Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Segir skatta of lága á Íslandi: „Þessi hugsun hefur komið okkur í þá stöðu sem við erum í“

Segir skatta of lága á Íslandi: „Þessi hugsun hefur komið okkur í þá stöðu sem við erum í“
Grímur Atlason

Grímur Atlason, bassa­fantur og fram­kvæmd­ar­stjóri Geð­hjálpar vill hækka skatta á Íslandi, sam­fé­lags­ins til góða. Segir hann rót­gróna hugsun land­ans ástæða þess að ástandið á land­inu er eins og það er.

Í nýrri færslu á Facebook skrifar Grímur Atlason, fram­kvæmd­ar­stjóri Geð­hjálpar og eig­in­maður Helgu Völu Helga­dóttur þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um grein sem hann las eftir eldri mann á dög­unum. Sá gamli var ósáttur við það hvað yngri kyn­slóðir færu illa með eldri borg­ara lands­ins. Grímur bendir á í færslu sinni að mað­ur­inn hafi skautað fram hjá þeirri stað­reynd að kyn­slóðin sem nú er komin á eft­ir­laun, beri tölu­verða ábyrgð á því „hvernig er að vera gam­all á Íslandi í dag.“ Segir hann að mjög stór hluti þessa fólks hafi talið skyn­sam­legt að hafa skatta sem lægsta hér á landi. Segir hann að áhrifin komi ávalt betur og betur í ljós. Nefnir Grímur sem dæmi bið­ina eftir lækn­is­þjón­ustu og geð­þjón­ustu sem og ástandið á bráða­mót­tök­unni og fleira í þeim dúr. Segir hann að lokum að ástandið haldi áfram að vera svona slæmt, „nema þjóðin átti sig á því að sam­fé­lag er þegar öll taka þátt og leggja sann­gjarnan skerf til sam­neysl­unnar.“

Færsluna má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Ég las grein í blaði á dög­unum eftir mann á góðum aldri. Hann var ósáttur við það hvernig við færum með eldri borg­ara þessa lands – fólkið sem byggði upp landið og sam­fé­lagið. Hann var ómyrkur máli og skamm­aði yngri kyn­slóðir. Þetta er ekki fyrsta greinin og án efa ekki sú síð­asta sem ég les um þetta efni. Margir eru ósáttir við þau sem núna eru á vinnu­mark­aði og virð­ast hafa gleymt hinum eldri.

Hann skaut­aði hins vegar fram­hjá ákveðnum stað­reyndum. Kyn­slóðin sem nú er komin á eft­ir­laun, reyndar nokkuð breytt bil eða fólk á aldr­inum 65 til 105 ára, ber nefni­lega tals­verða ábyrgð á því hvernig það er að vera gam­all á Íslandi í dag. Mjög stór hluti þessa fólks taldi það skyn­sam­legt að hafa skatta sem lægsta á Íslandi. Það þótti, og þykir því miður enn, betra að horfa í átt til svo­kall­aðs frelsis Banda­ríkj­anna og ann­arra sam­bæri­legra þjóða þegar kemur að rekstri sam­fé­lags­ins frekar en til hins nor­ræna vel­ferð­ar­sam­fé­lags. Skattar voru gegn­um­gang­andi frá seinna stríði og í raun til dags­ins í dag 20-40% hærri í Danmörku, Noregi og Svíþjóð en á Íslandi. Þeir efna­meiri greiddu jafn­vel 100% hærri skatta þar en hér á Íslandi. Þessi hugsun hefur komið okkur í þá stöðu sem við erum í.Afleið­ing­arnar koma alltaf betur og betur í ljós. Hvað þarf að bíða lengi eftir við­tali við lækni á heilsu­gæsl­unni? Hvernig er staðan á bráða­mót­tök­unni? Hvernig er heil­brigð­is­þjón­ustan á lands­byggð­inni? Hvað þarf að bíða lengi eftir plássi á hjúkr­un­ar­heim­ili? Hvað þarf að bíða lengi eftir tíma hjá geð­lækni? Hvernig er geð­heil­brigð­is­kerfið almennt? Hvernig gengur að manna leik­skól­ana? Hvernig hafa öryrkjar það á Íslandi? Hvernig hafa eldri borg­arar það sem ekki gátu lagt til hliðar pen­inga á langri starfsævi? Við getum þannig farið yfir alla þætti opin­bers rekst­urs og spurt þess­ara spurn­inga. Svörin blasa við.Ísland er lítið land. Það kostar meira að reka litlar ein­ingar en þær stærri. Hag­kvæmni stærð­ar­innar gerir það að verkum að skattar ættu í raun­inni að vera umtals­vert hærri hér en á Norð­ur­löndum. Fyrir utan kostn­að­inn við örmynt­ina sem við notum. Það er sorg­legt að sjá hve margir virð­ast ekki sjá þetta sam­hengi. Það verða lengri og lengri raðir á Lækna­vakt­inni í Aust­ur­veri. Það verða fleiri og fleiri á biðlistum. Það blasir við. Nema þjóðin átti sig á því að sam­fé­lag er þegar öll taka þátt og leggja sann­gjarnan skerf til sam­neysl­unnar.Ef fólk berst fyrir því að borga sem lægsta skatta allt sitt líf þá er óhjá­kvæmi­legur fylgi­fiskur þess að þurfa að bíða eftir nauð­syn­legri opin­berri þjón­ustu svo mán­uðum og árum skiptir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina