Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jón Óðinn skrifar um vin sinn Arnar sem enn er ófundinn: „Ég sá ekki þau skilaboð. Svo hvarf hann“

Jón Óðinn skrifar um vin sinn Arnar sem enn er ófundinn: „Ég sá ekki þau skilaboð. Svo hvarf hann“

Æsku­vinur Stefáns Arnars Gunnars­sonar, er hvarf í byrjun mán­aðar, Jón Óðinn Wa­age, leið­bein­andi barna með hegð­un­ar­vanda­mál og fyrr­ver­andi júd­ó­þjálf­ari, skrifar fal­legan og áhrifa­mik­inn pist­ill um vin sinn á Akur­eyri.net.

Enn eru fáar vís­bend­ingar sem hafa borist lög­reglu vegna máls­ins; á tíma­bili tóku yfir 100 björg­unar­sveitar­menn þátt í leit­inni.

Jón Óðinn segir í pistli sínum að leiðir hans og Stefáns hafi fyrst legið saman er hann var 10 ára gam­all, en Jón Óðinn kallar Stefán Arnar alltaf Arnar.

Stefán Arnar er enn ófund­inn.

Elsku vinur minn, Arnar

„Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar hann var 10 ára, hann sat þá til borðs með mér og júd­ókrökk­unum þegar verið var að afhenda árlegar við­ur­kenn­ingar fyrir Íslands­meist­aratitla. Frændi hans hafði orðið Íslands­meist­ari en ekki kom­ist svo ég bað hann um að taka við verð­launum fyrir hönd frænda síns. Það gerði hann og end­aði á mynd í bæj­ar­blað­inu sem einn af þeim sem höfðu orðið Íslands­meist­arar í júdó. Hann fékk að heyra það reglu­lega frá mér næstu rúm­lega þrjá­tíu árin að þetta hefði verið hápunkt­ur­inn á ferli hans.“

Bætir við:

„Árin liðu og hann full­orðn­að­ist. Leiðir okkar lágu næst saman í rækt­inni þegar hann varð einn af fasta­gestum í spinn­ing tímum hjá mér. Af og til laum­aði ég með þung­arokki af klass­ísku gerð­inni honum til mik­illar gleði. Við spjöll­uðum oft í rækt­inni og með tím­anum urðum við góðir vinir. Hann var eld­klár, sjálf­stæður og óhræddur við að gagn­rýna það sem honum fannst miður. Þegar ég flutti út til Sví­þjóðar fyrir átta árum síðan var ég ekki í góðu jafn­vægi. Alvar­legt þung­lyndi þjáði mig með öllum þeim myrku hugs­unum sem því fylgir. Ég ræddi það ekki við nokkurn mann, en á ein­hvern und­ar­legan hátt skynj­aði hann það.“

Jón Óðinn segir að „það fór svo að við spjöll­uðum oft saman þó svo að við værum alltaf í sitt­hvoru land­inu, ég í Svíþjóð en hann ýmist á Íslandi, í Þýska­landi eða í Færeyjum. Það voru góð sam­töl. Hægt og rólega fór hann að opna á líðan sína, honum leið ekki vel og hafði senni­lega aldrei gert það. En hann hafði byggt í kringum sig múr sem hann hleypti engum inn fyrir, ég benti honum oft á þetta og hann sam­sinnti því en sagð­ist ekki þora eða vita hvernig hann ætti að brjóta þennan múr niður. Hann hafði lagt allt sem hann hafði að gefa í að þjálfa aðra og hjálpa þeim, hann skildi ekk­ert eftir fyrir sig sjálfan.“

Hann nefnir að „við áttum það sam­eig­in­legt að vinna með þeim sem við þjálf­uðum skipti okkur öllu. Þegar maður er þannig brennur maður svo mikið fyrir starfið að sam­skipti við annað fólk verða oft sér­stök vegna þess að það fólk sér ansi oft ekki hlut­ina í sama ljósi. Þá þykir maður erf­iður og er það, en þeir sem eru á hlið­ar­lín­unni geta aldrei séð sömu heild­ar­mynd­ina og sá sem þjálfar. Það skilur fólkið á hlið­ar­lín­unni sjaldn­ast og þá verða árekstrar. Vinur minn var eins og ég, hafði ekk­ert umburð­ar­lyndi gagn­vart þessu fólki. En íþróttapóli­tík á Íslandi er grimmi­leg og fólk hikar ekki við að reka hníf­inn í bakið á jafn­vel sam­herjum. Bakið á vini mínum var sund­ur­stungið.

Fyrir fjórum árum var ég langt niðri en eins og alltaf sagði ég engum frá því. Vinur minn skynj­aði það og sendi mér mynd­band af við­tali við mann sem lifði af sjálfs­morð­stil­raun. Maðurinn hafði stokkið fram af hárri brú. Hann sagði að um leið og hann hefði sleppt tak­inu hefði hann séð eftir stökk­inu. Vinur minn sagði að það væru til fjöld­inn allur af svona frá­sögnum og þetta væri aldrei svarið. Svona var þessi vinur minn, hann skynj­aði van­líðan mína og kom þá hreint og beint fram, ekk­ert farið í kringum hlut­ina. Hann gerði mér fylli­lega ljóst að væri ég í svona hug­leið­ingum þá væri það rangt af mér. Fyrir nokkrum vikum hafði hann sam­band við mig og sagð­ist vera mjög langt niðri eftir enn eina hnífstung­una í bakið. Við spjöll­uðum lengi.“

Jón Óðinn segir að „ég hafði oft hvatt hann til að fara til sál­fræð­ings til að reyna að brjóta niður múr­inn og hann hafði reynt það, en núna sagði ég honum að hann yrði að gera það. Nokkrum dögum seinna heyrði ég í honum og þá hafði hann spjallað tvisvar við sál­fræð­ing og sagði það hafa gengið vel. Daginn eftir sendi hann mér skila­boð og spurði hvort hann gæti hringt í mig. Ég sá ekki þau skila­boð. Svo hvarf hann.

Elsku vinur minn Arnar Gunn­ars­son, ég sakna þín ákaf­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við