Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Lífsreynslusaga Mannlífs: Dagurinn sem ég gleymdi að hugsa um hann

Lífsreynslusaga Mannlífs: Dagurinn sem ég gleymdi að hugsa um hann

Ást er fyr­ir­bæri sem ég taldi mig þekkja. Þetta var fremur ein­falt, ef ég elska ein­hvern þá þarf ég að sanna mig, ég þarf að sýna fram á að ég sé þess virði að elska.

Ég fædd­ist inn í fremur leið­in­legar aðstæður, for­eldrar mínir voru eldri en vana­legt þykir og voru fyrir löngu síðan orðin þreytt á hvort öðru.

Ég sá aldrei ást á milli for­eldra minna og fékk því skakka upp­lifun á sam­böndum frá byrjun.

Í seinni tíð lærði ég að þau væru mann­leg, eins og hver annar. Upplifun barna á for­eldrum sínum er oft sú að þau séu eins konar æðri máttur sem skorti til­finn­ingar, það var alla­vega stað­reynd í mínu til­felli. Ég sá þau aldrei gráta eða hlæja, þau bara voru þarna. Stundum rifust þau, oft­ast lögðu þau ekki einu sinni á sig að hækka róm­inn. Ég fædd­ist inn í tann­hjól sem löngu var skorðað, rútínan var ákveðin og ræt­urnar fastar.

Þegar ég varð ung­lingur fór ég að sækja í athygli frá hinu kyn­inu. Mig dreymdi um stíft sam­band, upp­fullt af hatri, gremju og ást. Var það ekki ann­ars þetta eft­ir­sókn­ar­verða við hjóna­bönd?

Ég fór snemma að tengja vondar til­finn­ingar við ást. Ég þráði umhyggju og við­ur­kenn­ingu en fædd­ist sem við­kvæm til­finn­inga­vera inn í tann­hjól kulda og hörku. Móðir mín var óham­ingju­söm, það vissu allir. Ég vissi það líka en var sann­færð um að ég væri und­ir­staða van­sældar hennar. Kannski mætti kalla þetta eins konar mis­skiln­ing, stað­reyndin var sú að ég kom inn í líf óham­ingju­samrar móður, en með augum lít­ils barns er auð­velt að sjá sann­leik­ann í röngu ljósi. Mamma var pirruð og reið við mig, hún öskr­aði á mig. Það hlaut að vera ég sem stóð í vegi fyrir að hún gæti lifað ham­ingju­ríku lífi.

Það kemur lík­lega ekki á óvart að ég hafi sjálf endað í mann­skemm­andi sam­böndum. Mér var aldrei kennt hvernig karl­maður, eða nokkur annar, ætti að elska mig.

Ég kynnt­ist fyrsta kærast­anum mínum 18 ára og var með honum í nokkur ár. Hann var skóla­bók­ar­dæmi um alkó­hólista. Ég kenndi sjálfri mér um að hann þyrfti að drekka, ég væri svo skap­stór og erfið. Hvernig ætti nokkur maður að þola mig ódeyfður? Samband okkar end­aði þegar að hann réðst á mig.

Ég þoldi aldrei að vera ein og var fljót að finna mér næsta mann sem gæti stað­fest það að ég væri einskis virði. Engin und­an­tekn­ing var þar á þegar fyrsta sam­bandi mínu lauk. Hann bauð mér í bíltúr, ég þurfti ekki mik­inn umhugs­un­ar­frest enda lík­lega mynd­ar­leg­asti maður sem ég hafði nokkurn tím­ann séð.

Ég man skýrt eftir augna­blik­inu sem ég horfði fyrst í augun á honum, á bak við feg­urð­ina var óút­skýr­an­leg illska. Þetta augna­blik var fyrsta af mörgum sem voru skýr merki þess að ég hafi átt að forða mér. Hann náði mér strax, ég hafði aldrei verið eins hel­tekin af neinu. Líklega hefur ekki verið aftur snúið frá fyrsta augn­sam­band­inu, ég varð hug­fangin, bæði af feg­urð­inni og illsk­unni.

Við tóku ár af ofbeldi, þrá­hyggju, neyslu og hatri. Mér leið eins og fanga, sama hversu oft ég end­aði sam­bandið og sann­færði sjálfa mig um að nú væri þetta búið, skreið ég alltaf aftur til baka. Ég var viss um að þarna væri ég að upp­lifa sterk­ari ást en nokkurn tím­ann áður, þetta væri það sem allir væru að elt­ast við.

Sorgin þegar hann hafn­aði mér og léttir­inn þegar hann tók við mér aftur kom mér í eins konar vímu. Ég hugs­aði um lítið annað en hann, líf mitt fór að snú­ast um það að fá frá honum við­ur­kenn­ingu, það gerð­ist aldrei. Lík­am­lega ofbeldið var ekk­ert í lík­ingu við það and­lega, ég man sárs­auk­ann svo skýrt. Að lokum skildi hann mig eftir eins og bruna­rúst, gjör­sam­lega tóma og brotna. Hans verki var lokið.

Það tók mig þrjú ár að ná jafn­vægi eftir hann, skil­grein­ing mín á ást var skakk­ari en nokkru sinni fyrr. Fyrst um sinn gerði ég lítið annað en að deyfa mig, ég var hætt að nota hug­breyt­andi efni og sótti því í aðrar leiðir. Ég þráði ekki lengur við­ur­kenn­ingu, frekar vildi ég van­líðan og hatur. Ég var komin á þann stað að vera full­kom­lega sama um aðra og fór eins og jarð­ýta í gegnum fjöld­ann allan af karl­mönnum, í leit að ein­hverjum til­finn­ingum.

Ég fann þær ekki, hvorki slæmar né góðar. Mér var ein­fald­lega sama. Á milli þess sem ég reyndi að deyfa mig var ég með þrá­hyggju fyrir ofbeld­is­mann­inum og lét eins og ég væri á launum við að fylgj­ast með sam­fé­lags­miðl­unum hans. Þetta ástand varði í tæp tvö ár en ég lærði rólega að átta mig á eigin virði. Ég skildi betur hvaðan ég væri að koma og hversu lítið ég vissi um ást og heil­brigð sam­bönd.

Þegar ég kynnt­ist mann­inum mínum reyndi ég ítrekað að fara frá honum, enda alveg viss um að ég bæri ekki vott af róm­an­tískum til­finn­ingum til hans. Hann veitti mér örygg­is­til­finn­ingu, sann­færði mig um að ég væri frá­bær og var minn allra besti vinur, meira var það ekki. Ég var aldrei hrædd um að missa hann, enda hafði hann ekki gefið mér ástæðu til þess. Hann reyndi ekki að breyta mér eða stað­festi á nokkurn hátt að ég væri ömur­leg, það vant­aði allt upp á það sem ég skil­greindi sem ást.

Bless­un­ar­lega gafst hann aldrei upp á mér og eftir nokkrar til­raunir átt­aði ég mig á því hvað það væri sem fengi mig til þess að hugsa svona mikið til hans, hver væri ástæða þess að ég sakn­aði hans þegar hann fór.

Ég fékk loks­ins að upp­lifa ást, hún var ekki vond. Eftir nokkurn tíma af stríði við mínar eigin hugs­anir rann upp sá dagur sem ég gleymdi ein­fald­lega að hugsa um ofbeld­is­mann­inn.

Dagarnir urðu fleiri, ég sleppti hægt og rólega tak­inu.

Ég var frjáls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina