Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Björn skrifar fallegan pistil um eiginkonuna: „Viltu núna heyra af snilldinni í bókinni?“

Björn skrifar fallegan pistil um eiginkonuna: „Viltu núna heyra af snilldinni í bókinni?“
Björn Birg­is­son.

Björn Birg­is­son seg­ist eiga erfitt með að hlusta á aðra en hann hafði þó unun af að hlusta á eig­in­kon­una segja honum frá bók sem hún las.

Sam­fé­lags­rýn­ir­inn sköru­legi frá Grinda­vík, Björn Birg­is­son er vanur að skrifa nokkuð harð­orða pistla á Facebook, þar sem hann gagn­rýnir ýmis­legt sem miður fer í sam­fé­lagi okkar. Í nýj­ustu færslu sinni brá hann þó út af van­anum og skrif­aði nokkuð fal­lega færslu og í raun sjálfs­gagn­rýni þar sem hann við­ur­kenndi að hann eigi stundum erfitt með að hlusta á aðra. Í pistl­inum segir hann frá því hvað hann hafði mikla unun af að hlusta á konu sína segja honum frá bók sem hún hafði nýverið lesið. Megum við mörg draga lær­dóm af færslu Björns og hlusta betur á aðra, annað er í raun dóna­skapur. Færsluna má lesa hér fyrir neðan.

„Að hlusta – en heyra ekk­ert!

**********– Þegar Fennir í sporin – er tit­ill bókar eftir Steindór Ívarsson.Ástríkur bóka­for­lag gaf út 2021.**********Af bók­ar­káp­unni:Er rétt að rekja spor sín þegar fennt hefur í þau?**********Ingi­björg lestr­ar­hestur tók þessa bók á bóka­safn­inu.Heill­að­ist algjör­lega af inni­hald­inu og gat varla lagt hana frá sér fyrr en allir þræðir voru upp­lýstir og lágu fyrir.En þræð­irnir eru margir og spinn­ast snilld­ar­lega og mynda heild sem kemur veru­lega á óvart.**********Í gær­kvöldi fylgdi ég minni ynd­is­legu konu til hvílu eins og sér­hvert kvöld.Hef það hlut­verk að setja sér­staka augn­dropa í grænu augun hennar til að vernda þau og vinna gegn glákunni, sjúk­dómi sem áður fyrr blind­aði fólk, en er nú hægt að halda niðri.**********Bjössi minn, mig langar svo að segja þér frá frá­bærri bók sem var að ljúka við að lesa í kvöld!Æi, ekki núna, ég þarf að ljúka við pistla sem ég er með í vinnslu, kannski bara á morgun!Skynjaði von­brigðin með svar mitt.**********Í morgun kom þetta „á morgun!“Áttum brýnu erindi að sinna í Reykja­víK fyrir hádegið í dag.Við Þor­björn­inn sagði þessi elska; viltu núna heyra af snilld­inni í bók­inni?Já, já, slökkti á útvarp­inu og sviðið var hennar.Hún naut þess að segja frá fólk­inu í bók­inni, lífi þess, hæðum og lægðum og svo örlögum þess og þeirra nán­ustu, nán­ast frá ung­lings­aldri til full­orð­ins­ára þegar dauð­inn kall­aði á eitt þeirra.**********Ég skynj­aði þörf hennar til að segja frá sinni upp­lifun og trufl­aði sem minnst, ein­beitti mér frekar að því að hlusta og við það rann upp fyrir mér að mér lætur ekk­ert sér­stak­lega vel að hlusta á aðra!Hef litla eirð í mér til þess, hug­ur­inn er alltaf far­inn út um víðan völl í leit að við­fangs­efnum, þannig að ég hætti ósjálfrátt að heyra – án þess að láta við­mæl­and­ann vita af því!Ekki í morgun.Naut þess að fá inn­sýn í þetta snilld­ar­verk – frá Þor­birn­inum og alla leið inn í Kópavog!Vel rúm­lega hálf­tími af Kilju Ingi­bjargar og ég virki­lega naut þess að heyra hvernig hún lýsti upp­lifun sinni, hvernig hún skynj­aði bók­ina.Hvernig hún afgreiddi ýmis­legt sem miður fór í bók­inni út frá sínum heil­brigðu lífs­við­horfum og hvernig hún gat tekið þátt í lífs­hlaupi sögu­per­són­anna með sína jákvæðni að vopni.**********Að hlusta – en heyra ekk­ert.Hef svo­lítið verið þar.Kannski verður breyt­ing á því.Vonandi!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina