Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Drífa Snædal: „Konum hefur hefnst grimmilega í gegnum tíðina fyrir að segja frá“

Drífa Snædal: „Konum hefur hefnst grimmilega í gegnum tíðina fyrir að segja frá“
Drífa Snædal.

Talskona Stíga­móta, Drífa Snædal, skrifar grein er ber yfir­skrift­ina: Metoo hvað nú?

„Stígamót voru stofnuð 1990 – rúmum þrjá­tíu árum síðar er loks­ins til far­vegur fyrir konur að segja frá, segja sögu sína og jafn­vel vera svo for­hertar að ljóstra upp um ofbeld­is­menn.

Konum hefur hefnst grimmi­lega í gegnum tíð­ina fyrir að segja frá, hafa jafn­vel þurft að flýja land; þeim verið útskúfað fyrir það eitt að segja frá.“

Drífa ljær máls á því að „lengi hefur sam­fé­lagið við­ur­kennt að vald­bundið kyn­ferð­is­of­beldi er til og það sé vanda­mál. En um leið og ofbeld­is­mað­ur­inn er ein­hver sem við þekkjum, berum virð­ingu fyrir og þykir vænt um brestur sam­staðan. Við vitum ekki hvað við eigum að gera – hand­ritið er ekki til. Vald­bundið ofbeldi, þar með talið kyn­bundið ofbeldi er svo inn­gróið í menn­ingu okkar að flest eru hætt að kippa sér upp við tölur úr árs­skýrslum Kvenna­at­hvarfs­ins og Stíga­móta.

„Já voru þetta svona mörg hundur konur sem sóttu við­töl og dvöl í fyrra – áhuga­vert!“

En með til­komu allra litlu og stóru bylt­inga síð­ustu ára eru komin and­lit og nöfn á þá þolendur sem stíga fram. Þá er erf­ið­ara að þagga. Þegar and­lit og nöfn á ofbeld­is­mönnum bæt­ast við flæk­ist málið.“

Bætir við:

„Fyrst um sinn er þolendum trúað og svo kemur bakslagið. Það getur komið í formi þess að vett­vangur frá­sagn­ar­innar er véfengdur, gert er lítið úr brota­þol­anum eða að „dóm­stóll göt­unnar“ hafi nú tekið völdin og sé stjórn­laus. Neyð­ar­úr­ræði Það sem ýmsir kalla dóm­stól göt­unnar má líka kalla neyð­ar­úr­ræði brota­þola. Þegar þolendum er ekki trúað og þeim neitað um rétt­læti innan kerf­is­ins er til­efni til að van­treysta kerf­inu. Þegar mál eru felld niður og rétt­ar­kerfið eru svipu­göng fyrir brota­þola þá stendur eftir hinn opin­beri vett­vangur til að finna eitt­hvað rétt­læti og koma í veg fyrir að fleiri verði þolendur.

Þolendur segja sögu sína opin­ber­lega á meðan annað rétt­læti er ekki í boði. Og það er óþol­andi stað­reynd að þurfa að ber­skjalda sig frammi fyrir alþjóð og vera sett á mælistiku kommenta­kerf­anna af því annað hefur brugð­ist.

Ofbeld­is­menn­irnir koma svo af fjöllum, senda frá sér yfir­lýs­ingar þar sem þeir þykj­ast gang­ast við brot­unum en gera það í raun ekki. Hand­ritið er ekki til. Þeir eru aldir upp í ofbeld­is­menn­ingu kynja­kerf­is­ins og datt aldrei í hug að brot þeirra yrðu að ein­hverju stór­máli. Þeir eru stein­hissa og finnst jafn­vel á þeim sjálfum brotið.“

Hún nefnir að „á þessum stað erum við stödd nú þrjá­tíu og þremur árum eftir stofnun Stíga­móta. Við getum ekki skellt skuld­inni á menn­ingu lið­inna tíma því hér á Stíga­mótum getum við stað­fest að kyn­ferð­is­brot eru ekki kyn­slóða­bundin.

Unga fólkið okkar er ekki örugg­ara en eldri kyn­slóðir voru. Hvað gerum við nú? Getum við mótað nýjan sam­fé­lags­sátt­mála þar sem við tryggjum í fyrsta lagi öryggi fólks, hlúum í öðru lagi að þolendum og tryggjum loks að ofbeld­is­menn þurfi að vera ábyrgir gjörða sinna?

Það er eina leiðin fram á við – hin leiðin er hin óþol­andi ber­skjöldun þolenda á opin­berum vett­vangi – það sem sum vilja kalla „dóm­stól göt­unnar.““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina