Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sökkti tundurdufl eða heimagerð sprengja Hamranesinu? Náði að mynda dauðastríðið

Sökkti tundurdufl eða heimagerð sprengja Hamranesinu? Náði að mynda dauðastríðið
Ótrú­legar ljós­myndir! Mynd: Fritz Glahn

Það var í blíð­skap­ar­veðri að nýsköp­un­ar­tog­ar­inn Hamranes RE 165 sökk á örskömmum tíma undan ströndum Snæ­fells­ness þann 18. júní 1972. Allir áhafn­ar­með­limir björg­uð­ust en helj­ar­innar rétt­ar­höld voru haldin í kjöl­far sjó­slyss­ins. Var það tund­ur­dufl sem grand­aði skip­inu eða jafn­vel heima­til­búin sprengja inn­an­borðs?

Vísir birti frétt um örlög Hamra­ness dag­inn eftir en einn áhafn­ar­með­limur skips­ins náði ein­stökum ljós­myndum af dauða­stríði þess en mynda­syrpan birt­ist einnig í þýska frétta­blað­inu Der Spiegel.

Frétt Vísis hljóð­aði svo:

Lenti Hamra­nesið á tund­ur­dufli? – púð­ur­lykt í lofti, segja skip­verjarnir sem björg­uð­ust í gúmbátum — ein­kenni­leg örlög eins okkar elzta nýsköp­un­ar­tog­ara í góðu veðri nálœgt land­inu

Ástæðan fyrir þvi að einn elzti nýsköp­un­ar­tog­ar­inn okkar, Hamranes RE 165, sem áður hét Egill Skalla­gríms­son, sökk í djúpið í blanka­logni eftir því sem ger­ist til sjós, um 45 mílur út af Snæ­fells­nesi í gær­dag, liggja ekki ljósar fyrir. „Mér þætti það ekki ólík­legt að við hefðum lent á tund­ur­dufli“, sagði báts­mað­ur­inn á Hamra­nes­inu, þegar hann gekk frá borði Narfa um 2—leytið í nótt ásamt 21 félaga sínum, en vildi ann­ars sem minnst um málið ræða að sinni. Kvaðst báts­mað­ur­inn hafa verið í brúnni, þegar mik­ill hnykkur kom á skipið, þannig að það tókst á loft. Þetta gerð­ist um miðjan dag, en undir kvöld sökk skipið, enda átti sjór­inn greiða leið inn um kinn­ung skips­ins, en skip­verjar gátu allir yfir­gefið skipið í 3 ágætum gúm­björg­un­ar­bátum. Þá töldu skip­verjar sig hafa fundið púð­ur­lykt eftir að óhappið gerð­ist. Eigendur skips­ins voru þeir Hreiðar og Haraldur Júl­í­us­synir, ásamt skip­stjór­anum , Bjarna Guð­munds­syni. Togarinn var smíð­aður í Selby í Englandi 1947, en eig­endur frá því Kveld­úlfur seldi skipið og þar til í des­em­ber voru þeir Jón Hafdal og Haraldur Jónsson í Hafn­ar­firði. Gekk útgerðin a.m.k. á tíma ákaf­lega brös­ótt og tóku núver­andi eig­endur þá við skip­inu. Síðustu 11 dag­ana var skipið á Faxadýpi á veiðum, sögðu þeir eig­end­urnir okkur suður i Keflavík, þegar þeir biðu eftir skips­höfn sinni. Fátt manna var að taka á móti hinni ungu skips­höfn sem svo óvænt var komin úr síð­ustu veiði­för Hamra­ness. „Ég var í véla­rúm­inu og fann ekk­ert sér­stakt, vissi ekk­ert fyrr en félagar mínir sögðu mér hvers kyns var“, sagði 22 ára háseti um borð, Fritz Glahn frá Köln i Þýzkalandi, en hann og- félagi hans Rudolf Blickhauser voru meðal áhafn­ar­manna skips­ins og voru í sinni annarri veiði­ferð. „Hins­vegar sá ég að gat hafði mynd­ast um mið­bik skips­ins. „Það var engin hætta á ferðum og því engin hræðsla um borð“, sagði Blickenhauser, „En sann­ar­lega fannst mér það sorg­leg sjón að sjá á eftir skip­inu undir vatns­borðið, und­ar­leg reynsla fyrir okkur.“ Skip­verjar voru óðar horfnir inn í litla rútu, sem komin var að sækja þá, — en hjá þeim á Narfa var ekki til set­unnar boðið, — land­festar voru þegar leystar á ný, þegar áhöfnin á Hamra­nesi var farin frá borði, — og gúmbát­unum skotið upp á bryggju. Litli bíll­inn lagði af stað til Reykja­víkur þar sem flestir skip­verja búa, en eftir sat lög­reglan og hafði að vonum áhyggjur af björg­un­ar­tækjum upp á tugi eða hund­ruð þús­unda, sem lágu þarna á hafn­ar­bakk­anum í reiði­leysi.

Ótrú­legar ljós­myndir!
Ljós­mynd­ar­inn sjálfur, Fritz Gahn

Hefði verið ískyggi­legt í vondu veðri — segir for­stjóri Slysa­varna­fé­lags­ins

Þarna er einn af nýsköp­un­ar­tog­ur­unum okkar að hverfa í hafið eftir langa og dygga þjón­ustu. Þessi skip eru nú tryggð fyrir 15 millj­ónir króna og er það föst trygg­ing, sem fjár­hæða­nefnd fiski­skipa ákveður hverju sinni. Þótt 15 millj­ónir séu ekki há upp­hæð í útgerð nú til dags er ekki vafi á að þetta skip hefur skilað á land verð­mæti sem nemur hund­ruðum millj­óna und­an­farna ára­tugi. ,,Það hefði verið ískyggi­legt ef þetta hefði skeð í svartasta skamm­deg­inu og veður hefði verið slæmt“ sagði Henry Hálf­dán­ar­son hjá Slysa­varna­fé­lag­inu í sam­tali við Vísi. Hann sagði einnig að mönnum léki mikil for­vitni á að vita hvað fyrir hefði komið, því almennt væru nýsköp­un­ar­tog­ar­arnir taldir með beztu sjó­skipum heims. Ekki kom til þess að Slysa­varna­fé­lagið þyrfti að gera ráð­staf­anir vegna þessa slyss, þar sem mörg skip voru þarna i grennd­inni og kom Narfi mjög fljótt á vett­vang. Hamranes var tryggt hjá Almennum trygg­ingum og i morgun hófust sjó­próf í mál­inu og kemur þá vænt­an­lega eitt­hvað fram sem skýrir þetta sjó­slys. Það er ekki oft sem hægt er að birta myndir af skipi frá því að það er að byrja að síga í sjó og þar til það er horfið af yfir­borð­inu. En á hér á síð­unni, er auð­velt að gera sér í hug­ar­lund hvernig þetta hefur gengið fyrir sig eftir að sjór­inn fór að fossa inn i skipið. Það byrjar að síga eftir því sem það þyng­ist og síðan fer það að hall­ast. Það þyng­ist stöðugt meira að aft­an­verðu og brátt fer að flæða yfir skut­inn. Og þrátt fyrir hetju­lega bar­áttu þessa gamla afla­skips hefur Ægir yfir­hönd­ina eins og svo oft áður. Áhöfnin getur ekk­ert gert til að afstýra slys­inu og síð­ast er það aðeins stefnið sem rís hátt upp úr sjó og er það síð­asta kveðja tog­ar­ans sem lengi bar nafn þess fræga kappa Egils Skalla­gríms­sonar.

Alþýðu­blaðið birti frétt þann 24. júní 1972 um sjó­prófin sem gerð voru vegna Hamra­ness en þar kom í ljós að lík­leg­ast hafi heima­gerð sprengja sprungið um borð í skip­inu og þar af leið­andi sökkt því. 

HAMRANESINU SÖKKT MEÐ HEIMATILBÚINNI SPRENGJU?

Sjó­próf­unum vegna Hamra­ness er lokið að mestu og er nú talið full­vist, að tog­ar­inn hafi sokkið vegna sprengju sem sprakk um borö i honum, en ekki utan hans. Í gær komu til yfir­heyrslu við rétt­ar­höldin Rudolf Axelsson, lög­reglu­þjónn og sprengju­sér­fræð­ingur, og stað­festi hann í öllu það, sem Helgi Hall­varðs­son, skip­herra hafði sagt um spreng­ing­una. Báðir full­yrða, að hér hafi ekki verið um tund­ur­dufl að ræöa, heldur ein­hverja ann­ars konar sprengju, og þá heima­til­búna, og sú sprengja hafi ekki sprungið utan tog­ar­ans, heldur um borö i honum. Þessar full­yrð­ingar þeirra félaga fengu enn betri stað­fest­ingu, þegar skip­stjór­inn á tog­ar­anum Fylki, sem lenti á tund­ur­dufli fyrir sextán árum, mætti fyrir rétt­inum í gær. Allar hans lýs­ingar á þeim atburði voru gjör­ó­líkar þvi, sem haft hefur verið eftir eig­endum og skip­verjum Hamra­ness. Sigurður Hallur Stef­áns­son, full­trúi bæj­ar­fó­get­ans i Hafn­ar­firði, lýsti því yfir i við­tali við Alþýðu­blaðið í gær­kvöldi, að hann liti svo á, að sjó­próf­unum væri að mestu lokið. Hann vildi taka það skýrt fram, að hann gæti ekki og það væri reyndar aldrei gert, að gefa upp nið­ur­stöður eða láta i ljósi nokkuð álit að loknum sjó­prófum. Málið verður sent sak­sókn­ara rík­is­ins og kvað Sigurður lík­legt, að um það myndu dóm­stól­arnir síðan fjalla. Þar með er lokið einu af umfangs­mestu sjó­prófum, sem fram­kvæmd hafa verið á Íslandi

Eigendur skips­ins fóru í mál við trygg­inga­fé­lag þess, Almennar trygg­ingar því það neit­aði að greiða þær 15 millj­ónir sem skipið var tryggt fyrir. Upp­hófust helj­ar­innar rétt­ar­höld sem nið­ur­staða komst ekki í fyrr en Hæsti­réttur sýkn­aði trygg­inga­fé­lagið alfarið, 1976.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina