Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Björgvin Páll segist hafa reynt að biðjast afsökunar: „Minn tilgangur er að vera góð fyrirmynd“

Björgvin Páll segist hafa reynt að biðjast afsökunar: „Minn tilgangur er að vera góð fyrirmynd“
Björgvin Páll. Mynd: Sven Mandel

„Þar sem að mál okkar Krist­jáns hefur verið sent inn til EHF (af PAUC) þá vil ég loka þessu öllu saman frá mínum bæj­ar­dyrum. Í fyrsta lagi þá finnst mér gjör­sam­lega galið að þetta mál hafi farið svona langt og hefði ég kosið að leysa þetta með sím­tali eða hitt­ing, en það var ekki ósk Krist­jáns,“ skrifar Björgvin Páll Gúst­avs­son, mark­vörður íslenska lands­liðs­ins í hand­bolta. Ágrein­ingur á milli Björg­vins og Krist­jáns Krist­jáns­sonar, leik­manns lands­liðs­ins hefur verið til umfjöll­unar upp á síðkastið en í gær setti Kristján inn færslu á Facebook þar sem hann birtir skjá­skot af skila­boðum frá Björg­vini. Sá síð­ari skrif­aði um sína hlið máls­ins á Facebook í dag og gagn­rýnir ákvörðun Krist­jáns að fara með málið í fjöl­miðla í stað þess að ræða það þeirra á milli.

Kristján hefur átt erfitt and­lega, hann greindi frá því í sam­tali við Vísi að hann glímdi við kulnun. Kristján sagð­ist ætla að taka frí frá hand­bolta en stuttu síðar ákvað hann að spila með franska lið­inu PAUC á móti Vali í Evr­ópu­deild­inni í hand­bolta Í kjöl­farið fékk hann send löng skila­boð frá Björg­vini. „Get ekki setið á mér. Allt þetta bíó hjá þér síð­ustu daga stenst enga skoðun. Í fullri hrein­skilni þá er þetta við­tal við þig í Stöð 2 / Vísir.is til skammar útfrá því að þú sért svo bara að fara að spila á morgun. Ekki mis­skilja mig, ég hef skiln­ing fyrir and­legum vanda­málum. Ef ein­hver… þá ég. Var fljótur að nálg­ast þig þegar þú opn­aðir þig með kvíð­ann/þung­lyndið í Fjölni og svona. En það að gefa það út að sért með kulnun er van­virð­ing við alla þá sem hafa lennt í slíku (3-12 mán­aða erfitt ferli að ná sér uppúr). Veit ekki hvaða sál­fræð­ingur eða pró­fessor gaf þér þessa grein­ingu og gefur þér svo grænt ljós á að spila. Hér stemmir ekki eitt­hvað. Þetta er eins van­virð­ing við Mikkel Hansen og ég veit ekki hvað. Eins og þú veist þá er ég hrein­skil­inn og vill frekar segja þér mína skoðun heldur en að tjá mig um þetta í fjöl­miðlum. Vona að þú gerir þér grein fyrir áreit­inu sem fylgir því að spila evr­ópu­leik á Íslandi og myndi ekki mæla með því fyrir neinn sem er staddur í fyrstu viku kuln­unnar.

Ef að það er ekki þinn vilji að spila. T.d. ein­hver (þjálf­ari, stjórn) er að þvinga þig í það og þú telur að það bitni á and­legu heils­unni þá þarfu að leita í fólkið þitt og fá aðstoð með það allt saman. Ef að það er hins­vegar þín löngun að spila og þú hafir gert mis­tök með þessu kuln­unar-við­tali þá þarftu að clear-a það að minu mati. Svona kemur þetta illa út fyrir þig, klúbb­inn og aðra íþrótta­menn sem eru að díla við and­lega veik­indi.

– Ég var rétt í þessu að spjalla við for­seta félags­ins og útskýra fyrir honum þetta allt saman. Gjör­sam­lega galið og óásætt­an­legt að klúbb­ur­inn láti þig spila þennan leik í þinni stöðu. Með skila­boð­unum var ég að reyna opna augu þin fyrir því hvernig þessir leikir yrðu. Var að vona að þú eða ein­hver í kringum þig hefði gripið inni. Það að klubbur­inn setji þig þessa stöðu er galið. Ef þú heldur að eg skilji ekki þina stöðu þa vona ég að þu hafir lesið bok­ina mina og vitir mina sögu. Allar sjalfsvigstil­raun­irnar i kringum mig og mina fjöl­skyldu. Mer er annt um þig og þina heilsu! Ég myndi mæla með því að þú ferð­ist ekki með lið­inu heim. Væri þá til í að hitta þig i spjalli.“

Björgvin seg­ist ekki ætla að gefa kost á sér í næsta lands­liðs­verk­efni. Færslu Björg­vins má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Þar sem að mál okkar Krist­jáns hefur verið sent inn til EHF (af PAUC) þá vil ég loka þessu öllu saman frá mínum bæj­ar­dyrum. Í fyrsta lagi þá finnst mér gjör­sam­lega galið að þetta mál hafi farið svona langt og hefði ég kosið að leysa þetta með sím­tali eða hitt­ing, en það var ekki ósk Krist­jáns. Harma það að það sé búið að draga Val inn í þetta allt saman vegna þess að ég taldi að um sam­skipti milli liðs­fé­laga lands­liðs­ins væri að ræða. Ég tel að það sé ekki góður staður að vera á þegar leik­menn ákveða að brjóta öll lög­mál þess að vera liðs­maður og hvað þá lands­liðs­maður og birta per­sónu­leg skila­boð sem hugsuð eru til þess að hjálpa liðs­fé­laga í vanda. Það var í það minnsta til­gangur minn með þessum skila­boðum og svo geta menn haft sínar skoð­anir á því öllu saman með því að skoða sam­skiptin sem hafa farið okkar á milli (sjá hér að neðan). Ég játa það fús­lega að hafa verið of harð­orður og hef ég reynt að biðj­ast afsök­unar á því. Ég er þannig gerður að ég tala frekar við fólk en um fólk og set hlut­ina því frá mér umbúða­laust þegar ég er að tala eða skrif­ast á við fólk sem ég tel vini, sam­starfs­fé­laga eða liðs­fé­laga, eins og í þessu máli. Þar sem að Kristján hefur ekki sýnt neinn vilja á að tækla þetta mál utan fjöl­miðla þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir þá setur það HSÍ og lands­liðið lík­lega í smá vand­ræði þar sem að það stytt­ist óðfluga í næsta lands­liðs­verk­efni. Til þess að auð­velda hand­knatt­leiks­sam­band­inu það verk­efni þá hef ég ákveðið að gefa ekki kosta á mér í næsta lands­liðs­verk­efni og hef ég greint lands­liðs­þjálf­urnum frá þeirri ákvörðun minni (að því gefnu að það hefði átt að velja mig í lands­liðið á annað borð). Sú ákvörðun er tek­inn vegna þess að ég sé ekki fyrir mér að spila með leik­manni sem ekki vill ræða málin og clear-a þessa hluti og finnst ósann­gjarnt að setja HSÍ eða þjálf­ara lands­liðs­ins í þá stöðu að þurfa að velja á milli leik­manna (að því gefnu að þeir hafi hug á því að velja Kristján í lands­liðið). Ef að svo ólík­lega vill til að Kristján sé til­bú­inn að ræða málin þá tek ég því sam­tali auð­vitað opnum örmum. Það mun samt ekki hagga ákvörðun minni gagn­vart næsta verk­efni lands­liðs­ins vegna þess að ég vil að öll athyglin í leikj­unum okkar gegn Ísrael og Eist­landi sé á hand­bolt­anum, liðið á það skilið. Það sem auð­veldar mér þessa ákvörðun er að ég er í tölu­verðum mínus hjá konu og börnum eftir mikið af ferða­lögum tengt lands­lið­inu og Val á þessu tíma­bili. Það sem að mér finnst verst í öllu þessu máli er að ég er sjálfur far­inn að setja spurn­ing­ar­merki við þá vinnu sem ég hef verið að sinna utan hand­bolt­ans. Minn til­gangur í líf­inu er að vera góð fyr­ir­mynd og hjálpa öðrum að líða betur og hefur mér mis­tek­ist í það minnsta í þessu til­viki og mun reyna að læra af þeim mis­tökum.

Það eru held ég allir sam­mála um að svona mál eiga ekki heima í fjöl­miðlum og skora ég á vini, sam­starfs­fé­laga eða fólk í liðs­í­þróttum að draga lær­dóm af þessu máli. Vona eins að fjöl­miðlar dragi lær­dóm af þessu þar sem að um and­leg veik­indi er að ræða og öll umfjöllun (sér­stak­lega af þess­ari stærð­argráðu) getur stækkað vanda­málið og aukið á van­líðan.

Set hér fyrir neðan þau sam­skipti sem hafa birst nú þegar í fjöl­miðlum til þess að auð­velda fólki að ná utan um hlut­ina.

Eins er hér að finna við­talið við Kristján sem var upp­hafið af þessu öllu :

https://www.visir.is/…/88d102b4-8544-4816-954d…

Þau skila­boð sem birst hafa í fjöl­miðlum :

Björgvin :

– Var að sjá Vísir.is. Leið­in­legt að heyra stöð­una á þér. Passaðu uppá heils­una. Hún er mik­il­væg­ust. Hand­bolt­inn er auka­at­riði. Þegar heilsan, orkan og vilj­inn kemur aftur þá verð­urðu óstöðv­andi. Taktu þinn tíma.

– Er Anti erf­iður gagn­vart þér og eins þess­ari stöðu? Hef slæma reynslu af honum. Líklega erf­iður gæi í svona málum. Gæti þetta ekki verið síð­asti leik­ur­inn hans um helg­ina? Það gæti gefið þér fresh start

– Hef aðeins verið að astoða aðila sem lenda í þess­ari stöðu þinni og ef það er eitt­hvað þá hóarðu.

Kristján :

– Takk kær­lega fyrir, vinur

– Hreint út sagt þá er ég kom­inn með uppí kok af honum, og stjórnin sömu­leiðis. Hann á ekki mikið eftir með okkur, segja þeir mér.

– En ég kem með lið­inu til íslands, og ákveð með Jóhanni sál­fræð­ingi hvort ég geti spilað eða ekki

Björgvin :

– Get ekki setið á mér. Allt þetta bíó hjá þér síð­ustu daga stenst enga skoðun. Í fullri hrein­skilni þá er þetta við­tal við þig í Stöð 2 / Vísir.is til skammar útfrá því að þú sért svo bara að fara að spila á morgun. Ekki mis­skilja mig, ég hef skiln­ing fyrir and­legum vanda­málum. Ef ein­hver… þá ég. Var fljótur að nálg­ast þig þegar þú opn­aðir þig með kvíð­ann/þung­lyndið í Fjölni og svona. En það að gefa það út að sért með kulnun er van­virð­ing við alla þá sem hafa lennt í slíku (3-12 mán­aða erfitt ferli að ná sér uppúr). Veit ekki hvaða sál­fræð­ingur eða pró­fessor gaf þér þessa grein­ingu og gefur þér svo grænt ljós á að spila. Hér stemmir ekki eitt­hvað. Þetta er eins van­virð­ing við Mikkel Hansen og ég veit ekki hvað. Eins og þú veist þá er ég hrein­skil­inn og vill frekar segja þér mína skoðun heldur en að tjá mig um þetta í fjöl­miðlum. Vona að þú gerir þér grein fyrir áreit­inu sem fylgir því að spila evr­ópu­leik á Íslandi og myndi ekki mæla með því fyrir neinn sem er staddur í fyrstu viku kuln­unnar.

Ef að það er ekki þinn vilji að spila. T.d. ein­hver (þjálf­ari, stjórn) er að þvinga þig í það og þú telur að það bitni á and­legu heils­unni þá þarfu að leita í fólkið þitt og fá aðstoð með það allt saman. Ef að það er hins­vegar þín löngun að spila og þú hafir gert mis­tök með þessu kuln­unar-við­tali þá þarftu að clear-a það að minu mati. Svona kemur þetta illa út fyrir þig, klúbb­inn og aðra íþrótta­menn sem eru að díla við and­lega veik­indi.

– Ég var rétt í þessu að spjalla við for­seta félags­ins og útskýra fyrir honum þetta allt saman. Gjör­sam­lega galið og óásætt­an­legt að klúbb­ur­inn láti þig spila þennan leik í þinni stöðu. Með skila­boð­unum var ég að reyna opna augu þin fyrir því hvernig þessir leikir yrðu. Var að vona að þú eða ein­hver í kringum þig hefði gripið inni. Það að klubbur­inn setji þig þessa stöðu er galið. Ef þú heldur að eg skilji ekki þina stöðu þa vona ég að þu hafir lesið bok­ina mina og vitir mina sögu. Allar sjalfsvigstil­raun­irnar i kringum mig og mina fjöl­skyldu. Mer er annt um þig og þina heilsu! Eg myndi mæla með því að þú ferð­ist ekki með lið­inu heim. Væri þá til í að hitta þig i spjalli.

Missed voice call (fra Krist­jáni í Björgvin) : Líklega óvart

Björgvin :

– Varstu að hringja

– Var að borða með kids

– Ef þú vilt chat-a þá læt­urðu mig vita. Ef ekki þá væri fínt að vita það líka. Svona fyrst þú varst að hringja. Annars óska ég þér góða bata og gangi þér vel í öllu þínu.

Björgvin : Eftir að Kristján fór að spila aftur með PAUC

– Gaman að sjá comeback-ið. Til í spjall í kvöld?

Kristján :

– Nei takk

Björgvin : Í kjöl­far við­tals sem Kristján gaf þar sem hann ræddi inni­hald skila­boð­anna og síðan mynd­birt þau á Facebook síðu sinni

– Alltaf til í spjall af þú vilt

– Skil núna afhverju þú hefur ekk­ert svarað mínum skila­boðum né sím­tölum allt frá því að leik­ur­inn okkar fór fram. Þú vildir greini­lega fara þá leið að tækla þetta í gegnum fjöl­miðla sem mér finnst ekki rétt nálgun. Ástæðan fyrir því að ég hef alltaf bara rætt beint við þig er til þess að reyna hjálpa þér. Þu kannski áttar þig ekki á því akkurat núna. Í skila­boð­unum sem ég sendi þér var ég of harð­orður í þinn garð og þá sér­stak­lega með að nota orðið “bíó“. Það var lélegt hjá mér og biðst afsök­unar á því. Andlega mál­efni eru mér mjög náin enda móðir mín og systir reynt fjöldan allan af sjálfs­vígum og þess vegna trig­ger­aði þetta mig aðeins og þá sér­stak­lega þegar for­seti félags­ins fór að bulla eitt­hvað eftir leik. Sjálfur er ég á mis­jöfnum stað and­lega og veit ekki hversu mikið þú veist um mína sögu

https://www.mbl.is/…/koma_dagar_thar_sem_mig_langar…/

– Ég skora á þig að lesa allt okkar sam­tal aftur frá upp­hafi (eða á öðrum miðlum sem ég hef sent á þig) og athug­aðu hvort þú sjáir ekki að ég meira að reyna að hjálpa þér en ekki. Ef að það er eitt­hvað þá er ég alltaf klár í chat-ið. Væri til í að sjá okkur spila vel úr fram­hald­inu. Minn faðmur er opinn og er pepp­aður að sjá þig blómstra með bæði PAUC og svo með lands­lið­inu. Hvort sem ég verð í lands­lið­inu eða ekki þá er þín veg­ferð rétt að byrja og held að þú getur orðið virki­lega flott fyr­ir­mynd með því bæði að standa þig í bolt­anum og eins með því að vera opinn og hrein­skil­inn með þín mál. Getur ekki ímyndað þér hvað að eru margir krakkar og ung­menni sem eru á virki­lega slæmum stað og þurfa á góðum fyr­ir­myndum að halda. Ég held með þér Donni minn

-Þú tal­aðir um í frétt­inni að ég hefði bara getað hringt. Ég hef reynt það núna í 5 vikur og þess vegna færðu þetta allt frá mér á skila­boð­unum. Ég vona að þú hafir sýnt Jóhanni Inga öll okkar sam­skipti og væri gaman að heyra hvað hann hefur um málið að segja. Er í lagi að ég screenshot-i allt sam­talið og sendu honum það? Ef ég heyri ekk­ert frá þér þá geri ég ráð fyrir því að okkar sam­skiptum sé lokið og óska þér vel­farn­aðar í fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina