Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Helgi: „Varð fyrir reynslu sem kenndi mér að ég vil aldrei aftur láta annað fólk segja mér fyrir”

Helgi: „Varð fyrir reynslu sem kenndi mér að ég vil aldrei aftur láta annað fólk segja mér fyrir”
Helgi Áss Grét­ars­son.

Helgi Áss Grét­ars­son, skák­meist­ari og lög­fræð­ingur segir það mik­il­væg­ara sem aldrei fyrr að fólk þori að tjá skoð­anir sínar; Helgi er nýjasti gest­ur­inn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar.

Segja má að Helgi hafi á und­an­förnum miss­erum ítrekað farið gegn straumnum í skoð­unum sínum:

„Ég hef mikla trú á ein­stak­lingum og hugn­ast ekki sú þróun að gera ein­stak­linga alltaf að hluta af hóp. Þegar fólk fer of langt í hóphugsun eru öfgarnar oft stutt undan. Þá vill fólk oft fara mjög langt í dyggð­ar­skreyt­ingum til þess að fá við­ur­kenn­ingu frá hópnum sem það telur sig til­heyra og hikstar ekki við að kasta öllum eðli­legum við­miðum í sið­uðum sam­skiptum. Á ákveð­inn hátt kemur þetta í stað­inn fyrir trú­ar­brögð og er farið að líta tals­vert út eins og trú­ar­brögð.

Maður sér oft besta fólk komið býsna langt í þessa átt. Við megum ekki gleyma því að öfga­sam­tök og mestu öfgar mann­kyns­sög­unnar hafa oft orðið til í svona and­rúms­lofti. Við getum ekki bara hent þeim reglum sem við höfum komið okkur saman um ef tíð­ar­and­inn er þannig að fólk vill fá tíma­bundnar vin­sældir. Hver og einn verður að velja fyrir sig hvaða orusstum er rétt að taka þátt í, en það er mik­il­vægt að fólk þegi ekki bara og láti háværan hóp stýra allri umræðu.”

Helgi segir póli­tíska rétt­hugsun hafa náð tökum á umhverf­inu í háskólum lands­ins. Þar seg­ist hann hafa lært það með árunum að ef maður lætur stöðugt undan eigin sann­fær­ingu endi það á að maður veiki sjálfan sig og brjóti sig í raun niður:

„Það er að verða mjög skrýtin þróun í háskól­unum. Pólitísk rétt­hugsun hefur náð miklum tökum á háskóla­sam­fé­lag­inu. Ákveðinn hópur hefur náð að ákveða hvað má tala um og hvað ekki. Oft er komið í veg fyrir að það sé verið að ræða efn­is­at­riði mála og draga þannig úr sköpun. Það má ræða mjög nei­kvætt um suma mála­flokka og sumt fólk, en ef það væri í hina átt­ina yrði fólk bara grillað á teini. Prinsippið í akademísku umhverfi á að vera frjáls tján­ing og frjálst flæði hug­mynda.

Ég var í stuttu máli far­inn að upp­lifa það að þetta væri alls ekki lengur þannig þegar ég starf­aði í háskól­unum,” segir Helgi og heldur áfram:

„Reynslan mín í háskóla­sam­fé­lag­inu þegar ég var í ákveð­inni stöðu þar kenndi mér að ef ég gef bara eftir minn karakter og læt undan og þegi, þá er ég að brjóta sjálfan mig niður. Gera sjálfan mig veik­ari. Það gengur ekki til lengdar. Ég varð fyrir reynslu sem kenndi mér að ég vil aldrei aftur láta annað fólk segja mér fyrir hvað ég á að standa eða þegja ef ég veit að það er mik­il­vægt að tjá sig.

Með lífs­reynsl­unni hef ég lært að maður verður stundum að þora að vera hug­rakkur og standa með eigin sann­fær­ingu, þó að það kosti að ein­hverjir verði brjál­aðir og segi eitt­hvað nei­kvætt um mann. Ef maður er alltaf til­bú­inn að gefa eftir eitt­hvað af sínum karakter til að lífið sé þægi­legra, þá molnar hægt og síg­andi undan skap­gerð­inni og maður verður hægt og rólega að gufu sem stendur ekki fyrir neitt!”

Helgi er vara­borg­ar­full­trúi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og seg­ist vilja standa fyrir það í stjórn­málum að þora að vera hug­rakkur og jafn­vel taka óvin­sælar ákvarð­anir ef það er rétt til lengri tíma litið. Það sé ekki væn­legt ef stjórn­mála­menn eru of upp­teknir af því að sækja sér stöðugt vin­sældir, þó að það kosti að gefa afslátt af sjálfu sér:

„Lausnin er ekki alltaf að auka afskipti hins opin­bera og koma á nýjum ráðum og nefndum og stýr­hópum. Lausnin er oft í fólk­inu sjálfu, en ekki í emb­ættis- eða stjórn­mála­kerf­inu. Það hefur verið mín sýn í mjög langan tíma þegar kemur að stjórn­málum. Það er mik­il­vægt að það sé fólk í stjórn­málum sem gefur ekki afslátt af sann­fær­ingu sinni, þó að það sé þægi­legt til skamms tíma.

Til dæmis gengur ekki að reka hið opin­bera enda­laust á lánum og á óábyrgan hátt. Það þýðir að stjórn­mála­menn þurfa stundum að þora að taka óvin­sælar ákvarð­anir ef þeir vita að það er betra til lengri tíma litið. Ég vil í störfum mínum í stjórn­málum sýna það að fólk geti treyst því að ég standi með sann­fær­ingu minni.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við