meg­in­starf­svæði fyr­ir­tæk­is­ins sé Suð­vest­ur­land. Tækifæri ann­ars staðar séu skoðuð út frá hlut­verki fyr­ir­tæk­is­ins, arð­semi og áhættu og skulu stað­fest af eig­endum áður en stofnað er til skuld­bind­inga vegna þeirra. Þetta ákvæði eig­enda­stefnu OR er þver­brotið í þessu máli,“ segir hann og bætir við:

„Í eig­enda­stefnu Reykja­vík­ur­borgar gagn­vart B-hluta félögum (sam­þykkt í borg­ar­stjórn 3. maí sl.) er skýrt kveðið á um að eig­enda­fyr­ir­svar (borg­ar­stjóri) skuli leggja mál, sem eru óvenju­leg eða mik­ils háttar fyrir borg­ar­ráð til sam­þykktar. Þetta ákvæði eig­enda­stefnu Reykja­vík­ur­borgar er einnig þver­brotið í þessu máli.

Sýn­ar­samn­ing­ur­inn er óvenju­legur í rekstri Ljós­leið­ara OR enda gert ráð fyrir að farið verði í útrás um land allt með mark­vissum hætti í stað þess að sinna skil­greindu starf­svæði.“

Kjartan vill meina að samn­ing­ur­inn sé mik­ils háttar:

„Markmið Ljós­leið­ara OR með honum er að byggja upp nýjan og öfl­ugan lands­hring fjar­skipta. Þá er samn­ing­ur­inn mjög kostn­að­ar­samur enda er um að ræða einn stærsta við­skipta­samn­ing í sögu borg­ar­innar. Á fund­inum lagði ég fram eft­ir­far­andi fyr­ir­spurnir fyrir hönd borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins:

Óskað er eftir grein­ar­gerð um fjár­hags­leg áhrif Sýn­ar­samn­ings­ins á fjár­hag og skulda­stöðu Ljós­leið­ar­ans, Orku­veitu­sam­stæð­unnar og sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar.

Óskað er eftir því að fá yfir­lit yfir stærstu við­skipta­samn­inga Reykja­vík­ur­borgar og fyr­ir­tækja hennar und­an­farin tíu ár og greiðslur sam­kvæmt þeim.

Miðað verði við við­skipta­samn­inga og/eða greiðslur að fjár­hæð yfir einum millj­arði króna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina