Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Henson og Hemmi Gunn: „Þegar hann sagðist vera að fara til útlanda fékk ég alltaf sting í magann”

Henson og Hemmi Gunn: „Þegar hann sagðist vera að fara til útlanda fékk ég alltaf sting í magann”

Halldór Ein­ars­son, eig­andi Henson, man vel eftir sím­tal­inu þegar honum var til­kynnt að Hemmi Gunn vinur hans væri lát­inn.

Halldór, sem er oft­ast kall­aður Henson, er nýjasti gest­ur­inn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar.

„Við hitt­umst í nán­ast hverju ein­asta hádegi í áraraðir. Hann var mjög sér­kenni­lega sam­settur. Hæfi­leik­arnir voru í bunkum á svo mörgum sviðum og hann var með afbrigðum skemmti­legur maður.

En það er eng­inn sem hefur bara kosti og hann var aug­ljós­lega mjög breyskur líka. En því­líkt sem hæfi­leik­arnir voru enda­lausir. Ef hann hefði til dæmis tekið fót­bolt­ann alvar­lega hefði hann orðið atvinnu­maður í fremstu röð.

Svo var hann líka mjög greindur og hann var með ofboðs­lega gott hjarta­lag. En vínið þvæld­ist mikið fyrir honum og kom honum oft í vand­ræði. Eflaust var pressan líka mikil að vera þessi stór­stjarna í svona litlu landi.

Mér brá alls ekki þegar ég fékk sím­talið þar sem mér var sagt að hann væri far­inn. Ég hafði haft áhyggjur af honum lengi. Þegar hann hafði fengið hjarta­á­fallið nokkru áður var hann í raun mjög hepp­inn að lifa það af. Alltaf þegar hann tal­aði um að fara vestur í Dýra­fjörð leið mér vel, en þegar hann sagð­ist vera að fara til útlanda fékk ég alltaf sting í mag­ann.”

Halldór seg­ist enn elska að mæta í vinn­una alla morgna eftir ára­tuga­störf við að hanna og sauma íþrótta­föt; segir að ótrú­legar breyt­ingar hafi átt sér stað síðan hann stofn­aði íþrótta­fyr­ir­tækið Henson með eina sauma­vél að vopni aðeins 22 ára gam­all:

„Ég er 75 ára gam­all í dag, en mér finnst þetta í raun jafn­á­huga­vert og skemmti­legt og þegar ég var ungur maður. Þetta eru orðin meira en 50 ár og það hefur gríð­ar­lega mikið breyst. Þegar ég byrj­aði fyrst átti maður svo sem ein­hverjar treyjur sem maður gat byrjað að herma eftir, en þetta var auð­vitað býsna frum­stætt. En kom­andi úr íþrótt­unum fann ég að það var hrein­lega sár vöntun á íslenskum mark­aði. Það spil­aði stóran þátt í að ég ákvað að byrja þessa veg­ferð. Ég fór á sýn­ingu í London og sá þar í fyrsta sinn nælonefni í treyjur. Fyrir mér var það algjör bylt­ing og ég fór strax í að finna fyr­ir­tækið sem var að fram­leiða nælonið, rétt utan við Manchester, og fékk að kaupa af þeim. En ég átti svo eftir að kom­ast að því að það að reka fram­leiðslu­fyr­ir­tæki á þessum tíma var aðeins flókn­ara en í dag.

Ekkert inter­net og gat verið tals­vert mikið vesen. Stundum komu vit­laus föt til baka eftir pant­anir og þá voru góð ráð dýr. Það kost­aði mjög mikið að hringja til útlanda á þessum tíma og þess vegna var oft væn­legra að skrifa bréf þó að það tæki langan tíma. Út frá því ves­eni kvikn­aði svo hug­myndin að því að fram­leiða fötin hrein­lega bara hérna heima,” segir Halldór sem hefur upp­lifað hæðir og lægðir í gegnum árin í við­skipt­unum:

„Ég hef upp­lifað allan skal­ann. Alveg frá því að vera skít­blankur að reyna að redda hlut­unum og redda sölu­skatt­inum á síð­ustu stundu, yfir í að vera á þeim stað að verða sterkríkur maður ungur að aldri.”

Þrír menn skrif­uðu umsögn um Robert Downey þegar hann óskaði eftir upp­reist æru árið 2014. Halldór er einn þeirra og seg­ist hann enn sjá mikið eftir því:

„Í fyrsta lagi hefði ég aldrei getað skrifað upp á þetta ef ég hefði gefið mér tíma til að lesa dóm­inn yfir honum. Ég vissi ekki hvað hafði raun­veru­lega gerst og þegar hann kom til mín hugs­aði ég með mér hvort hann ætti ekk­ert líf framundan og fór lík­lega að vor­kenna honum. En síðar hitti ég stúlk­urnar, fórn­ar­lömbin og pabbi einnar þeirra kom með og við reyndum að ræða þetta af heil­indum og mér fannst það ganga vel. Það sem þær báðu mig um að kanna að gera var hvort ég gæti hrein­lega aft­ur­kallað upp­á­skrift­ina og ég fór niður í dóms­mála­ráðu­neyti til að ganga þeirra erinda. Þar hitti ég lög­fræð­ing sem tjáði mér að það væri ein­fald­lega ekki hægt. Þannig að þó að ég hafi sann­ar­lega viljað gera það var það ekki í boði. En ástæða þess að þetta fór svo hátt í fjöl­miðlum var lík­lega vegna þess að ónefndur stjórn­mála­maður bland­að­ist inn í málið,” segir Halldór og bætir við:

„Það er mjög skilj­an­legt að það hafi orðið til sterkar til­finn­ingar í kringum þetta mál allt saman og eðli­leg krafa að hækka ránna. En allt þetta mál er í raun bara hræði­legt og það sem hann gerði lætur mig bara fá hroll.”

Er Halldór lítur um öxl á sitt ótrú­lega lífs­hlaup seg­ist hann hand­viss um hvað hafi verið sín mesta gæfa:

„Ég er mjög lán­samur maður bæði hvað varðar fjöl­skyldu og að hafa unnið við eitt­hvað sem ég elska í öll þessi ár. Að kynn­ast kon­unni minni er mín mesta lukka. Hún hefur alltaf stutt við bakið á mér og unnið með mér. Það þarf sér­staka mann­eskju til að sigla með manni í gegnum svona lífs­hlaup og hún er bara ótrú­lega flott kona.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina