Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Segir upptöku evru vera kjarabót: „Varðmönnum krónunnar fækkar og vörnin er orðin hriplek“

Segir upptöku evru vera kjarabót: „Varðmönnum krónunnar fækkar og vörnin er orðin hriplek“

„Krónan er frá­bær að því leyti að hún gefur stjórn­mála­mönnum skjól fyrir því að þurfa að mæta afleið­ingum lélegrar efna­hags­stjórn­unar. Fyrir aðra er hún ekk­ert sér­stak­lega frá­bær,“ segir þing­maður Við­reisnar, Hanna Katrín Frið­riks­son, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu:

„Þetta veit almenn­ingur sem enn einu sinni þarf að taka á sig skell­inn í formi okur­vaxta og hærra mat­ar­verðs. Þetta vita stærstu fyr­ir­tæki lands­ins sem þegar gera upp árs­reikn­inga sína í erlendum gjald­miðli. Þetta vita verka­lýðs­leið­togar, hag­fræð­ingar og fjár­festar sem einn af öðrum stíga fram með þau skila­boð að upp­taka evru væri mesta kjara­bót sem heim­il­unum stæði til boða.

Enginn lætur lengur blekkj­ast af gömlu tugg­unni um að krónan komi okkur til bjargar þegar illa gengur. Ekki einu sinni ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar. Skjólið er bara svo gott.“

Segir Hanna Katrín að þungi í kröfu um annan gjald­miðil auk­ist sífellt enda sé krónan bein­línis vond almenn­ingi:

„Stærsta breyt­ingin er kannski sú að í dag getum við auð­veld­lega séð hvað hlutir kosta í lönd­unum í kringum okkur. Við förum inn á hvaða vef­verslun sem er og sjáum verð­lagið erlendis, líka í löndum sem eru háð inn­flutn­ingi um langar leiðir.

Annar fórn­ar­kostn­aður krón­unnar, him­in­hár vaxta­kostn­aður, bítur hraust­lega og líka þar sjáum við auð­veld­lega sam­an­burð­inn við önnur lönd. Enn finn­ast þó þau sem neita að við­ur­kenna opin­ber­lega að til­raunin með krón­una er full­reynd.“

Hún færir í tal að í kosn­inga­bar­átt­unni árið 2021 hafi fram­bjóð­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins haldið því fram að sögu­legt lág­vaxta­skeið væri hafið hér á landi, en að það hafi aðeins enst í fimm mán­uði:

„Það kom ekki til vegna snjallrar efna­hags­stjórnar rík­is­stjórn­ar­innar heldur heims­far­ald­urs­ins. Síðan þá hafa vextir verið hækk­aðir 11 sinnum og eru nú þeir hæstu í 13 ár.

Viðreisn mun aldrei hætta að berj­ast fyrir kjara­bótum fyrir heim­ilin í land­inu.“

Bætir við:

„Á kraft­miklu lands­þingi Við­reisnar um liðna helgi var ályktað hve mik­il­vægt það væri að skipta um gjald­miðil, að bjóða íslenskum almenn­ingi sann­gjarna vexti, eðli­legt mat­vöru­verð og fyr­ir­sjá­an­leika lengra en fram að næstu vaxta­á­kvörðun.

Það er ekk­ert lög­mál að íslenskur almenn­ingur þurfi að borga þre­falda vexti á við nágranna sína. Samt er Viðreisn eina stjórn­mála­aflið sem þorir að við­ur­kenna fullum fetum þá stað­reynd að tími krón­unnar er lið­inn.

Utan stjórn­mál­anna stökkva sífellt fleiri á þann vagn með okkur, nú síð­ast verka­lýðs­for­ystan. Varð­mönnum krón­unnar fækkar að sama skapi og vörnin er orðin hrip­lek. Það er kannski þess vegna sem Morg­un­blaðið hefur hert sókn­ina gegn mál­flutn­ingi Við­reisnar, eða öllu heldur gegn Viðreisn – því leið­ara­höf­undur blaðs­ins virð­ist illa treysta sér í að ræða mál­efnið sjálft ef marka má leið­ara gær­dags­ins. Af hverju þessi varð­staða um krón­una? Af hverju ekki varð­staða um heim­ili lands­ins? Kannski verður því svarað í næsta leið­ara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina