Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sólveig velgir ráðherra undir uggum: „Ég óska því eftir að þú takir á móti mér að morgni mánudags“

Sólveig velgir ráðherra undir uggum: „Ég óska því eftir að þú takir á móti mér að morgni mánudags“
Halldór Benjamín og Sólveig Anna. Myndin er sam­sett.

„Í ljósi póli­tískrar og stjórn­sýslu­legrar ábyrgðar þinnar á fram­lagn­ingu rík­is­sátta­semj­ara á svo­kall­aðri miðl­un­ar­til­lögu, svo og á til­hæfu­lausri kröfu emb­ætt­is­ins um afhend­ingu gagna úr félaga­skrá Eflingar, geri ég kröfu um að fá áheyrn þína án tafar,“ skrifar Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, í harð­orðu bréfi sem hún sendir Guðmundi Inga Guð­brands­syni félags­mála­ráð­herra í gær­kvöld. Hún birti bréfið á Facebook í gær­kvöld ásamt skýr­ingum.Krafan er til­komin vegna þeirrar ákvörð­unar Aðal­steins Leifs­sonar rík­is­sátta­semj­ara að leggja fram miðl­un­ar­til­lögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnu­lífs­ins. Deilan er í hörðum hnút og hafa Sólveig Anna og Halldór Benjamín Þor­bergs­son skipst á köp­ur­yrðum.Tillagan, sem fer í dóm félags­manna beggja sam­tak­anna, felur í sér samn­ing á sömu nótum og Starfs­greina­sam­bandið gerði fyrir ára­mót. Þá gerir samn­ing­ur­inn ráð fyrir aft­ur­virkni þannig að Efl­ing­ar­fólk fái það sama og Starfs­grein­sam­bandið. Á sama tíma eru félags­menn að greiða atkvæði um verk­falls­boðun á Íslands­hót­elum. Nið­ur­stöðu í þeirri atkvæða­greiðslu er að vænta eftir helgi.

Ég bið þig að van­meta ekki þann þunga

„Þrátt fyrir aug­ljósa laga­lega ann­marka, skýrar vís­bend­ingar um hlut­drægni, stór­kost­lega skert traust verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar á emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara og fjöl­margar áskor­anir um að emb­ættið dragi svo­nefnda miðl­un­ar­til­lögu sína til baka hefur emb­ættið ekki gert það, heldur þvert á móti aukið á for­herð­ingu sína. Kom það ber­lega í ljós síð­ast­lið­inn föstu­dag þegar emb­ættið lét Hér­aðs­dóm Reykja­víkur birta Eflingu fyr­ir­kall vegna dóms­máls þar sem kraf­ist er afhend­ingar á við­kvæmum per­sónu­upp­lýs­ingum Efl­ing­ar­fé­laga,“ skrifar Sólveig og telur engar laga­heim­ildir vera fyrir þessu.

Mörg verka­lýðs­fé­lög hafa gagn­rýnt rík­is­sátta­semj­ara fyrir aðferðian við að beita miðl­un­ar­úr­ræð­inu. Félags­mála­ráð­herra hefur aftur á móti lýst stuðn­ingi við sátta­semj­ara í mál­inu en seg­ist skilja gagn­rýni Efl­ing­ar­fólks. Sólveig ítrekar kröfu sína um fund með ráð­herra og setur honum tímara­mma.„Ég óska því eftir að þú takir á móti mér að morgni mánu­dags­ins næst­kom­andi 30. jan­úar. Ég legg þunga áherslu á að þú eigir fund með mér eigi síðar en á þeim tíma, þar sem seinna þann dag mun fara fram fyr­ir­taka í fyrr­nefndu dóms­máli sem rík­is­sátta­semj­ari hefur höfðað og um kvöldið verða til­kynnt úrslit atkvæða­greiðslu um verk­falls­boðun Efl­ing­ar­fé­laga hjá Íslands­hót­elum,“ segir Sólveig.Hún áréttar að um sé að ræða grafal­var­legt for­dæm­is­gef­andi mál sem snúi að lög­mæti stofn­ana aðila vinnu­mark­að­ar­ins, grund­vall­ar­rétt­indum vinn­andi fólks og því trausti sem verka­fólki verður unnt að bera til opin­bers ramma vinnu­mark­aðs­mála á Íslandi til fram­tíðar. Sólveig gerir ráð­herr­anum grein fyrir því að hann eigi ekki von á góðu ef ekki verði brugð­ist strax við.„Ég bið þig að van­meta ekki þann þunga sem Efling – stétt­ar­fé­lag mun fyrir sitt leyti setja í við­brögð vegna þessa máls og eftir atvikum beina að þeim stofn­unum hins opin­bera sem á því bera ábyrgð. Því höfða ég til ábyrgðar þinnar sem ráð­herra vinnu­mark­aðs­mála að verða við ósk minni um fund án vífilengja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina