Hinir þjóðþekktu herrar, Glúmur Baldvinsson og Stefán Máni, eiga það sameiginlegt að hafa andúð á dagskrá Ríkissjónvarpsins og sulluðu úr skálum vonbrigða sinna yfir fylgjendur sína á samfélagsmiðlum.
Vonbrigði Stefáns Mána með dagskrá laugardagskvöldsins eru augljós en í tísti sínu segir hann: „Ég get ekki hætt að dást að því hvað dagskráin hjá milljarðamaskínunni RÚV er léleg. Skattgreiðendum boðið upp á rusl laugardagskvöld eftir laugardagskvöld.“
Glúmi þótti aftur sunnudagskvöldið arfaslakt og var með mun ítarlegri í frásögn og virðist lausnamiðaðari en rithöfundurinn. Færsla Glúms hefur upphaf, meginmál og endi. Í blálokin varpar hann fram spurningu. Glúmur kynnir fylgjendum sameiginlegan aldur sinn og sjónvarpsins – og rifjar upp dagskrána forðum daga: „Sjónvarpið var sett á laggirnar árið sem ég fæddist. 1966. Mín æska var lituð af sérstaklega leiðinlegum dýralífsmyndum RUV. Þess vegna ákvað ég að stunda prakkarastrik utandyra á Ísafirði í stað þess að fræðast um eðlun maðka og annarra skordýra.“
Upprifjun Glúms á útileikjum og strákapörum sínum heldur áfram en vendir hann svo kvæði sínu í kross og tekur sérstaklega fyrir heimildarþáttinn Storm.
Heimildarþáttaröðin, Stormur, fjallar um baráttuna við COVID-19 þar sem fylgst er með störfum þeirra sem stjórnuðu aðgerðum í faraldrinum. Þættirnir tóku þrjú ár í vinnslu og var fyrsti þáttur sýndur á sunnudagskvöldið.
Gagnrýni Glúms er svohljóðandi: „Leiðinlegra sjónvarpsefni hefi èg ekki séð síðan 1972 og þá er Gísli Marteinn ekki undanskilinn. Ég mun leika mér úti héðanaf.“































Athugasemdir