Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Tómas hjartalæknir komst á toppinn: „Í gær létust tveir á fjallinu“

Tómas hjartalæknir komst á toppinn: „Í gær létust tveir á fjallinu“
Tómas Guð­bjarts­son er mik­ill fjalla­garpur. Mynd: Facebook.

„Fyrir lækni með áhuga á hæð­ar­veiki var þetta eins og til­rauna­stofa á áhrifum þunns lofts á manns­lík­amann- því miður,“ skrifar Tómas Guð­bjarts­son, hjarta­læknir og göngu­garpur, sem náði sjö kíló­metra háum tindi fjalls­ins Aconcagua í Argent­ínu á föstu­dag. Hann greinir frá þessu á Facebook síðu sinni. Gangan var ekki auð­veld, vegna mik­illar snjó­komu voru aðstæður óvenju erf­iðar. Með Tómasi í för voru níu amer­ískir fjall­göngu­menn, í fara­broddi voru þeir Ed Viesturs og Garret Madison sem báðir hafa toppað fjallið Everest tólf sinnum. Tveir úr hópnum þurftu að verða eftir í þriðju búðum, annar þeirra fékk nið­ur­gang og hinn háfjallalungna­bjúg en Tómas greindi hann sjálfur. Lækn­ir­inn glímdi sjálfur við heift­uga maga­kveisu í grunn­búðum fjalls­ins en var að öðru leiti heilll heilsu alla göng­una. Úr göngu­hópi sem var degi á eftir hópi Tómasar, lét­ust tveir menn. Færslu Tómasar má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

„Í fyrra­dag rætt­ist gam­all draumur þegar ég náði 7 km háum tindi Aconcagua í Argent­ínu, hæsta fjalli utan Himala­ja­fjalla. Mér bauðst að slást í för 9 amer­íkra fjall­göngu­manna sem Íslands­vin­ur­inn Ed Viesturs leiddi ásamt Garret Madison. Báðir hafa náð tindi Everest 12 sinnum, ásamt K2 og öllum helstu fjöllum heims, Ed iðu­lega án við­bót­ar­súr­efnis. Þetta var helj­ar­innar puð, enda aðstæður óvenju erf­iðar vegna mik­illa snjóa. Því var gengið úr búðum 1 í búðir 2 & 3 á mann­broddum með ísöxi og svo áfram upp á snævi þaktan tind­inn – og not­ast við línu í brött­ustu brekk­unum. Mestur tími fór í hæð­arað­lögun og bera byrgðir upp og niður fjallið. Veður var kalt en frá­bært útsýni og ill­vígir svipti­vindar, sem þekktir eru á Aconcagua, létu okkur að mestu í friði. Fyrir utan Ed og Garret þá var með okkur reynslu­bolt­inn Cutsio, heima­maður sem var í sinni 54. ferð á tind­inn) og við síðan 8 í hópnum, allt þaul­vant fjalla­fólk sem í mörgum til­vikum er reyna sig við Seven Summits og ætlar sér á Everest á næstu miss­erum. Tveir hellt­ust úr lest­inni í búðum 3, sem heita Camp Cholera, og það með réttu. Annar þeirra fékk einmitt heift­ugan nið­ur­gang þar, og hinn háfjallalungna­bjúg sem ég gat greint á staðnumn – því við deildum tjaldi! Af hinum 6 þurftu þrír stera­skot í vöðva á leið­inni niður – vegna háfjalla­veiki (AMS), og þá til að geta klárað 13 klst. toppa­dag­inn. Sjálfur var ég í miklu stuði, enda búinn að taka út heift­ar­lega maga­kveisu í grunn­búðum. Ekki spillti fyrir að sl. vikur hef getað æft mig heima í fimb­ulkulda og brodda kann ég vel við eftir ára­tuga reynslu af íslenskum jöklum. Töl­fræðin er erfið á Aconcagua og tæp­lega 30% ná tind­inum. Nú er ég kom­inn heilu og höldnu niður til vín­borg­ar­innar Mendoza í 37 stiga hita, degi á undan áætlun vegna veð­ur­glugga sem okkur bauðst- sæll og glaður – en um leið hugsi yfir þeim hættum sem svona há fjöll bjóða upp á. Í gær lét­ust 2 á fjall­inu, en þeir voru úr hópi sem var degi á eftir okkur, og öðrum tveimur varð fóta­skortur neðan hátinds­ins í sl. viku og er vart hugað líf á gjör­gæslu. Aconcagua er því helj­ar­innar áskorun og maður lærir að þekkja sjálfan sig, und­ir­búa sig vel og taka réttar ákvarð­anir við erf­ið­ustu aðstæður. Fyrir lækni með áhuga á hæð­ar­veiki var þetta síðan eins og til­rauna­stofa á áhrifum þunns lofts á manns­lík­amann- því miður. Samt er gef­andi að geta sem læknir komið svo mörgum til hjálpar á fjall­inu.. Á næstu dögum mun ég birta fleiri myndir af leið­angrinum, en það er fyrst núna sem ég er kom­inn í sam­band við alheim­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina