Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Ég hefi aldrei fengið eina einustu krónu í arð frá Icelandair“

„Ég hefi aldrei fengið eina einustu krónu í arð frá Icelandair“
Anna Krist­jáns­dóttir.

Anna Krist­jáns­dóttir skemmtir les­endum dag­lega með dag­bók­inni sinni frá Tenerife, en í dag greinir hún frá því að hún hafi átt hlut í Icelandair frá árinu 2018. Aldrei hafi hún fengið arð frá félag­inu. Hún segir að því hafi verið haldið fram í gær að félagið hafi greitt út millj­arð í arð­greiðslur á sama tíma og félagið fékk tals­verða styrki vegna COVID. Anna segir að athuga­semdir hennar þar sem hún benti á þetta hafi verið eytt.

Hér fyrir neðan má lesa pistil hennar í heild sinni.

Það er fátt tíð­inda á laug­ar­dags­morgni. Kannski eðli­legt því ég afrek­aði það í gær að gera ekki neitt. Ég hafði ætlað mér að fara í göngu, en nennti því ekki og því fær spikið að vera óátalið á mér næstu dag­ana. Reyndar fór tals­verður tími í að bíða, ann­ars­vegar eftir svari frá Greiðslu­stofu líf­eyr­is­sjóða, hins­vegar frá Pensions­myndig­heten í Öster­sund, en hvor­ugt var búið að svara mér í gær­kvöldi. Ég mun senda ítrekun á báða staði á mánu­dags­morg­un­inn í þeirri von að þeir haldi ekki að um drauga­gang sé að ræða. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Brú heldur mér hins­vegar upp­lýstri og er það vel. Þeirra er heið­ur­inn.

Það er svo ekki til að bæta ástandið að tveir aðilar sem ég þekki og eru staddir hér á eyj­unni vildu hitta mig en ég frestaði öllum hitt­ingi þar til um helg­ina. Verður fínt að hitta önnur hjónin í dag, en hin eftir pönnu­kökur og vatns­deigs­bollu sunnu­dags­ins, aðfanga­dags bollu­dags.

Það er eitt­hvað að byrja að hlýna hér og við­búið að hit­inn mjak­ist upp­fyrir 20 gráð­urnar næstu dag­ana og veitir ekki af eftir kulda­tíma­bilið að und­an­förnu. Þessi kuldi dregur úr mér allan vilja til drykkju­skapar og er þá fokið í flest skjól.

Ég er enn að hugsa um hús í Playa Flamenca. Þetta endar með því að ég kaupi og flyt þangað eða ekki. Samt góð fjár­fest­ing.

—–

Í gær birti ein­hver áróð­urs­plagg sem sýnir Cóviðstyrki til hinna ýmsu fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu ann­ars vegar, en arð­greiðslur hins­vegar og þar sem Icelandair átti að hafa fengið millj­arða en einnig greitt millj­arða í arð. Ég svar­aði þessu og benti á að ég hefi átt hluti í Icelandair frá 2018 og aldrei fengið eina ein­ustu krónu í arð. Umrædd athuga­semd var falin eða eydd af stjórn­anda síð­unnar, enda virð­ist hún ekki hafa fallið að skoð­unum við­kom­andi aðila. Ég birti hana því hér núna. Hvað önnur fyr­ir­tæki snertir sem nefnd eru á plagg­inu, þá get ég engu svarað um þau, en ítreka að ég hefi aldrei fengið eina ein­ustu krónu í arð frá Icelandair.

Þar sem búið er að afskrifa mig af íslenskum vinnu­mark­aði vegna ald­urs er þetta í reynd ein­asti mögu­leiki minn að taka þátt í íslensku atvinnu­lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina