Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fréttablaðið hættir – Hátt í 100 manns missir vinnuna

Fréttablaðið hættir – Hátt í 100 manns missir vinnuna

Útgáfu Frétta­blaðs­ins er hætt sem og útsend­ingar Hring­brautar. Hátt í 100 manns missa vinn­una. Ástæað er sögð blanda af óheppni og óvið­ráð­an­legri þróun. Útgáfu­fyr­ir­tækið miðl­anna, Torg seg­ist treysta enn á DV og vef Hring­brautar. Um er að ræða tíma­mót í íslenskri fjöl­miðla­sögu en Frétta­blaðið hefur komið út dag­lega í nærri 22 ár og hefur verið mest lesna blað lands­ins öll þau ár.

Um er að ræða tíma­móta­fregnir á fjöl­miðla­mark­aði á Íslandi en til­kynn­ist barst rétt í þessu á vef Frétta­blað­ins þar sem sagt er frá stöðvun á útgáfu Frétta­blaðs­ins sem. Þá verður útsend­ingum Hring­brautar einnig hætt. DV, sem einnig er í eigu Torgs mun starfa áfram sem og frétta­vefur Hring­brautar. Í til­kynn­ing­unni er ástæðan fyrir rekstr­ar­stöðvun Frétta­blaðs­ins sögð vera tví­þætt. Er Covid-far­aldr­inum eign­aður sök að hluta til en hann er sagður hafa leitt til tap­rekstrar vegna þess að aug­lýs­ingar dróg­ust veru­lega saman í far­aldr­inum. Þá er talað um nýja þróun á aug­lýs­inga­mark­aði sem komi sér illa fyrir blaða­rekstur. Allir ráðnir starfs­menn Torgs fengu greidd laun í dag, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni. Lesa má hana í heild sinni hér fyrir neðan:

„Á­stæður þess að rekst­ur Frétta­blaðs­ins geng­ur ekki upp eru marg­vís­leg­ar. Að hluta til er um ó­heppni að ræða og að hluta er um að ræða ó­við­ráðan­lega þróun þar sem út­gáfa fjöl­miðla á papp­ír hef­ur látið hratt und­an síga víða um heim, ekki síður en hér á landi. Staf­ræn­ir fjöl­miðlar eru smám sam­an að taka yfir. Þá er rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna miðla á Ís­landi ó­boð­legt. Ekki er um annað að ræða en að horf­ast í augu við þess­ar stað­reynd­ir. All­ir ráðnir starfs­menn Torgs fengu greidd laun í dag.

Veiru­vand­inn sem herj­aði á Ís­lend­inga og heims­byggð­ina alla árin 2020 til 2022 kom mjög illa við rekst­ur Frétta­blaðs­ins og leiddi til tap­rekstr­ar. Aug­lýs­ing­ar dróg­ust veru­lega sam­an þegar heil­ar at­vinnu­grein­ar og öfl­ug fyr­ir­tæki drógu sam­an starf­semi sína eða jafn­vel lok­uðu meðan fárið gekk yfir. Í far­aldr­in­um var tek­inn upp stuðn­ing­ur við einka­rekna miðla, sem var þakk­ar­vert en dugði stærstu miðlun­um skammt. Í fram­haldi hafa stjórn­völd stutt fjár­hags­lega við starf­semi fjöl­miðl­anna en það fram­lag hef­ur dreg­ist sam­an og ekki náð að halda í við verð­lags­þróun. Mark­mið stjórn­valda með þess­um stuðn­ingi var að efla inn­lend­an frétta­flutn­ing og styðja og styrkja tungu­málið.

Stjórn­end­ur út­gáf­unn­ar mátu það svo að um tíma­bund­inn vanda væri að ræða sem þyrfti að kom­ast í gegn­um þar til eðli­legt á­stand kæm­ist á að nýju. Veiru­tíma­bilið reynd­ist hins veg­ar mun lengra en ætlað var og þegar því lauk í byrj­un mars 2022, braust út stríð í Úkraínu sem hafði trufl­andi á­hrif víða um heim og leiddi til auk­ins kostn­aðar tengd­um mik­il­væg­um að­föng­um.

Sam­hliða þessu varð æ ljós­ara að frídreif­ing Frétta­blaðs­ins inn á heim­ili væri of kostn­aðar­söm og fengi ekki stað­ist til fram­búðar. Þess vegna var gerð sú til­raun að dreifa blað­inu á fjöl­farna staði, svo sem í stór­mark­aði, þjón­ustu­stöðvar olíu­fé­laga og versl­ana­mið­stöðvar, þar sem mik­ill fjöldi fólks á leið um. Þessi dreif­ing hef­ur tek­ist mjög vel en mark­aður­inn virð­ist ekki hafa haft næga trú á þessu fyr­ir­komu­lagi. Því verður ekki vik­ist und­an því að láta staðar numið. Sam­hliða þessu verður út­send­ing­um sjón­varps­stöðvar­inn­ar Hring­braut­ar hætt.

Við höf­um á hinn bóg­inn fulla trú á rekstri DV.is og tengdra miðla, vef­miðlin­um hring­braut.is, en starf­semi þess­ara miðla verður haldið á­fram af full­um krafti auk þess sem upp­lýs­inga­miðlin­um Ice­land Magaz­ine verður hleypt af stokk­un­um bráð­lega.

Frétta­blaðið hef­ur komið út sem frí­blað í nær 22 ár og verið mest lesna blaðið lands­ins all­an tím­ann. Það hljóta því að telj­ast nokk­ur tíð­indi þegar blaðið hverf­ur nú af ís­lensk­um fjöl­miðla­mark­aði. Marg­ir hafa reynd­ar spáð því um ára­bil að þessi rekst­ur myndi ekki ganga upp vegna þró­un­ar í fjöl­miðlun þar sem vef­miðlar eru að taka yfir og eins vegna þess ill­víga rekstr­ar­um­hverf­is sem einka­rekn­um fjöl­miðlum er búið á Ís­landi. Um ára­bil og reynd­ar í ára­tugi hafa stjórn­mála­menn og stjórn­mála­flokk­ar heitið því að færa fjöl­miðla­mark­að­inn yfir í sann­gjarnt og eðli­legt horf með því að taka Rík­is­út­varpið af aug­lýs­inga­mark­aði eins og tíðkast í ná­granna­lönd­um og þykir sjálf­sagt fyr­ir­komu­lag. Öll slík fyr­ir­heit hafa verið svik­in og ekk­ert bend­ir til að breyt­ing verði á. Rík­is­út­varpið fær sex millj­arða króna af skatt­pen­ing­um lands­manna í sinn hlut á hverju ári, auk þess sem hon­um líðst að soga til sín aug­lýs­inga­fé í um­tals­verðum mæli í sam­keppni við einka­reknu miðl­ana.

Að auki hef­ur vax­andi hluti aug­lýs­inga­fjár ratað til er­lendra sam­fé­lags­miðla og streym­is­veitna án þess að þeir inn­heimti virðis­auka­skatt af þeirri starf­semi sinni eða standa skil á skött­um og gjöld­um í rík­is­sjóð eins og keppi­naut­um þeirra er skylt. Þetta skekk­ir sam­keppn­is­stöð­una veru­lega án þess að stjórn­völd hafi séð á­stæður til að grípa inn í.

Vit­an­lega er mjög dap­ur­leg niður­staða sem hér er kynnt. En stjórn­end­ur út­gáf­unn­ar hafa sann­ar­lega leitað allra leiða til að finna henni við­un­andi rekstr­ar­grund­völl til fram­tíðar, en án ár­ang­urs. Stjórn fé­lags­ins harm­ar þessi mála­lok og þakk­ar þeim fjöl­mörgu starfs­mönn­um sem lagt hafa dag við nótt að treysta stoðir rekstr­ar­ins und­an­farið og ósk­ar þeim vel­farn­aðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina