Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Tveir menn ógnuðu konu með hníf á heimili hennar: „Hrintu mér til hliðar og óðu inn í íbúðina“

Tveir menn ógnuðu konu með hníf á heimili hennar: „Hrintu mér til hliðar og óðu inn í íbúðina“
Mynd / Skjáskot RÚV

Þann 14.ágúst 1984 gerð­ist það óhugna­lega atvik að tveir menn réð­ust inn á heim­ili við Háteigs­veg. Menn­irnir voru vopn­aðir hnífum og höfðu í hót­unum við kon­una sem þar bjó og ógn­uðu henni með hnífum. DV fjall­aði um málið en þar kom fram að menn­irnir sögð­ust ætla að drepa eig­in­mann hennar sem var þá ekki heima. „Eftir að hafa hrætt kon­una tóku þeir frá henni búr með páfa­gaukum í og héldu á brott með þeim orðum að þeir kæmu brátt aftur til að drepa mann­inn. Frá Háteigs­vegi héldu menn­irnir í annað hús við Miklu­braut þar sem þeir höfðu sams konar hót­anir í frammi við stúlku sem þar býr,“ segir í frétt DV. Ekki leið á löngu þar til lög­regla náði mönn­unum og var annar þeirra settur í varð­hald. Samkvæmt upp­lýs­ingum hjá Rann­sókn­ar­lög­regl­unni sem hafði málið til með­ferðar á þessum tíma voru menn­irnir alræmdir glæpa­menn og höfðu komið oft við sögu hjá lög­regl­unni á und­an­förnum árum. Þá var tekið fram að báðir menn­irnir hafi verið undir áhrifum vímu­efna þegar atburð­irnir gerð­ust.

„Þeir hringdu fyrst bjöll­unni og komu svo upp og spurðu um Hilmar. Hann var ekki heima en þeir trúðu því ekki, hrintu mér til hliðar og óðu inn í íbúð­ina að leita að honum, sögð­ust komnir til að drepa hann,” sagði Erla Ragn­ars­dóttir í sam­tali við DV. Hún sagði annan mann­inn hafa verið mjög skugga­legan í útliti og virt­ist viti sínu fjær af heift. Hinn mann­inn sagði hún hafa verið venju­legan og mun rólegri en sá fyrri.

„Sá æst­ari var með hníf með sér sem hann otaði að mér og eftir hann eru hnífa­för í borð­stofu­borð­inu og á úti­dyr­unum. Hann sagði sífellt: „Við komum aftur. Segðu honum að við komum aftur.” Ég veit ekki hvort þeir voru sárir en alla­vega var blóð eftir þá á hurð­ar­hún­inum og tepp­inu niðri,” sagði Erla. Eftir nokkra stund losn­aði hún við menn­ina úr íbúð­inni en höfðu þeir á brott með sér páfa­gauka­búr og tvo páfa­gauka sem þau hjónin áttu. Fugl­arnir fund­ust síðar niðri í bæ. Hilmar, eig­in­maður Erlu, leit málið alvar­legum augum og kærði báða menn­ina í kjöl­farið. Aðspurð hvort hún hafi verið hrædd meðan á þessu stóð sagð­ist Erla hafa verið furðu róleg. Sjokkið hafi komið eftir að menn­irnir fóru en þá hafi hún verið stjörf af hræðslu. Eins og áður kom fram voru menn­irnir hand­teknir og ákærðir fyrir verkn­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina