Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir Ísland spilltast á Norðurlöndum: „Sjávarútvegurinn á Íslandi er rótin að þessari spillingu“

Segir Ísland spilltast á Norðurlöndum: „Sjávarútvegurinn á Íslandi er rótin að þessari spillingu“
Samherji. Þor­steinn Már. Myndin er sam­sett.

Í nýrri grein í tíma­riti norska blaðs­ins Aften­posten sem kom út fyrir síð­ustu helgi segir að „á meðan önnur Norð­ur­lönd geta stært sig af því að vera efst á lista yfir minnst spilltu lönd í heimi, hefur Ísland sokkið niður list­ann eftir mörg ár af ótrú­legum hneyksl­is­málum. Einkum er það sjáv­ar­út­veg­ur­inn á Íslandi sem er rótin að þess­ari spill­ingu,“ segir í umfjöllun Heim­ild­ar­innar um áður­nefnda grein; þar er fjallað um íslenska kvóta­kerfið og Sam­herj­a­málið í Namibíu sem hefur verið til rann­sóknar á Íslandi og í Namibíu frá því síðla árs 2019.

Kemur fram að með vís­unum í lista yfir spill­ingu á Norð­ur­lönd­unum er vísað til þess að Ísland hefur fallið neðar á lista Transparency International síð­ustu árin.

Í grein­inni er að finna við­tal við upp­ljóstr­ar­ann í Namib­íu­mál­inu, Jóhannes Stef­áns­son, og þar eru einnig við­töl við Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur, for­mann Blaða­manna­fé­lags Íslands, Atla Þór Fanndal, sem fer fyrir Íslands­deild Transparency International sem og Þórð Snæ Júl­í­us­son, sem er annar rit­stjóra Heim­ild­ar­innar.

Þórður Snær Júl­í­us­son annar rit­stjóri Heim­ild­ar­innar.

Í grein­inni fjallar blaða­mað­ur­inn danski, Lasse Skytt, um spill­ing­una á Íslandi og í íslenskum sjáv­ar­út­vegi; hvernig spill­ingin hafi að vissu leyti verið flutt út til Namibíu í máli Samherja.

Fjallar Skytt um það hvernig nepót­ismi þrí­fist vel á Íslandi og sé mikið vanda­mál í svo litlu sam­fé­lagi og því íslenska:

Lasse Skytt blaða­maður.

„Ein aug­ljós ástæða fyrir spill­ing­unni er nepót­ism­inn sem gengur kyn­slóð eftir kyn­slóð (að ganga erinda fjöl­skyldu og vina) sem blómstrar í litlum sam­fé­lögum eins og því íslenska. Allir þekkja alla – eða í flestum til­fellum þekkir maður ein­hvern sem þekkir við­kom­andi. Boð­leið­irnar eru þar af leið­andi miklu styttri en í stærri og flókn­ari sam­fé­lögum.“

Í grein­inni er sú kenn­ing reifuð að eitt stærsta vanda­málið á Íslandi sé sú spill­ing sem ein­kenni sjáv­ar­út­veg­inn, kvóta­kerfið, hér á landi.

Kristján Þór Júl­í­us­son.

Eitt af því sem Lasse Skylt gerir í grein­inni er að tengja umfjöllun um Kristján Þór Júl­í­us­son, fyrr­ver­andi þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, við Namib­íu­málið og greinir sá danski frá tengslum hans við Samherja og Þorstein Má Bald­vins­son:

„Þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, Kristján Þór Júl­í­us­son, sat í stjórn Samherja og er æsku­vinur for­stjóra Samherja, Þor­steins Más Bald­vins­sonar,“ segir í kafla þar sem fjallað er um hversu erfitt Namib­íu­málið hafi verið fyrir Kristján Þór.

Einnig er fjallað um það að Sam­herj­a­málið í Namibíu sé flokkspóli­tískt á Íslandi; nefnir Skytt Sjálf­stæð­is­flokk­inn sér­stak­lega í því sam­hengi:

„Einkum er það einn stjórn­mála­flokkur sem er með fiski­lykt á fingr­unum.“

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir.

Í grein­inni er að finna við­tal við Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur, for­mann Blaða­manna­fé­lags íslands, þar sem hún ræðir um rann­sókn lög­regl­unnar á nokkrum blaða­mönnum; lög­reglu­rann­sóknin er sett í sam­hengi við þá spill­ingu er talin er að þrí­fist á Íslandi – og er rauði þráð­ur­inn í grein­inni.

Komið er inn á það sér­stak­lega að það er lög­reglan á Norð­ur­landi eystra, með höf­uð­stöðvar í heimabæ Samherja, Akureyri, sem sér um rann­sókn­ina.

Sigríður Dögg segir í við­tal­inu að íslenska lög­reglan sé að reyna að þagga niður í blaða­mönnum; hafa áhrif á mögu­leika þeirra til að reyna að sinna sínu starfi af heil­indum:

„Þetta má túlka sem óeðli­leg afskipti lög­regl­unnar af starfi blaða­mann­anna, eitt­hvað sem þar að auki getur dregið úr blaða­mönn­unum að gera aðrar opin­ber­anir í milli­tíð­inni og virkar þar af leið­andi hamlandi á vinnu þeirra.“

Samhliða rann­sóknum íslensku lög­regl­unnar á blaða­mönnum hér á landi sé raunin sú að færri og færri vilja starfa sem blaða­menn á Íslandi; vísað er í tölur þess efnis, og þær eru slá­andi; árið 2012 voru 2.250 blaða­menn starf­andi á Íslandi; í fyrra voru þeir aðeins 800.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við