Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Marínó um svör Ásgeirs í morgun: „Fattararnir í mér virka stundum illa og núna fóru þeir í kleinu“

Marínó um svör Ásgeirs í morgun: „Fattararnir í mér virka stundum illa og núna fóru þeir í kleinu“

Marínó G. Njálsson gefur lítið fyrir svör Seðla­banka­stjóra í morgun og segir hann roðna undan spurn­ing­unum.

Starfs­menn Seðla­bank­ans sátu fyrir svörum í morgun á fundi um ákvörðun Pen­inga­stefnu­nefnda um að hækka stýri­vexti um hálft pró­sentu­stig. Marínó G. Njálsson, fyrr­ver­andi for­maður Hags­muna­sam­taka Heim­il­anna skrif­aði langa færslu á Facebook fyrir stundu. Þar gefur Marínó lítið fyrir svör Ásgeirs Jóns­sonar Seðla­banka­stjóra og Þórarins G. Pét­urs­sonar en seg­ist hálf vor­kenna þeim félögum „þegar þeir voru að umla sig í gegn um svörin sín.“

Færsluna má lesa í heilds inni hér fyrir neðan:

„Var að hlusta á upp­töku af fundi um ákvörðun Pen­inga­stefnu­nefndar. Erna Björk Sverr­is­dóttir, Arion banka, grill­aði seðla­banka­fólkið með spurn­ingum sínum og hef ég ALDREI séð eins bein­sk­eittum spurn­ingum beint að seðla­banka­stjóra og aðal­hag­fræð­ingi. Hef þó fylgst með þessum málum í ansi mörg ár. Þriðji full­trúi Seðla­bank­ans á fund­inum var Rannveig Sig­urð­ar­dóttir og lét hún þá félaga sína líta heldur illa út. Svör hennar skýr, beint að efn­inu og ekk­ert tafs.

Maður hálf vor­kenndi Þórarni G. Pét­urs­syn og Ásgeiri Jónssyni, þegar þeir voru að umla sig í gegn um svörin sín. Þórarinn svar­aði fyrst, sagði lítið og sendi heitu kart­öfl­una eins fljótt og hann gat til Ásgeirs. Spurning Ernu til Þórarins var þó ekki flókin: Hver væru áhrif verri upp­hafs­stöðu á ákvörðun nefnd­ar­innar? (Verulega stytt.)Svar Þórarins var því­lík steypa, að annað eins hefur bara ekki heyrst. Hann hélt því fram „að margar af þessum opin­beru hækk­unum væru að koma vegna launa hækk­an­anna“ (ekki alveg orð­rétt). Hvaða bull er þetta? Hækkanir á bif­reiða­gjöldum tengj­ast launa­breyt­ingum EKKERT! Hækkun á bens­ín­gjaldi teng­ist launa­hækk­unum EKKERT! Hækkun áfeng­is­gjalds teng­ist launa­hækk­unum EKKERT! Þessi þrjú atriði vega um 0,7% af 0,85% af hækkun vísi­tölu neyslu­verðs milli des­em­ber og jan­úar.Ásgeir roðn­aði, eins og ég hef ekki séð hann síðan Max Keiser spurði hann óþægi­legra spurn­inga fyrir hrun og svar­aði svo rogg­inn: „Þetta er svo sem ekk­ert flókið“ og kom svo með „af því bara“ svar. Þeim hluta spurn­ing­ar­innar, að hann hefði talið kjara­samn­ing­ana í byrjun des­em­ber vera mjög jákvæða, svar­aði hann: „Það er rétt að kjara­samn­ing­arnir voru jákvæðir fyrir fjár­mála­stöð­ug­leika, en á þessum fundi erum við að tala um verð­stöð­ug­leika!“ Fatt­ar­arnir í mér virka stundum illa og núna fóru þeir í kleinu. Er ekki verð­stöð­ug­leiki ein af grund­vall­ar­for­sendum fjár­mála­stöð­ug­leika og öfugt? Fæst annað án hins?Ásgeir opin­ber­aði þarna hvað stjórn­hættir og -skipan Seðla­bank­ans er vit­laust og óskil­virk. Innan bank­ans eru minnst tvær nefndir sem taka áhrifa­ríkar ákvarð­anir fyrir hag­kerfið, þ.e. Pen­inga­stefnu­nefnd og Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd. Þær virð­ast ekki starfa saman, þó seta Ásgeirs í þeim báðum eigi að tryggja eitt­hvað sam­ræmi. Pen­inga­stefnu­nefnd ákvarðar vexti, en hefur ekki áhrif á útlána­getu bank­anna. Það er nú samt þannig, að útgáfa bank­anna á nýjum pen­ingum sam­hliða útlánum er ein helsta ástæða auk­innar verð­bólgu. Með því að setja sífellt fleiri pen­inga í umferð hækkar t.d. hús­næð­is­verð. Fáar aðgerðir hafa lík­leg­ast haft meiri áhrif á að hús­næð­is­verð hætti að hækka eins hratt og það gerði og þegar Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd þrengdi lán­þega­skil­yrðin s.l. haust. Ég legg til að þessar nefndir vinni mikið saman og séu sam­stíga í sínum aðgerðum.Síðan spurði Erna spurn­ing­ar­innar, sem ég hef oft spurt, þ.e. um það hve mikið af vaxta­hækk­unum bank­ans væru þegar búnar að koma fram í áhrifum á verð­bólg­una. Það tæki, jú, 6-18 mán­uði fyrir breyt­ingar á vöxtum bank­ans að koma fram.Rannveig svar­aði þessum hluta og loks­ins kom skýrt svar, en það vant­aði bara mestan hluta þess.Jón Bjarki spurði um flótta fólks yfir í verð­tryggð lán og áhrif á Pen­inga­stefn­una. Ásgeir kom þá með skýr­ingu sem hann ætti að skamm­ast sín fyrir. Hann er hag­fræð­ingur, seðla­banka­stjóri og situr í Pen­inga­stefnu­nefnd og heldur því blákalt fram að verð­mæti pen­inga ráð­ist af því hvort áfeng­is­gjald sé krón­unni meira eða minna. Það er eng­inn að græða á því að borga 7,5% nafn­vexti í 9,9% verð­bólgu í stað­inn fyrir að borga 3,5% nafn­vexti í 2% verð­bólgu. Ég hefði haldið að tap lán­þeg­ans nemi 4% af láns­fjár­hæð­inni. Svo er hitt, sem hann greini­lega skilur ekki. Í öllum löndum heims (nema á Íslandi) er litið svo á, að verð­bólga sé tæki­færi til að leið­rétta skulda­stöðu almenn­ings. Þá er gert ráð fyrir, að í kjöl­far hækk­andi verð­bólgu komi launa­hækkun og eft­ir­stöðvar lána verði því lægra hlut­fall launa en áður.Erna kom aftur inn með áhuga­verða spurn­ing: Hvað þarf að ger­ast til að vextir hækki ekki í mars?Rannveig svar­aði og byrj­aði á ein­stak­lega áhuga­verðum punkti: Hækkun vaxt­anna núna er EKKI vegna verð­bólgu­mæl­ing­ar­innar í jan­úar! Þá vitum við það. Ætli spek­ingar grein­inga­deilda bank­anna hafi vitað þetta? Síðan sagði hún, að til þess að vextir hækki ekki í mars, þá mega kostn­að­ar­hækk­anir kjara­samn­inga ekki fara út í verð­lagið! Sem sagt verð­bólgu­mæl­ingin í jan­úar hefur ekki áhrif núna, en verð­bólgu­mæl­ing í febr­úar mun hafa áhrif á ákvörðun nefnd­ar­innar í mars! Það vita allir að breyt­ing á vísi­tölu neyslu­verðs milli jan­úar og febr­úar er nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust meiri en milli des­em­ber og jan­úar. Búið ykkur því undir að vextir hækki aftur um 0,25-0,5% í mars.Merki­legt er samt það sem vant­aði í þessa umræðu og svör seðla­banka­fólks, en það er að ein helsta ógn við kaup­mátt og verð­stöð­ug­leika er kröfur um hagnað og arð­greiðslur fyr­ir­tækja. Að hagn­aður hækki ár eftir ár og mönnum finnst ekk­ert til­töku­mál að flagga 15-20% hagn­aði, er meiri ógn við verð­stöð­ug­leika, en að launa­kostn­aður hækki úr 25% í 28% eða er það 50% í 55%. Báðar þessar hækk­anir eru brot af hagn­að­inum og hafa því minni áhrif til breyt­inga á verð­lagi, en arð­sem­is­kröfur eig­enda fyr­ir­tækj­anna!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við