Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Edda Falak viðurkennir fyrir ritstjórn að hafa sagt ósatt – „Hún biðst velvirðingar á missögninni“

Edda Falak viðurkennir fyrir ritstjórn að hafa sagt ósatt – „Hún biðst velvirðingar á missögninni“

Edda Falak blaða­maður Heim­ild­ar­innar bað rit­stjórn mið­ils­ins vel­virð­ingar á að hafa sagt ósatt í við­tölum fyrir tveimur árum, varð­andi stöðu hennar gagn­vart fjár­mála­fyr­ir­tækjum er hún bjó í Danmörku. Rit­stjórn Heim­ild­ar­innar stendur þétt við bak Eddu. Frosti Logason fjöl­miðla­maður upp­lýsti á dög­unum að Edda hefði ítrekað sagt ósatt um störf sín í Danmörku þar sem hún hefur lýst því að áreiti hafi átt sér stað.

Í yfir­lýs­ingu frá Heim­ild­inni vegna umfjöll­unar um opið bréf Frosta Loga­sonar til mið­ils­ins er það tekið fram að bak­grunnur Eddu Falak í fjár­málum, hvort sem átt er við nám, náms­gráða eða mögu­leg störf, hafi engin áhrif haft á hlut­verk hennar hjá miðl­inum né ákvarð­anir því tengdu, af hálfu rit­stjórnar Heim­ild­ar­innar. Segir þar einnig að Edda hafi, frá því að hún hóf störf á rit­stjórn mið­ils­ins, fylgt rit­stjórn­ar­stefnu og starfs­reglum Heim­ild­ar­innar.

Í yfir­lýs­ing­unni er komið sér­stak­lega inn á umfjöllun og opið bréf Frosta Loga­sonar og bent á að lög­fræð­ingur hans hafi „und­an­farið verið í sam­skiptum við Heim­ild­ina og lagt fram kröfur í tengslum við frá­sögn fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu hans af skrif­legum hót­unum hans í hennar garð, en frá­sögn hennar, studd gögnum, kom fram í við­tali við Eddu Falak í fyrra.“

Þá er aukreit­ist komið inn á „ítrek­aðar til­raunir til þögg­unar, þar sem hún hefur meðal ann­ars verið dregin fyrir dóm­stóla vegna starfa sinna,“ sem Edda hefur mátt þola og hefur lagst þungt á hana.

Lesa má yfir­lýs­ingu Heim­ild­ar­innar hér fyrir neðan. 

Yfirlýsing vegna umfjöllunar um opið bréf Frosta Logasonar

Vegna starfa og dag­skrár­gerðar Eddu Falak fyrir Heim­ild­ina er rétt að taka fram að bak­grunnur í fjár­málum, hvorki nám, náms­gráða né mögu­leg störf, hafði ekki nokkur áhrif á hlut­verk hennar eða ákvarð­anir því tengdar af hálfu rit­stjórnar Heim­ild­ar­innar. Frá því að hún hóf störf á rit­stjórn Heim­ild­ar­innar hefur verið fylgt rit­stjórn­ar­stefnu og starfs­reglum Heim­ild­ar­innar. Rit­stjórn Heim­ild­ar­innar tryggir og ber ábyrgð á að starfs­fólk rit­stjórnar fylgi reglum um vinnu­brögð blaða­mennsku við störf sín. Hvergi hefur borið skugga þar á. 

Edda hefur miðlað því til rit­stjórnar að hún hafi í við­tölum fyrir tveimur árum ekki lýst með réttum hætti stöðu sinni gagn­vart til­teknum fyr­ir­tækjum á sviði fjár­mála þegar hún bjó í Danmörku og stund­aði nám við Copenhagen Business School árin áður. Hún biðst vel­virð­ingar á mis­sögn­inni. 

Ráðandi þáttur í ákvörðun for­svars­fólks Heim­ild­ar­innar um sam­starf í síð­asta mán­uði var hins vegar auð­sýndur fer­ill Eddu sem við­kemur því að veita þolendum rödd og rými til að deila reynslu sinni, í málum sem hafa sam­fé­lags­legt mik­il­vægi og sýna gjarnan fram á bresti í kerfum sem verja ættu við­kom­andi. Í störfum með Heim­ild­inni er unnið eftir verk­lagi sem felur meðal ann­ars í sér að afla gagna og við­bragða, í því skyni að geta miðlað víð­tækum áhrifum ofbeldis á fólk sem á sér gjarnan engan málsvara. 

Vegna umfjall­ana hlað­varp­stjórn­and­ans Frosta Loga­sonar um Eddu og opins bréfs hans til Heim­ild­ar­innar, sem hefur verið til umfjöll­unar í frétta­miðlum, er rétt að taka fram að lög­fræð­ingur á vegum Frosta hefur und­an­farið verið í sam­skiptum við Heim­ild­ina og lagt fram kröfur í tengslum við frá­sögn fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu hans af skrif­legum hót­unum hans í hennar garð, en frá­sögn hennar, studd gögnum, kom fram í við­tali við Eddu Falak í fyrra. 

Í svari við umfjöll­un­unum um marg­vís­legar yfir­lýs­ingar Frosta um Eddu skal tekið fram að á und­an­förnum mán­uðum hefur hún mátt þola ítrek­aðar til­raunir til þögg­unar, þar sem hún hefur meðal ann­ars verið dregin fyrir dóm­stóla vegna starfa sinna. Allt hefur þetta lagst þungt á hana. 

Annar þáttur Eddu hjá Heim­ild­inni, sem er að fullu leyti frá­geng­inn, er vænt­an­legur í kom­andi viku. Fyrir hönd Heim­ild­ar­innar, 

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir og Þórður Snær Júl­í­us­son rit­stjórar, Jón Trausti Reyn­is­son fram­kvæmda­stjóri og Edda Falak blaða­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við