Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannskæðasta slys íslenskrar flugsögu: „Ljósin hurfu andartak, en svo fór um mig angistarhrollur“

Mannskæðasta slys íslenskrar flugsögu: „Ljósin hurfu andartak, en svo fór um mig angistarhrollur“

Leifur Eiríks­son, DC-8-þota Flug­leiða, fórst í aðflugi við Katuna­yake-flug­völl í Kólombó, á Srí Lanka árið 1978.

Hér er um er að ræða mann­skæð­asta flug­slys gjör­vallrar, íslenskrar flug­sögu; 183 fór­ust, þar af átta Íslend­ingar er voru starfs­menn Flug­leiða.

Vélin var á leið frá Sádi-Arabíu með píla­gríma frá Indónesíu á leið til síns heima. Milli­lenda átti í Kólombó þar sem auka­á­höfn og starfs­menn áttu að verða eftir.

Í ömur­legu veðri og veru­lega slæmu skyggni brot­lenti vélin á kókos­hnetu­plantekru rétt fyrir mið­nætti; tveimur kíló­metrum frá enda flug­braut­ar­innar.

Sögðust nokkrir sjón­ar­vottar hafa heyrt öfl­uga spreng­ingu um leið og vélin rifn­aði í þrjá hluta er hún féll til jarðar.

Í bók­inni Útkall: Leifur Eiríks­son brot­lendir, eftir Óttar Sveins­son, segir frá því þegar Bjarni Ólafsson flug­virki stóð úti á flug­vell­inum:

„Ég sá þegar vélin var um það bil að koma niður til jarðar, var að fara að lenda. Ljósin á henni hurfu and­ar­tak, en svo fór um mig ang­ist­ar­hrollur: Allt í einu sá ég bjarma af miklum eld­blossa.“

Úr þessu hörmu­lega flug­slysi komust 79 manns lif­andi; þar af fimm Íslend­ingar. Þeir voru flug­freyj­urnar Jónína Sig­mars­dóttir, Kristín E. Krist­leifs­dóttir, Oddný Björg­ólfs­dóttir og Þuríður Vil­hjálms­dóttir, sem og Harald Snæhólm flug­stjóri.

Á flug­vell­inum beið áhöfn Dagfinns Stef­áns­sonar flug­stjóra eftir vél­inni; áhöfnin átti að taka við vél­inni og flytja píla­grím­ana áfram til Indónesíu.

Sat hóp­ur­inn í far­þega­sal flug­vall­ar­ins er maður kom til þeirra og flutti þeim hin hörmu­legu tíð­indi:

„Hann horfði á okkur öll og sagði: „Your plane was crashing!“ segir Lilja Sig­urð­ar­dóttir í áður­nefndri bók Óttars Sveins­sonar, en Lilja var með­limur áhafn­ar­innar:

„Við horfðum bara öll á hann steini lostin og göptum. „No, no, no,“ sögðum við. „Það getur ekki verið!““

Þeir fimm af Íslend­ing­unum sem lifðu flug­slysið af voru fluttir á sjúkra­hús í Kólombó og var eng­inn þeirra lífs­hættu­lega slas­aður.

Þann 19. nóv­em­ber lenti Sólfaxi, Boeing 727-þota Flug­leiða, á Íslandi með lík sjö þeirra átta Íslend­inga sem fór­ust. Fjöldi starfs­manna Flug­leiða stóð heið­ursvörð við mót­töku­at­höfn­ina og íslenska þjóðin var öll harmi slegin.

Var rann­sókn yfir­valda á Srí Lanka gagn­rýnd af Flug­mála­stjórn Íslands; nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var sú að gáleysi flug­manna hefði verið aðal­or­saka­valdur flug­slyss­ins.

Hópur íslenskra rann­sókn­ar­manna var sendur utan og komst hann að annarri nið­ur­stöðu; taldi ýmis­legt athuga­vert við flug­stjórnar- og aðflug­s­tæki flug­vall­ar­ins.

Voru full­trúar ann­arra flug­fé­laga á sama máli; var gefin var út rann­sókn­ar­skýrsla í sam­ráði við amer­íska sér­fræð­inga er stang­að­ist veru­lega á við nið­ur­stöður fyrri rann­sóknar.

Nið­ur­staða nýju rann­sókn­ar­innar var sú að aðal­or­sakir slyss­ins hefðu verið skortur á við­haldi aðflug­s­tækja og að áhöfn flug­vél­ar­innar hefði fengið rangar upp­lýs­ingar frá flug­turni.

Einnig var veðrið talið hafa átt mik­inn þátt varð­andi slysið; mikil rign­ing var er slysið varð; mik­ill vindur og nið­ur­streymi.

Mætti íslenski rann­sókn­ar­hóp­ur­inn mörgum erf­iðum hindr­unum við rann­sókn sína; taldi að um yfir­hylm­ingu yfir­valda á Srí Lanka væri að ræða.

Í áður­nefndri bók Óttars Sveins­sonar, Útkall: Leifur Eiríks­son brot­lendir, á Skúli Jón Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi deild­ar­stjóri flug­rekstrar- og rann­sókn­ar­deildar Flug­mála­stjórnar Íslands, loka­orðin í, en bókin er til­einkuð minn­ingu Íslend­ing­anna átta og þeirra 175 Indónesa er fór­ust í þessu hræði­lega flug­slysi:

„Flug­menn­irnir komu þarna grun­lausir og treystu aðflug­s­tækjum flug­vall­ar­ins eins og þeir voru þjálfaðir til að gera. Rangar leið­bein­ingar flug­um­ferð­ar­stjór­ans féllu saman við gölluð og hættu­leg aðflug­s­tækin. […] Það gerði þetta svo enn verra að þarna voru maðkar í mys­unni, svo ekki sé meira sagt, hjá yfir­völdum á Srí Lanka og nán­ast fyr­ir­fram ákveðið að þarna skyldi hylmt yfir – þarna átti ekki að leiða allan sann­leik­ann í ljós. En nú hefur það loks­ins verið gert.“

Heim­ildir:

https://www.visir.is/g/20131399667d (sótt 22. febr­úar 2023).

Útkall: Leifur Eiríks­son brot­lendir, Óttar Sveins­son, 2006, Útkall bóka­út­gáfa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við