Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Flugslysið við Arnarnes: „Flaug véĺin lágt yfir bátnum og hvarf svo í élin“

Flugslysið við Arnarnes: „Flaug véĺin lágt yfir bátnum og hvarf svo í élin“

Flugslys varð við Arnarnes árið 1987 er far­þega­vél frá Flug­fé­lag­inu Erni fórst og með henni flug­maður vél­ar­innar.

Það var þann 11. jan­úar árið 1987 að far­þega­flug­vél frá Flug­fé­lag­inu Erni, með ein­kenn­istaf­ina TF-ORN, lenti í sjónum út af Arn­ar­nesi, sem er í minni Skut­uls­fjarðar í Ísa­fjarð­ar­djúpi.

Flug­mað­ur­inn, sem var einn um borð, lést.

Var vélin af gerð­inni Piper Chieftain; var nýkomin úr skoðun á Akureyri.

Vélin sem fórst.

Atburða­rásin var þannig að klukkan 19:48 um kvöldið örlaga­ríka hafði flug­mað­ur­inn sam­band við Ísa­fjarð­ar­flug­völl; lét vita að hann væri yfir Reykja­nes­skóla; væri að hefja aðflug.

Aðeins átta mín­útum síðar hafði hann aftur sam­band við flug­völl­inn, flug­vall­ar­starfs­mað­ur­inn stað­festi sam­bandið, en heyrði ekk­ert frekar frá flug­vél­inni.

Á sama tíma sáu fiski­menn á rækju­bát flug­vél­ina út af Arn­ar­nesi; flaug veĺin lágt yfir bátnum og hvarf svo í élin.

Varð­skipið Óðinn var við Æðey á þessum tíma; heyrð­ist í neyð­arsendi rétt fyrir klukkan 20:00 – nam skipið send­ing­una í um það bil 20 mín­útur.

Í kjöl­farið hófst umfangs­mikil leit þar sem flug­vélar Varn­ar­liðs­ins og Flug­mála­stjórnar, ásamt þyrlu Land­helg­is­gæsl­unar héldu af stað vestur með hraði.

Það var svo rétt fyrir klukkan 22:00 um kvöldið að varð­skipið Óðinn nam á nýjan leik veikar send­ingar frá neyð­arsendi flug­vél­ar­innar.

Tæplega klukku­stund síðar fundu leit­ar­menn brak úr flug­vél­inni á floti utan við Arnarnes; sást olíu­brák í sjónum. Ekki löngu síðar, eða rétt fyrir mið­nætti, fannst svo hálfur vængur á floti; norð­austan við svo­nefnda tog­ara­bauju.

Er leit­ar­menn í bátnum hugð­ust ná vængnum og koma honum um borð í Óðin fundu þeir lík flug­manns­ins. Maðurinn hét Stefán Páll Stef­áns­son og var ein­ungis 38 ára gam­all; lét hann eftir sig eig­in­konu og þrjú börn.

Vélin er fórst var önnur flug­vélin sem Flug­fé­lagið Ernir missti á innan við tveimur árum; en vélin sem fórst við Arnarnes hafði verið keypt í stað þeirrar er fórst í Ljósu­fjöllum 5. apríl árið 1986.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina