Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ivu kippt úr fræðsluverkefni vegna meintra skoðana:„Tel á mér brotið og ætla að leita réttar míns“

Ivu kippt úr fræðsluverkefni vegna meintra skoðana:„Tel á mér brotið og ætla að leita réttar míns“
Iva Marín Mynd: YouTube-skjáskot

Iva Marín Adrichem, söng­kona og laga­nemi ætlar að leita réttar síns en henni var kippt út úr fræðslu­verk­efn­inu Gott aðgengi í ferða­þjón­ustu, sem er á vegum Ferða­mála­stofu.

Verk­efnið var unnið í sam­starfi við Sjálfs­björg lands­sam­band hreyfi­haml­aðra og Öryrkja­banda­lag Íslands. Eftir að hún hafði komið fram í mynd­bandi fræðslu­verk­efn­is­ins barst henni tölvu­póstur frá ferða­mála­stjóra þar sem henni er tjáð að hún verði tekin út úr mynd­band­inu og annar feng­inn í hennar stað. Ástæðan sé sú að athuga­semdir höfðu borist ÖÍ og Sjálfs­björg vegna opin­berra skoð­ana hennar gegn trans­fólki sem hún seg­ist ekki kann­ast við. Telur Ivu að með þessu hafi verið brotið á hennar rétti og mun hún því leita réttar síns.

Iva sendi frá sér eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu fyrir stundu:

„Með­fylgj­andi skjá­skot sýnir Facebook skila­boð sem settur ferða­mála­stjóri sendi mér á mánu­dag í síð­ast­lið­inni viku. Á þennan sam­skipta­máta er mér til­kynnt af for­stöðu­manni opin­berrar stofn­unar, að vegna skoð­ana minna hefur verið ákveðið að ég verði klippt út úr kynn­ing­ar­mynd­bandi sem ég kom fram í fyrir Ferða­mála­stofu og var frum­sýnt í haust. Einnig var mér greint frá því að mynd­bandið yrði end­ur­gert og annar blindur ein­stak­lingur feng­inn til verks­ins í minn stað. 

Umrætt mynd­band er liður í fræðslu­verk­efn­inu Gott aðgengi í ferða­þjón­ustu, sem Ferða­mála­stofa vann í sam­starfi við Sjálfs­björg lands­sam­band hreyfi­haml­aðra og Öryrkja­banda­lag Íslands. Í sím­tali mínu við Ferða­mála­stjóra kom fram að kvart­anir um þátt­töku mína hafi þegar borist eftir frum­sýn­ingu mynd­bands­ins síð­ast­liðið haust og að nýtt mynd­band sé komið í fram­leiðslu. Þó var ég ekki upp­lýst um málið fyrr og greini­legt að ég fái ekki tæki­færi til að and­mæla þeirri ákvörðun að end­ur­gera mynd­bandið vegna skoð­ana minna. Eftir sam­tal við ferða­mála­stjóra er ljóst að honum er hvorki kunn­ugt um hverjir gerðu athuga­semdir við hlut­verk mitt í mynd­band­inu, né hvaða skoð­ana minna eða ummæla þær athuga­semdir taka til efn­is­lega. Af Facebook skila­boð­unum frá ferða­mála­stjóra má hins vegar leiða að mér hafi verið gerðar upp skoð­anir sem ég gengst ekki við að hafa.

Burtséð frá því, þá eru sam­kvæmt stjórn­ar­skrá allir frjálsir skoð­anna sinna og sann­fær­ingar á Íslandi. Þar er jafn­framt að finna jafn­ræð­is­regl­una, meg­in­reglu stjórn­sýslu­rétt­ar­ins sem stjórn­völdum, þar á meðal Ferða­mála­stofu, ber skylda til að virða. Í henni felst að allir séu jafnir fyrir lögum og njóti mann­rétt­inda, án til­lits til til­tek­inna þátta, þar á meðal skoð­ana. Því ger­ast Ferða­mála­stofa, Sjálfs­björg og ÖBÍ aug­ljós­lega brot­leg við meg­in­stoðir rétt­ar­rík­is­ins með ákvörðun sinni um að skerða rétt minn til atvinnu­þátt­töku vegna póli­tískra skoð­ana, auk þess að valda mér fjár­hags­legu tjóni, mann­orðs­skaða og and­legum miska. Sér­stak­lega er ámæl­is­vert af Ferða­mála­stofu, sem lögum sam­kvæmt flokk­ast undir stjórn­vald, að taka slíka ákvörðun byggða á nafn­lausum athuga­semdum, án þess að hafa rætt við alla máls­að­ila eða kynnt sér for­sendur og sann­leiks­gildi athuga­semd­anna efn­is­lega. 

Einnig skýtur skökku við að sam­tök sem beita sér fyrir rétt­indum fatl­aðs fólks geti ekki virt mann­rétt­inda­á­kvæði stjórn­ar­skrár í eigin starfi. Hér hefur ÖBÍ sýnt í verki að sam­tökin starfi ekki í þágu alls fatl­aðs fólks þar sem þau eru reiðu­búin að mis­muna ein­stak­lingum á grund­velli opin­berra skoð­ana. Er gott aðgengi aðeins ætlað þeim sem upp­fylla skil­yrði ofan­greindra aðila um æski­legar skoð­anir? 

Ég tel á mér brotið og ætla að leita réttar míns. Að sama skapi varða mann­rétt­indi okkur öll og því á málið fullt erindi fyrir sjónir almenn­ings. Við sem sam­fé­lag þurfum að eiga sam­tal um þessa stefnu í átt til einnar leyfi­legrar skoð­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina