Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Oddviti VG í Suðurkjördæmi um útlendingafrumvarpið: „Verið að vinna gegn okkar grunn­gildum“

Oddviti VG í Suðurkjördæmi um útlendingafrumvarpið: „Verið að vinna gegn okkar grunn­gildum“
Mynd / Skjáskot af vf.is.

For­maður svæðis­fé­lags VG á Suður­nesjum og odd­viti Suður­kjör­dæmis, Hólm­fríður Árna­dóttir, segir að ef út­lend­inga­frum­varpið fari ó­breytt í gegn, þá ógni það ekki fyrir víst ríkis­stjórnar­sam­starfi VG, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks.

Segir Hólm­fríður í sam­tali við Frétta­blaðið að það sé ekki auð­velt að upp­lifa að unnið sé gegn grunn­gildum flokks­ins.

Ásamt hópi innan VG rit­aði Hólm­fríður grein í síð­ustu viku þar sem gras­rótin í VG mót­mælti út­lend­inga­frum­varpi Jóns Gunnars­sonar dóms­mála­ráð­herra.

Telur hóp­ur­inn að frum­­varp Jóns ein­­kenn­ist fyrst og síð­ast af andúð í garð útlend­inga og að það virð­ist hafa aðeins eitt mark­mið: Að neita fleirum enn hraðar um hæli.

Katrín Jak­obs­dóttir.

Segir Hólm­fríður að brugð­ist hafi verið við áður­nefndri grein með há­degis­fundi um helg­ina þar sem gras­rótin hafi átt gott sam­tal við for­ystu­fólk VG; vill hún ekki meina að það sé ólga innan VG vegna frum­varps Jóns:

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra.

„Við á­litum svo að það sé ekk­ert endi­lega ólga eða neitt slíkt, heldur ein­fald­lega erum við að sinna okkar hlut­verki sem gras­rót. Það er að minna stöðugt á okkar stefnu og eiga alltaf í stöð­ugu sam­tali við for­yst­una, sem við erum vissu­lega að reyna efla og hvetja til góðra verka.“

Hólm­fríður Vill varla hugsa um hvað ger­ist ef frum­varp Jóns fer óbreytt í gegn:

„Ég vona svo sannar­lega að okkar fólk grípi vel inn í og að við fáum þessu frum­varpi breytt, þannig að það fari ekki svona í gegn. Af því að við verðum líka að hlusta á þessi mann­rétt­inda­sam­tök sem eru að koma með um­sagnir og annað slíkt og okkur ber skylda til þess að sinna þessum mála­flokki vel. Við erum hluti af al­þjóða­sam­starfi og við erum með sátt­mála í gildi hérna á Ís­landi sem snúa að mann­rétt­inda­málum og mann­rétt­indum. Þannig að ég yrði mjög leið ef þetta færi svona í gegn, svo ég tali fyrir mig.“

Hún bætir við að í stjórnar­sátt­mál­anum sé kveðið á um mann­rétt­indi; það eigi að standa vörð um þau:

„Eins er kveðið á um mál­efni inn­flytj­enda og flótta­fólks. Það er mikil­vægt að standa við það sem stendur í stjórnar­sátt­mála, við eigum að taka vel á móti flótta­fólki. Við viljum vera fjöl­menn­ingar­sam­fé­lag og okkur vantar fólk til lands­ins, til þess að vinna og annað slíkt. Ég trúi ekki öðru en að það sé á okkur hlustað og fólkið okkar fari fram með þeim hætti sem er í takt við okkar stefnu; að það sé virki­lega hlustað á þessar um­sagnir og hlustað á gras­rót­ina. Ég vona það og ég trúi því að það sé svo­leiðis,“ segir Hólm­fríður.

Hún er þó ekki viss um hvort rík­is­stjórn­ar­sam­starfið muni gjalda fyrir afar umdeilt útlend­inga­frum­varp Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra:

„Ég bara veit það ekki. Nú er ég ekki á þingi og ekk­ert í fram­lín­unni hvað það varðar, þannig ég veit það ekki. En ég er ekki að sjá það endi­lega. Vissu­lega ber okkur í gras­rót­inni að halda mál­efnum á lofti, sér­stak­lega mál­efnum minni­hluta og mann­rétt­inda.“

Bætir að end­ingu þessu við:

„Það er alveg vissu­lega erfitt þegar maður upp­lifir að það sé verið að vinna gegn okkar grunn­gildum. En ég hef trú á að þetta fari ekki svona í gegn og að það verði unnið betur í þessu frum­varpi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina