Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Brunnu illa í sprengingu á Grenivík: „Þau voru viss um að þau myndu missa mig“

Brunnu illa í sprengingu á Grenivík: „Þau voru viss um að þau myndu missa mig“
Kinga Kleinschmidt Mynd: Rúv

Kinga Kleinschmidt og Víkingur Leó Sig­ur­björns­son hlutu alvar­legan bruna þegar spreng­ing varð í verk­smiðju Phararctica á Grenivík á síð­asta ári. Þau sögðu sögu sína í Kast­ljósi kvölds­ins á Rúv.

Fram kom í Kast­ljós­inu að Kinga Kleinschmidt hafi hlotið alvar­legan bruna á nær öllum lík­am­anum í spreng­ingu sem varð í verk­smiðju Pharmarctica á Grenivík í fyrra en norskir læknar sem með­höndl­uðu hana segja aldrei hafa áður bjargað lífi mann­eskju með svo alvar­leg bruna­sár. Var henni haldið sof­andi í fjöldi mán­aða en hún hefur nú náð ótrú­legum bata. Segjast þau Víkingur Leó Sig­ur­björns­son, hvorug hafa fundið sárs­auka við brun­ann en hann var um þús­und gráða heitur. Telur vinnu­eft­ir­litið að sá bún­aður sem not­aður var í verk­smiðj­unni hafi verið óhent­ugur og valdið neysta sem svo olli spreng­ing­unni.

Í Kast­ljós­inu sagði Kinga að fyrir slysið hafi í fyrsta sinn lífið leikið við hana.

„Ég var svo glöð yfir því að allt gengi svona vel. Svo varð slysið,“ sagði Kinga.

Slysið

Þann 23. mars í fyrra var dag­ur­inn sem breytti lífi þeirra Víkings og Kingu. Dagurinn byrj­aði eins og hver annar dagur í versksmiðju Pharmartica á Grenivík en á einu augna­bliki breytt­ist allt er spreng­ing varð skyndi­lega í verk­smiðj­unni. Þau tvö urðu alelda en Kinga brann heldur verr en Víkingur.

„Við vorum að vinna með hreinsað bensín, 85 pró­sent alka­hól þannig að auð­vitað, hættu­legt efni en maður var ekk­ert að pæla í því, maður var bara að vinna,“ sagði Víkingur í Kast­ljós­inu. Kinga sagð­ist hafa verið að hella vökva á flöskur eins og hún gerði á hverjum degi.

„Ég veit eig­in­lega ekki hvað gerð­ist. Ég ætl­aði bara að athuga hversu mikið af vökv­anum var eftir. Og þá sprakk þetta.“

Í þætt­inum lýsti Víkingur hvernig allt í einu hafi orðið eldspreng­ing fyrir framan hann en hann veit enn ekki nákvæm­lega hvað það var sem gerð­ist.

„Það er ennþá spurn­ing nefni­lega, þetta er svo skýtið. Eldfimt efni, en hvað það var sem byrj­aði er ennþá algjört spurn­inga­merki – hvort það var eitt­hvað spark eða hvað.“

Allt gerð­ist afar hratt strax eftir spren­ing­una en þau Víkingur og Kinga þeyst­ust út úr verk­smiðj­unni og hentu sér í snjó­skafl á meðan sam­starfs­fé­lagar þeirra gerðu sitt besta til að slökkva eld­inn sem log­aði á þeim.

Lýsti Víkingur því í þætt­inum hvernig hann hafi séð yfir­mann sinn halda á slökkvi­tæki á meðan annar yfir­maður sló í bak hans til að reyna að slökkva eld­inn. Hann hafi þá hlupið út og í snjó­skafl. Sam­starfs­menn hans hafi svo kastað snjó yfir hann en á þessu augna­bliki hafi hann ekki áttað sig á hver skað­inn væri. Sá hann Kingu hlaupa út á eftir honum ekki löngu seinna.

„Maður vissi ekk­ert hvar maður væri sjálfur staddur en ég var viss um að hún væri verri. Bara út frá förum sá maður að maður var búinn að brenna hendur og læri, en hjá henni var þetta allt farið.“

Sagðist Kinga muna eftir því er hún dýfði sér á kafi í snjó­inn en allir í kring hafi verið í áfalli.

„Og ég man að ég sagði þeim að hringja ekki í mömmu mína. Því hún myndi verða hrædd um mig.“

Fann engan sársauka

Er Kinga var spurð í Kast­ljós­inu hvað hún hafi hugsað þegar hún átt­aði sig á því að það væri kviknað í henni sagð­ist hún hafa verið dauð­hrædd, hún hafi ekki fattað hvað væri að ger­ast. Sagðist hún þó ekki hafa fundið fyrir neinum sárs­auka.

„Ég vissi ekki einu sinni að fötin mín væru horfin. Fötin höfðu brunnið. Ég vissi það ekki.“

Þrátt fyrir að þau hafi staðið hlið við hlið í rým­inu er spreng­ingin varð, brann Kinga verr en Víkingur.

„Maður var alveg upp við allt eld­fima dótið. Ég veit ekki hvort ég hafi snúið mér við eða hvort ég var að líta á eitt­hvað á bak við mig en næstum því allur brun­inn var á bak­inu mínu. Mjög hepp­inn með það. Það voru hendur og svo allt bakið. Andlitið bara pínu­lítið, þannig að ég var mjög hepp­inn þó ég væri mjög nálægt.“

Fjölskyldan kvaddi

Fram kom í við­tal­inu að Kinga hafi ekki munað eftir fyrstu klukku­stund­unum sem hún dvaldi á sjúkra­hús­inu á Akureyri eftir slysið. Þegar fjöl­skylda hennar kom á spít­al­ann um nótt­ina sögðu læknar þeim að hún myndi lík­leg­ast ekki lifa af og að móðir hennar skyldi boða fleiri fjöl­skyldu­með­limi á sjúkra­húsið, svo hægt væri að kveðja hana.

„Þetta var hræði­leg til­finn­ing. Þau voru viss um að þau myndu missa mig.“

Hægt er að lesa meira um málið á vef Rúv.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina