Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Tjaldurinn Tryggvi og gjaldþrota Selfoss

Tjaldurinn Tryggvi og gjaldþrota Selfoss
Tryggvi í öllu sínu veldi

Í góðum málum

Aðdá­endur tjalds­ins Tryggva og spúsu hans, Tryggvínu, eru í þokka­lega góðum málum enda hefur parið snúið aftur í óðal sitt í Ármúl­anum. Fram undan eru því fjöl­margar fréttir hjá Mannlífi um sam­líf pars­ins, líkt og á síð­asta ári við fádæma vin­sældir. Það vill nefni­lega svo skemmti­lega til að óðal tjald­anna er á þaki Ísólar ehf., sem er við hlið skrif­stofu Mannlífs en starfs­menn mið­ils­ins sjá óðalið út um glugg­ann á skrif­stofu sinni. Og ekki nóg með það, heldur venja Tryggvi og Tryggvína komur sínar á glugga­syllur Mannlífs og banka þar reglu­lega á rúður.

Í fyrra sögðum við frá ýmsum ævin­týrum þeirra, meðal ann­ars frá því er Tryggvi gerði heið­ar­lega til­raun til að kíkja inn í fata­verslun í Ármúl­anum. Þá tókum við við­töl við starfs­menn í Ármúl­anum sem sögðu okkur að Tryggvi hefði átt þar óðal í yfir 30 ár. Fugla­fræð­ingur fræddi okkur um líf­erni tjalda og svo náðum við ein­stökum ljós­myndum af sam­förum pars­ins en það eign­að­ist þrjá unga í fyrra sumar, þá Ripp, Rapp og Rupp. Því miður komust aðeins tveir þeirra á flug en Rupp lifði ekki út sum­arið. Aðdá­endur mega sem sagt búast við gleði­fréttum, drama, ævin­týrum og fræðslu næstu vikur og mán­uði og eru því í ansi góðum málum.

Í slæmum málum

Sveit­ar­fé­lög á Íslandi eru mörg hver í slæmum málum um þessar mundir. Svo illa er komið fyrir sveit­ar­fé­lag­inu Árborg að bæj­ar­stjórn neyð­ist til að grípa til hag­ræð­ingar og sölu eigna, það er á barmi gjald­þrots. Svo slæm er staðan þar að veltufé á hvern íbúa er nei­kvætt um 76 þús­und krónur. Ýmislegt spilar inn í stöðu Árborgar en bæj­ar­stjórn síð­asta kjör­tíma­bils réðst í miklar fram­kvæmdir og mik­ill vöxtur hefur verið þar, til dæmis hefur nýr og glæsi­legur mið­bær litið dags­ins ljós. Þá hafa verð­tryggð lán verið tekið sem hafa svo hækkað mikið í verð­bólg­unni sem nú ríkir á land­inu og í vaxta­hækk­unum síð­ustu miss­era.

Bæj­ar­stjóri Árborgar, Fjóla Krist­ins­dóttir, segir þó að þrátt fyrir svartar horfur séu enn mikil tæki­færi til end­ur­skipu­lagn­ingar og hag­ræð­ingar. Á manna­máli þýðir það að selja þurfi eignir sveit­ar­fé­lags­ins og segja upp starfs­fólki en „mikil tæki­færi“ hljóma sárs­auka­laus­ara en hitt og það vita stjórn­mála­menn. Nú er bara að bíða og sjá hvort Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn geti rétt úr kúti Árborgar og ef svo reyn­ist, hversu sárs­auka­fullt það verður.

Þessi pist­ill og fleira áhuga­vert efni er að finna í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina