Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Helga Vala segir hatursorðræðu stundaða á Alþingi: „Ég hef miklar áhyggjur“

Helga Vala segir hatursorðræðu stundaða á Alþingi: „Ég hef miklar áhyggjur“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra telur að sam­fé­lagið hér á landi verði að bregð­ast við í verki við hvers konar hat­urs­orð­ræðu sem og afleið­ingum hennar. Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Helga Vala Helga­dóttir, hefur áhyggjur af því að slík orð­ræða sé stunduð í þingsalnum.

Katrín mælti á Alþingi fyrir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um aðgerða­á­ætlun gegn hat­urs­orð­ræðu, en í til­lög­unni er lögð áhersla á að efla fræðslu og vit­und­ar­vakn­ingu varð­andi hat­urs­orð­ræðu í sam­fé­lag­inu og afleið­ingar af slíkri orð­ræðu.

Vísaði Katrín til þeirra for­dóma og hat­urs­orð­ræðu sem hinsegin ung­menni hafa þurft að líða.

„Þegar við sjáum slíkt bakslag verða í orð­ræð­unni þá tel ég það vera skyldu okkar að bregð­ast við í verki vegna þess að lög­gjöfin ein og sér er ekki nægj­an­leg. Það er menn­ingin sem þarf að breyt­ast með. Raunar höfum við oft um það dæmi að þegar fram­sækin lög­gjöf er sam­þykkt að það verður bakslag í kjöl­farið,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Í til­lögu hennar er gert ráð fyrir því að emb­ætt­is­mönnum og kjörnum full­trúum í bæjar- og sveit­ar­stjórnum verði boðið á nám­skeið er fjallar um afleið­ingar hat­urs­orð­ræðu.

Áður­nefnd Helga Vala spurði Katrínu hvers vegna það væri ekki gert ráð fyrir þing­mönnum í þessu sam­hengi.

„Ég verð að segja að ég hef miklar áhyggjur af því hvernig við leyfum okkur að tala hérna inni. Hvernig við leyfum okkur að kynda undir ýmiss konar skautun og hat­urs­orð­ræðu bein­línis. Ekki kynda undir heldur bein­línis ástunda hat­urs­orð­ræðu hér í þing­sal. Það leyfa ákveðnir þing­menn sér það að mínu mati,“ sagði Helga.

For­sæt­is­ráð­herra sagð­ist líta svo á maĺið að það væri Alþingis að ákveða hvort þing­mönnum yrði einnig boðið upp á slíkt nám­skeið er málið fer til umfjöll­unar í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd.

„Ég myndi fagna því ef þing­nefndin tæki þá afstöðu að það væri rétt að slíku nám­skeiði yrði sér­stak­lega beint líka að kjörnum full­trúum á þingi. Ég held að það þurfi að vera ákvörðun þings­ins sjálfs en ekki fram­kvæmd­ar­valds­ins að koma með þau til­mæli,“ sagði Katrín að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina