Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Koðnaði kokkállinn niður við skapahárin?: Nýjasti hlaðvarpsþáttur Jóns Sigurðar væntanlegur í kvöld

Koðnaði kokkállinn niður við skapahárin?: Nýjasti hlaðvarpsþáttur Jóns Sigurðar væntanlegur í kvöld

Í hugum margra er Vikt­or­íu­tím­inn tíma­bil hátt­semis og prúð­mennsku. Það þýðir þó ekki að aldrei hafi kyn­lífsskandalar og ást­ar­erjur skekið alþjóð einsog nú á tímum sam­fé­lags­miðla. Eitt magn­að­asta málið af þessum toga skók Bretland árið 1855.  Upphaf þess má rekja til þess þegar fyr­ir­sætan Effie Gray fór í ferða­lag til Skotlands með eig­in­manni sínum, hinum virta rit­höf­undi, heim­spek­ingi og list­gagn­rýn­anda John Ruskin. Með í för var félagi hans, mynd­lista­mað­ur­inn frægi, John Everett Millais sem nýtti þessa ferð meðal ann­ars til að mála mynd af nafna sínum við á eina á hálendi Skotlands. Svo óheppi­lega vildi til að Effie Gray varð ást­fangin af mál­ar­anum og ekki gat hann stað­ist þá strauma sem frá henni stóðu. Skömmu eftir að hjóna­kornin komu heim til Lundúna sagð­ist Effie þurfa að heim­sækja for­lendra sína og nýtti hún þá tæki­færið og skildi gift­inga­hring sinn eftir ásamt skila­boðum þess lút­andi að hún vildi skilnað, en ekki var hlaupið að slíku á þessum árum. Hún hafði hins­vegar góða ástæðu til því hún var enn hrein mey eftir sex ára hjóna­band og hafði yfir­valdið skiln­ing á kröfu hennar svo málið gekk í gegn. Einsog gefur að skilja olli þetta miklu umtali og margir spurðu hví eig­in­mað­ur­inn skildi ekki hafa notið þeirrar dýrðar sem bauðst honum heima við en Effie var af flestum talin hin þokka­fyllsta frú. Útskýr­ingar hans urðu heldur ekki til þess að draga úr get­gátum en hann sagði eitt­hvað á þá leið að þó konan væri vissu­lega snoppu­fríð þá voru þar hlutir í hennar fari sem fældu hann frá því að hafa við hana sam­farir. Mikið hefur verið rætt og skrifað um hvað það gæti verið, sem virk­aði svo letj­andi á hann, og hefur því til dæmis verið varpað fram, og þá vitnað í Effie sjálfa, um að hann hafi haft allt aðrar hug­myndir um lík­ama kvenna áður en hann komst loks í tæri við hann. Og eiga skapa­hárin að hafa valdið honum miklum von­brigðum og vissum við­bjóði. Kaus hann þá heldur lík­ama þá sem mynd­lista­sagan bauð uppá þar sem ekki vott­aði fyrir hárum við kyn­færin.

Hvað sem því líður þá bar mörgum saman um að Ruskin hafi komið illa fram við konu sína. Var það því mik­ill og kær­kom­inn við­snún­ingur þegar hún gift­ist mynd­lista­mann­inum Millais árið 1855. Þar stóðu skapa­hár­inn ekki í vegi fyrir sam­gangi og eign­uð­ust þau ein átta börn. 

Áður en þau rugl­uðu saman reitum höfðu þau reyndar unnið saman og í fyrstu mynd Millais, þar sem Effie Gray situr fyrir, kemur annar kyn­lífsskandall við sögu. Myndin ber heitið Lausn­ar­skipun 1746 (Order of Release 1746) en þar er eig­in­kona að rétta varð­manni bréf þar sem stað­fest er lausn eig­in­manns hennar úr fang­elsi en hann faðmar hana særður og illa far­inn. Látið er að því liggja að hún hafi þurft að borga frelsi eig­in­manns­ins með blíðu sinni. 

Í þætti sínum Rúntað á Rucio kemur þetta fólk mikið við sögu en þar segir Jón Sigurður frá öðru mál­verki Johns Everett Millais. Það heitir Ófelía og er við­fanges­efnið fengið úr leik­rit­inu Hamlet eftir sjálfan William Shakespe­are og sýnir sam­nefnda unn­ustu prins­ins drukkna í hyl nokkrum. Myndband sem Nick Cave gerði við lag sitt Where The Wild Roses Grow minnir um margt á þetta verk Millais en á bak­við það leyn­ist sagan af fyr­ir­sæt­unni Elísabet Siddal en þá sorg­ar­sögu segir Jón Sigurður í þætt­inum. Þátt­ur­inn birt­ist á vef Mannlífs síðar í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina